Skinfaxi - 01.12.1921, Síða 3
SKINFAXI
39
1. Fjórðungslögin. Forseti skýrði frá
því að það laegi fyrir í ýmsum atriðum
að breyta þyrfti fjórðungslögunum. Var
síðan kosin 3ja manna nefnd í málið. Kom
nefndin fram með ýmsar breytingartillögur
við fjórðungslögin og voru þær samþyktar
í einu hljóði. Eftir hinum nýju lögum heitir
sambandið: BandalagU. M. F. Vestfjarða*.
Vegna breytinga á lögunum var svo-
hljóðandi tillaga samþ. í einu hljóði:
»Sökum breytinga þeírra, sem gerðar
hafa verið á lögum sambandsins, leyfir
Bandalagsfundurinn sér að fara þess á leit
við stjórn Bandalagsins, að hún sendi hið
allra fyrsta öllum félögunum í Bandalag-
inu afrit af lögum þéss, sé ekki hægt að
láta prenta þau bráðlega«.
2. Starfsmálanefnd. Svohljóðandi álit
frá starfsmálanefnd samþykt með öllum
greiddum atkvæðunr:
a. íþróttanámsskeið. »Nefndin leggur til,
að ungmennafélagið »Huld« beiti sér fyrir
því, að haldið verði sund- og íþróttanáms-
skeið á næstkomandi sumri á Reykjanesi
og að Bandalagsstjórn U. M. F. Vest-
fjarða ráði þar til hæfan kennara og styðji
eftir getu, áðurnefnt félag til framkvæmda
í þessu nauðsynlega máli«.
b. Híraðsmál á Isafirði. »Nefndin leggur
til að haldið verði alment héraðsmót á
Isafirði á næstkomandi sumri, og að undir-
búningur þess og framkvæmdir verði falin
tveimur ungmennafélögum, sem næst séu
samkomustaðnum — eða þeim Ungm.fél.
»Arvakur« og »Þróttur«. Jafnframt var
samþ. að leyfa félögum utan Bandalags-
ins þátttöku í áður nefndu móti.
3. Fjallarnót. ».Nefndin leggur til að
fjallamót fari fram á næstkomandi sumri
ef auðið verður og leggur eindregið til
að Bandalagsfundurinn ákveði stefnumóts-
daginn og stefnumótsstaðinn. Að lokinni
annari umræðu var samþ. með öllum gr.
atkvæðum, að hafa fjallamótið á Vatna-
fjalli í Onundarfirði sunnud. 31. júlí 1921
í björtu veðri, en væri ekki veðurs vegna
hægt að hafa mótið áðurnefndan dag, var
það ákveðið sunnudaginn 7. ágúst s. ár,
kl. 11 — 1.
4. Fyrirlestrastarfsemi. — Ársfundur
Bandalagsins samþykti að alþýðufyrirlestrar
séu framkvæmdir á Bandalagssvæðinu á
þessu ári. Felur hann stjórn Bandalags-
ins að útvega menn til þess innan eða
utan (fjórðungsins) Bandalagsins, og leggur
til að farið sé fram á fjárstyrk til fyrir-
lestra hjá sýslu- og bæjarfélögum á Banda-
lagssvæðinu«.
5. Sambandsmerki. Svohljóðandi tillaga
samþ. í einu hljóði:
»Ársfundur Bandalags U. M. F. Vest-
fjarða leyfir sér að skora á Sambandsþing
Ungm.fél. í Reykjavík að afgreiða og
samþykkja merki handa ungm.fclögum
innan sambandsins, samkvæmt ósk þeirra,
hið allra fyrsta«.
6. „0ddrún“. — Svohljóðandi till. samþ.
í einu hljóði:
»Fundurinn ályktar að breyta ferða-
áætlun »Oddrúnar« þannig að hún fari
frá »Vestra« til »Unglings« og ^vo sömu
leið og áður. Óskað er að handrit að
ljóðum og ritgerðum til hennar séu geymd
í félögunum*.
7. Bannlögin. Tillaga frá forseta kom
fram svohljóðandi og var samþ. í einu hlj.:
»Bandalagsfundur U. M. F. Vestfjarða«
heitir á öll félög bandalagsins að beita
sér öfluglega fyrir verndun bannlaganna:
a. Með því að auka skilning manna á
því stórmáli innan sinna vébanda.
b. Með því að hafa áhrif á utanfélags-
menn, einkum hina yngri, og vinna að
því að leiða hugi þeirra til fylgis við
málið.
c. Með því að styðja eftir megni Regl-
una í aðalstarfi hennar nú hér á landi —
verndun bannlaganna.
8. Frumvarp til fjárlaga fyrir Bandalag
U. M. F. Vestfjarða frá 1. apríl 1921 til
31. mars 1922.
Hljóðaði það svo: