Skinfaxi - 01.12.1921, Side 4
40
SKINFAXI
T e k j u r:
1. Vangreiddur skattur f. f. ári áætl. r 12.00
2. Aætlaður skattur af 500 félags-
mönnum á 0,75 aura............375.00
3. Frá íþróttafél. »Stefnir« í Súg-
andafirði fyrir ferðakostnað Jóns
Þorsteinssonar, áætlað............ 40.00
4. Styrkur til fyrirlestra frá V.ísa-
fjarðarsýslu .....................100.00
5. Styrkur frá Samb. U. M. F. í.
áætlað............................100.00
Samtals kr. 727.00
G j ö 1 d :
1. Skuld við form. Bandalagsins . 104.48
2. Kostnaður við Bandalagsfund . 30.00
3. Kostnaður við stjórn Bandalags-
ins................................ 25.00
4. Til fyrirlestra...................300.00
5. Til íþrótta........................200.00
6. Óráðstafað......................... 67.52
Samtals kr. 727.00
9. Kosin stjórn Bandalags U. M. F.
Vestfjarija. Kosningu hlutu:
Björn Guðmundsson, Næfranesi, form.
með öllum greiddum atkv.
Bjarni Ivarsson, Alfadal Ingjaldssandi,
ritari með 9 atkv.
Kristján Davíðsson, gjaldkeri, með 12
atkv.
Varastjórn: Jóhannes Davíðsson, form.,
Júlíus Rósinkransson, ritari, Stefán Páls-
son, gjaldkeri.
Næsti Bandalagsfundur. Ákveðið að hann
yrði haldinn í Dýrafirði.
Bjarni Ivarsson, ritari.
Júlíus Rósi?ikra?isson, þingritari.
* * *
Þinggerð þessi kom eigi til blaðsins fyr
en í öndverðum nóvember, og er það
harla seint, eins og gefur að skilja! Ættu
félagsstjórnir að athuga að þessháttar sé
sent í tæka tíð. liitstj.
Molar.
Skinfaxi. Með þessu tölubl. endar XII.
árg. Skinfaxa; um áramót verður sú breyt-
ing að blaðið kostar kr. 3,00 árg. og ■
verður 8 arkir minst, en ég vona að Skin-
faxi eigi svo marga ötula fylgismenn að
hann nái þeirri útbreiðslu sem til þess
þarf að hann geti komið út 12 sinnum á
ári, og minnst ein örk í senn. Kæru fé-
lagar! gerið þið öll það sem þið getið
fyrir Skinfaxa og U. M. F. hreyfinguna
yfirleitt. Þið megið trúa því, að velunnin
störf fyrir gott málefni verða altaf sólskins-
blettur á ókomnu æfiskeiði ykkar.
Niðurlag. Um leið og ég enda þessa árs
»mola« vil ég nota tækifærið til þess að
skora á félög og einstaka menn innan
U. M. F. í. að muna eftir Skinfaxa! Á
ég þar fyrst og fremst við það að útbreiða
blaðið og ekki síður að borga það tafar-
laust eftir ármót, og að þeir greiði þá
XII. árg. um leið og yfirleitt vona ég að
sem flestir geri það. Þá megið þið ekki
gleyma að senda Skinfaxa stutta fréttapistla
það hefir sína þýðingu, og að síðustu : Ung-
mennafélagar! Þokið ykkur saman, skiljist
ekki við málefnin sem þið berjist fyrir
fyr en þau hafa verið leidd til lykta á
réttann hátt. Alt sem hindrar verður að
víkja úr vegi. Við verðum að vera sam-
taka og setja markið hátt! M. S.
Fréttir.
Sambandsstjóri, Magnús Stefánsson,
hélt íþróttanámskeið við Þjórsárbrú síðast-
liðna viku. Mun nánar skýrt frá því í
næsta blaði.
Þorgils Guðmundsson frá Valdastöðum '
í Kjós dvelur erlendis í vetur, á leikfimis-
og íþróttaskóla í Danmörku. Er Þorgils
víðkunnur sem ágætur íþróttamaður og
áhugasamur ungmennafélagi, og má búast
við að hann sendi »Skinfaxa« línu ein-
hverntíma í vetur.
Prentsmiðjan Acta 1921