Skinfaxi - 01.06.1924, Blaðsíða 8
48
SKINFAXI
Nýmæli.
pað er íjömul reynsla, að öll nýmæli
mæta mótspyrnu. Og oft liafa þau
orðið að lúta fyrir hleypidómum fjöld-
ans. En jafnan hafa þau risið upp aft-
ur, hafi nokkur kjarni verið í þeim fólg-
inn. Vanalega hafa þau þá komið fram
i nýjum húningi, er væri sniðinn betur
en áður, eftir kröfum tímans, og reynt
að vinna alþýðuhylli á þann hátt.
Um leið hefir þeim aukist ásmegin, og
kostir þeirra vaxið.
Eg tcl það nauðsynlegt hverju ný-
mæli, að það mæti mótspymu í fyrstu.
pað þótti tíðindum sæta, þegar ung-
mennafélögin námu hér land fyrir rúm-
um 18 árum síðan. — J?au mættu fyrst
hörðum dómum og voru af mörgum tal-
in einskis nýt. En við mótspyrnuna
þroskuðust þau. þau risu upp viðsveg-
ar um landið, kjarni æskulýðsins fylkti
sér undir merki þeirra.
Nú er svo komið, að þau eru virt af
mildum þorra landsmanna og starfsemi
þeirra viðurkend. En enginn má halda,
að allir örðugleikar séu yfirstígnir. ]?að
er einmitt einkenni margra nýjunga, að
kraftar þeirra þverra ef mótspyrnan
minkar.
Nvi finst mér sá tími standa yfir, er
stórum muni reyna á festu ungmenna-
félaganna og samhald. ]?að er eftir örð-
ugasti hjallinn, það cr eftir að lvoma
góðu skipulagi á samstarfið og fylkja
öllum félögunum undir sameiginlegt
merki fórnfýsi og drengskapar. Æsku-
brestirnir eru ekki yfirstignir. En altaf
miðar þó í sólarátt.
Eg örvænti eklvi um göfugt framtíð-
arstarf félaganna, því eg er viss um að
æskulýður Islands á þá krafta fólgna í
sjálfum sér, er lyft geta yfir örðugasta
hjallann.
En tímabilið þangað til getur orðið
mislangt og fer það mikið eftir því,
hvernig um stjórnvölinn er haldið.
Við þurfum gætna menn og greinda
til stjórnarstarfa, en hugsjónamenn til
vakningarstarfseminnar- Og jeg veit, að
við eigum þá til, því eg trvii á bjarta
framtið ungmennafélaganna og ham-
ingju íslands.
Stefán Ág. Kristjánsson,
Fréttir.
Austmenn.
Gert er ráð fyrir, að 5 norskir ung-
mennafélagar komi hingað til Reykja-
víkur um miðjan þ. m. Dvelja þeir
hér fram yfir Samb.þing U. M. F. I. og
íþróttamót I- S. I. Að því búnu ferðast
þeir um Borgarfjörð og þaðan austur
um fjall lil pingvalla, Gullfoss og Geys-
is og um Suðurlandsundirlendið alla leið
austur í Fljótshlíð; koma svo aftur til
Reykjavikur og fara þaðan vestur og
norður um land.
Um alt land hafa ungmennafélög lýst
ánægju sinni yfir komu þessara gesta og'
heitið þeim fylgd og fararbeina, enda
ætti þessi heimsókn að verða til þcss, að
meiri kynning og samvinna tækist milli
íslenskra og norskra ungmennafélaga,
en verið hefir.
Kolbeinn ungi.
Svo heitir vélritað blað, sem samb.
skagfirskra ungmennafélaga gefur út.
Formaður samb., Valgarð Blöndal, er
ritstjóri og afgreiðslumaður blaðsins.
Blaðið á að auka kynningu meðal félaga
innan samh. og ræða áhugamál ung-
mennafélaga yfir höfuð. Blaðið mun
reynast vinsælt mcðal héraðsbúa eins
og nafni þess var. — Skinfaxi óskar því
góðs gengis.
FJF.LAGSPRENTSMIÐJAN