Skinfaxi - 01.11.1962, Side 16
laginu allt til ársins 1940 og var þá kjör-
inn heiðursfélagi. Júlíus var traustur og
vel látinn forustumaður, sem lengi mun
minnst, en hann dó árið 1948.
Annar helzti forvígismaður félagsins á
þessum árum var Þór Þorsteinsson á
Bakka. Hann var lengi varaformaður og
síðar formaður og var jafnan kjörinn í
nefndir ef einhverju þurfti að koma í
framkvæmd, enda duglegur framkvæmda-
maður. Hefur hann verið heiðursfélagi
U.M.F.Ö. síðan 1939.
Upp úr 1937 tekur félagslífið mjög að
blómgast. Margt af ungu fólki gengur í
félagið og mikið er um fundahöld, og fé-
lagsblaðið „Snepill", sem félagið hefur gef-
ið út síðan 1926, eflist mjög á næstu ár-
um. Má segja að næstu 10 árin séu blóma-
skeið í sögu félagsins. En um 1949 færist
mikil deyfð yfir félagsskapinn og mátti
þá ekki miklu muna að hann lognaðist út
af, sem þó ekki varð. Á árunum 1943—’45
lagði félagið rúmlega 1400 krónur til sund-
laugarbyggingar að Laugalandi á Þela-
mörk. Árið 1945 heldur félagið mikla sam-
komu til að minnast 100 ára dánarafmælis
Jónasar Hallgrímssonar. Og árið 1946 sam-
þykkir félagsfundur að algert vínbindindi
skuli vera innan félagsins, sem sama ár
gengur í Ungmennasamband Eyjafjarðar.
Kári Þorsteinsson frá Bakka gekk í fé-
lagið árið 1937, þá nær 29 ára að aldri.
Hann var strax áhugasamur um málefni
þess, enda var hann kosinn gjaldkeri árið
eftir og gegndi hann því starfi næstu 10
ár. Enda þótt Kári væri þá enginn reglu-
maður, gerðist hann helzti hvatamaður
þess að tekið yrði upp vínbindindi og varð
síðan öðrum til fyrirmyndar í þeim efnum
allt til dauðadags. Það kom einnig í hans
hlut að verða formaður félagsins 1952,
þegar það átti hvað erfiðast uppdráttar,
og var hann það næstu 5 ár, en baðst þá
undan kjöri. Mátti segja, að hann fylgdi
hverju málefni fram til sigurs, sem hann
barðist fyrir, og var hann enn starfandi í
félaginu, er hann féll skyndilega frá árið
1961.
Þann 4. júní 1950 minntist félagið 50
ára afmælis síns með veglegri samkomu.
Hafði slík afmælishátíð raunar lengi verið
á dagskrá, en menn ekki ætíð verið á eitt
sáttir um aldur félagsins. Var leitað álits
Bernharðs Stefánssonar, og munu rök
hans hafa ráðið úrslitum (sbr. frásögn
hans hér að framan).
Þegar ákveðið var að koma upp minn-
ingarlundi um Jónas Hallgrímsson árið
1952, afréð ungmennafélagið strax að
leggja þar árlega frarn nokkra vinnu og
hefur svo verið síðan. Sumarið 1957 var
haldin mikil hátíð í öxnadal í tilefni þess
að 150 ár voru liðin frá fæðingu Jónasar
Hallgrímssonar. Stóð U.M.F. öxndæla að
þeim hátíðahöldum ásamt U.M.S. Eyja-
fjarðar og Skógræktarfélagi Eyfirðinga.
Þar var U.M.F. öxndæla og öxnadals-
hi-eppi afhentur minningarlundurinn til
varðveizlu.
Svo sem hér er áður getið, var á fyrstu
árum ungmennafélaganna starfandi ung-
mennafélagasambandið „Kynning“, en það
leystist upp árið 1926. Hliðstæð starfsemi
hófst aftur 1952 þegar U.M.F. Möðruvalla-
sóknar bauð heim öðrum ungmennafélög-
um í Möðravallaklausturprestakalla. Þann-
ig hafði U.M.F. Öxndæla slík „heimboð“
sumarið 1956 og 1960, en það eru þessar
samkomur venjulega kallaðar. 1 „heimboð-
inu“ 1960 minntist félagið 60 ára afmælis
16
SKINFAX I