Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1962, Side 19

Skinfaxi - 01.11.1962, Side 19
séð lítur út eins og sultardropi! . .. 1 þriðja lagi forðast Vilar að tilgreina svo flókið hugtak sem smekkur er. Ef rétt er skilið, þá er það auglýst stefna þjóðleik- hússins, sú stefna sem það 'hefur líklega reynt að fylgja í góðri meiningu (en með öfugum árangri!), ,,að bæta smekkinn“. En líkt er með „smekkinn“ hjá Þjóðleik- húsinu og þekkinguna hjá Vilar: nánari skýringu vantar. Hins vegar getur engum dulizt, að Vilar hefur til að bera mikla þekk- ingu, en hvort þjóðleikhússtjóri hefur góð- an smekk er ákaflega mikið vafamál. Ef til vill er það markmiðið með starfsemi Þjóðleikhússins að bæta smekkinn hjá honum sjálfum! ... Síðast en ekki sízt tekur hinn merki franski leikstjóri það skýrt fram, að hann vill ná til „sem flestra“ með list sinni. Ágæti hvers leikstjóra er nefnilega ekki sízt fólgið í því, hve vel honum tekst að gera margbrotna atburðarás skiljanlega allri alþýðu manna. Til þess þarf hann ekki síður að þekkja áhorfendurna og þörf þeirra (hvað það er, sem á þá stríðir), en efni leikritanna, sem hann setur á svið, hugmyndaheim þeirra og veruleikann, sem þau eru sprottin úr. Hinn almenni smekk- ur er „laus í sér“, hann breytist eins og kvenfatatízkan breytist: hvaða leikhús getur séð sóma sinn í því að eltast við tízku? Það er gömul og ný staðreynd (ekki er t. d. að sjá að aðsóknin að leikhúsi Vil- ars sé í rénun), að áhorfendur láta ekki bíða eftir sér þegar á sviðinu er talað um eitthvað, sem kemur lífi þeirra við. Leik- hús ætti miklu fremur að andæfa „smekknum“, heldur en að daðra við hann; með því móti ættu þau að geta skerpt skyn áhorfendanna. Leikstjóri, sem ekkert hef- ur fram að leggja frá sjálfum sér, býr ekki yfir neinum „boðskap“, sem hann þarf að flytja og hefur ekkert sérstakt viðhorf til almennra málefna, getur ef til vill með leikni sinni fengið áhorfendur til að gleyma sér stund og stund í sætum sínum, jafnvel svæft þá alveg, eða æst til hins ýtrasta, en hann getur ekki miðlað þeim neinni þekkingu. Þekkingin eða „boðskap- urinn“ í leikritinu, sem hann fer höndum um, gæti meira að segja ruglazt vegna skorts hans á skilningi. Því til að skilja þurfa menn að hafa einher sjónarmið. Gömlu leikritin er til að mynda ekki nóg að sýna „bara einhvern veginn“, það þarf að túlka þau á nýjan og nýjan hátt, í sam- ræmi við tímana, ef efni þeirra á ekki að fara fyrir ofan garð og neðan hjá áhorf- endum. Úrelt fyrirbæri (til dæmis sam- band auðugs bónda og örbjarga aðals- manns í George Dandin eftir Moliére), sem oft eru einungis úrelt á ytra borði (á öllum tímum eru menn, sem taka upp fyrir sig, og konur, sem giftast til fjár), þyrfti að setja í samband við eitthvert þekkt fyr- irbæri, í gegnum sýninguna mætti jafnvel láta skína í hliðstæður úr samtímanum, eða þau verður að túlka á einhvern hátt þannig að áhorfendur fái skilið þau og not- ið þeirra (Dandin þjáist!), — alveg eins og sjálfsagðir hlutir hins daglega lífs í nýju leikritunum þurfa að koma áhorfend- um ókunnuglega fyrir sjónir, að öðrum kosti taka þeir varla eftir þeim. Yfirleitt er það svo, að menn horfa á sjálfsagða hluti án þess að sjá þá .. . en hver er grind- in í lífi manna ef ekki einmitt þeir? Það hefur alltof oft borið við, þegar leikhús okkar hafa sýnt eitthvert höfuð- verk og áhorfendur neitað að koma, að for- SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.