Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1985, Síða 4

Skinfaxi - 01.08.1985, Síða 4
Iþróttahátíö HSK Aöalbjörg Hafsteinsdóttir Íþróttahátíð HSK var haldin 12.—14. júlí á Selfossvelli. Tókst hún í alla staði mjög vel, þó strekkingsvindur og kuldi hafi sett mark sitt á íþróttakeppnina á föstudag og laugardag. Um 320 keppendur voru skráð- ir til leiks í hinum ýmsu greinum frjálsíþrótta, frá 18 félögum. Nokkur forföll urðu vegna hey- skapar í þurrkinum, en það kom ekki að sök, því keppnin var hin skemmtilegasta, og þá sérstak- lega í yngri aldursflokkunum. Um 70 einkennisklæddir starfsmenn unnu frábært starf á þessu móti, og áttu ekki minnstan þátt í að skapa þá góðu stemmn- ingu sem ríkti á mótinu. Þá má ekki gleyma kókinu, pönnukök- unum og öllu fíneríinu sem konur úr Sambandi sunnlenskra kvenna Jón H. Sigurösson og Gísli Magnússon meö verölauna- skjölin. Ljósm. HSK. seldu í stóra tjaldinu. Skipulag allt og undirbúningur var að- standendum hátíðarinnar til sóma, svo og framkvæmdin. Á sunnudeginum vr hátíðar- dagskrá tileinkuð 75 ára afmæli HSK og ári æskunnar. Nokkrir bestu langhlauparar landsins kepptu í Jónshlaupinu, 5000 m hlaupi til heiðurs Jóni H. Sigurðs- syni hlaupara. Jón ræsti hlaupið og afhenti síðan sigurvegaranum, Jóni Diðrikssyni FH, farandbik- ar, gefin af K.Á. Selfossi. Guðmundur Kr. Jónsson, form. HSK, flutti stutt ávarp en afhenti síðan sérverðlaun móts- ins. Meðan á því stóð, fylktu keppendur liði inná vellinum, og röðuðu sér upp aftan við merki síns félags. Það var Umf. Selfoss sem sigr- aði í stigakeppni hinna eiginlegu þriggja móta; fullorðina, 15—18 ára og 14 ára og yngri. Birgitta Guðjónsdóttir Selfossi og Engilbert Olgeirsson Ingólfi voru stigahæstu einstaklingar í karla og kvenna flokki. Þeir Jón H. Sigurðsson og Gísli Magnús- son vallarstjóri voru heiðraðir sérstaklega fyrir góð störf. 4 fræknir júdókappar, undir forystu Bjarna Friðrikssonar bronsverðlaunahafa frá síðustu Olympíuleikum, sýndu júdó. Sterkasti maður í heimi, Jón Páll Sigmarsson, mætti í skotapilsi og sýndi ýmsar listir við mikinn fögnuð áhorfenda. Hástíðinni lauk svo með um 800 m löngu ÆSKUHLAUPI um götur bæjarins. Milli 150 og 200 krakkar hlupu og fengu öll viður- kenningu að loknu hlaupi. Var þetta hlaup góður endir á skemmtilegri hátíð. Engiibert og Birgitta voru stiga- hœst. Ljósm. HSK. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.