Skinfaxi - 01.08.1985, Page 9
Vestur spilar út laufi, austur
tekur tvo efstu og spilar þriðja
laufinu sem vestur trompar. Og
skilar spaða til baka.
Eins og fyrri daginn getur
sagnhafi einfaldlega veðjað á
tíguldrottninguna öðru hvoru
megin, og hugsanlega festir hann
hendur á aðalsbornu hári drottn-
ingarinnar, en — og það er jafn
líklegt — hann getur líka gripið í
tómt.
En það er sama hve bráðlátir
menn eru, allir myndu byrja á því
að taka trompin í þessu spili. Og
þá kemur sú merkilega staðreynd
í ljós að vestur hafði byrjað með
einspil. Þar með eru níu spil upp-
lýst á hendi austurs, fimm lauf og
fjögur hjörtu. Næsta skrefið er
að kanna spaðann, taka ás og
kóng og trompa spaða. Það er að
segja, ef sagnhafi hefur ekki verið
svo hirðulaus að henda „ónýtum“
spaðahundi úr borðinu í fjórða
hjartað. Það hefur verið afdrifa-
rík mistök, því þá væri engin leið
að ná fullkominni talningu á
austur. En segjum að sagnhafi
hafi af framsýni sinni geymt
spaðahundinn, sem en aldeilis
ekki ónýtt spil. Þá skýrist skipt-
ingin fullkomlega þegar þriðji
spaðinn er trompaður. í þessu til-
felli átti austur þrjá spaða, og þar
af leiðandi aðeins einn tígul:
Norður
s K63
Vestur h ÁD3 t ÁG105 Austur
s D9542 1 862 s G107
h 7 Suður h 10854
t D9642 t 8
I 54 s Á8 1 ÁKG109
h KG962 4t K73 1 D73
Ef spaðaþristinum hefði verið
fórnað á altari kæruleysisins,
gæti sagnhafi ekki komist að því
hvort austur ætti 3—1 eða 2—2 í
spaða og tígli. Hann þyrfti því að
hitta á hvort hann ætlaði að spila
vestur upp á tíguldrottninguna
eða reyna að taka hana aðra fyrir
aftan. Og ágiskun er hlutur sem
menn eiga að reyna að forðast í
Hausana
a
sinn
staö
34. Sambandsþing
UMFÍ
34. Sambandsþing UMFÍ verð-
ur haldið að Flúðum dagana
6.—8. sept. n.k. Hefst þingið á
föstudagskvöldinu 6. september
kl. 20.30 á laugardagsmorgninum
verður farið í Þrastaskóg og þing-
fulltrúum sýndur skógurinn. Þar
verður síðan snæddur hádegis-
verður og að honum loknum
verður þinghaldi haldið áfram,
um kvöldið er fyrirhuguð kvöld-
vaka. Áætlað er að þinginu ljúki
um miðjan dag á sunnudag. Þing-
fulltrúar eru minntir á að gleyma
ekki svefnpokanum heima.
□
■
iii
i ■a n .p-—
SKINFAXI
Flúöir þar sem þingiö veröur haldiö.
9