Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1985, Page 15

Skinfaxi - 01.08.1985, Page 15
23. Rxg7! He5! Besti varnarmöguleikinn. Verkefni fyrir lesandann: Hvað gerist eftir 23.-Kxg7? Lausn í lok þáttarins. 24. Rf5! Auðvitað tekur hann ekki hrókinn. Biskupinn er margfalt sterkari. 24.-HÍ8 25.Dd2 Kh8 26.Dh6 Hf7 27. Hael Bb5 28.c4! Skemmtileg brella, sem ginnir biskupinn frá því að valda e8-reit- inn. 28. -Bxc4 29.Hxe5 Rxe5 30.Hel Og svartur gafst upp. Riddar- inn getur sig hvergi hrært vegna máthótunar á e8 og ef 30.-Rfg4 er einfaldast 31.Hxe5 Rxe5 32.De6 Kg8 33.Bxe5 og riddaraskák á h6 vofir yfir. Þetta var vel tefld skák af hálfu Shorts en skákir mótsins voru þó ekki allar af sama gæðaflokki. Ótrúlegir afleikir á stundum! Afleikur mótsins kom í næst- síðustu umferð í skák Jansa (hvítt) og Rodriguez (svart). Er þessi staða kom upp eftir 31. leik hvíts Dd6-e6 voru báðir keppend- ur í miklu tímahraki. Það afsakar samt ekki það sem á eftir kom. . . 31.-d4?? Svartur veður í þeirri villu, að eftir 32.Dxc4 geti hann leikið 32.- Hfl mát. En hrókurinn er áfram leppur! Jansa treysti andstæðingnum og lék. . . 32. De8 + ?? Hf8 33.Dh5 e4 34.g6 Hf2 35.Dh7+ Kf8 36.Be7+ Ke8! og eftir þennan leik gafst hann upp. í stað 31.-d4?? frá stöðumynd- inni, var 31.-Dc6! mun sterkara. Þá er hvítur mát ef hann drepur drottninguna og eftir 32.Dg4 e4 33. Hdl Hf2 34.Hcl Db6 35.b3 Dd4 36.De6+ Kh7 37.g6+ Kh6 vinnur svartur. Og víkjum aftur að skák Short og Van der Wiel. Ef svartur leikur 31.-Kxg7? kemur 32.Dg4+ Kf7 33.Bxf6 Rxf6 34.Hxf6 + ! Kxf6 35.Hfl+ Ke7 36.Dh4+! Kd6 37.Hf6+ og nú 37.-Kc5 38.Db4 mát, eða 37.-Kd7 38.Bh3+ hvítur á þrjá menn eftir en allir sækja þeir að kónginum. Heimsmeistaramót öldunga Heimsmeistaramót öldunga í frjálsum íþróttum var haldið í Róm dagana 22. til 30. júní. Þar voru tveir keppendur frá Islandi, þeir Ólafur Unnsteinsson HSK og Guðmundur Hallgrímsson UÍA, og stóðu þeir sig með mikl- um ágætum. Ólafur keppti í kúlu- varpi og kringlukasti, varð hann í 12. sæti í kúluvarpi og varpaði 11,65 m. í kringlukastinu kastaði hann 35,14 m. og varð í 11. sæti. Guðmundur varð 32. í 100 m. hlaupi á 13,05 sek. í 200 m. hlaupi varð hann í 29. sæti á 25,83 sek. hann varð einnig í 29. sæti í 400 m. hlaupi á 57,07 sek. Er þetta mjög góð frammistaða hjá þeim félögum þrátt fyrir litla aðstoð heimafyrir vegna þessarar ferðar. Ólafur Unnsteinsson í kúluvarpskeppninni í Róm. Ljósm. DV. SKINFAXI 15

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.