Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 18

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 18
erindi á þessari leið annað en að sjá sig um og að lengja með þessu móti sam- veru okkar. Urðum við fleiri saman og var þetta hin ágætasta ferð. Hermann dvaldi nokkra daga heima i Skógum. Þetta vari sláttarbyrjun og veður góð. Það voru ánægjulegir dagar. Næsta vetur seint gerðist annað ævintýri, er mér auðnaðist að skreppa austur að Eiðum til þess einkum að hitta vini og kunningja.. Þann vetur gerði Asmundur skólastjóri tilraun með framhaldsdeild i skólanum. Voru þar 6 nemendur og allir bekkjarbræð- ur minirfrá fyrra vetri. Hermann var einn þeirra. Hafði þá verið byggt við skólahúsið og var nú rýmra og betur búið að nemendum en áður. Þessir 6 þriðjubekkingar bjuggu saman i stóru herbergi, sem nefnt var Háafell. Her- mann sá um að ég fengi að búa þar, meðanég dveldi á staðnum, Þeir dag- ar voru fljótir að liða. ,,Að heilsast og kveðjast, það er lifs- ins saga”. Það liðu fullir tveir tugir ára áður en við Hermann hittumst næst. Það var á Akureyri. Báðir áttu þá fertugsaldurinn að baki. Margt hafði breytzt. Við höfðum gengið ólfk- ar götur. Ég var barnakennari en hann bryti á millilandaskipi, Hvassafelli, fyrsta skipi SIS. Það átti heimahöfn á Akureyri og þvi fluttist Hermann þangað. Og nú var hann ekki einn, hann átti konu og fjögur börn. Kona hans (en hún lifir mann sinn) er Sigriður dóttir hins þjóðkunna bónda og fræðimanns, Gisla Helgasonar i Skógargerði i Fellum og konu hans, Dagnýjar Pálsdóttur, ættaðri úr Vestur-Skaftafellssýslu. Hvað hafði drifið á daga Hermanns frá þvi við skildum á Eiðum 1927? Það kom mér ekki á óvart né öðrum, sem höfðu séð handtök hans og nákvæmni við eldhússtörfin á Eiðum, er það fréttist að hann hefði lært matreiðslu og væri orðinn ,,kokkur” á varðskipi og si'ðar á strandferðaskipunum Súð- inni og Esju. Ég minnist þess, að ég hugsaði sem svo, að ekki mundu þeir þurfa að kvarta undan kokknum á þessum skipum. Störf þessi hafði Hermann i nokkur ár. Hann er þá enn einhleypur maður og faðir hans á lifi en hann andaðist snemma á árinu 1933, og siðari kona hans, Jakobina, hafði dáið nokkrum mánuðum fyrr. Þau skildu eftir sig 3 börn um og innan við 10 ára aldur. Hermann brá við skjótt kom til Seyðis- fjarðar og settist að i gamla húsinu, Elverhöj, þar sem hann var uppalinn, og tókst með aðstoð systur sinnar eða systra að halda þar heimili og sjá um uppeldi háfsystkina sinna. Enn er hann ókvæntur. En hver var nú at- vinnan? Hann stofnar hótel. Þar kom honum að góðu liði kunnátta i matar- gerð, en þrifnaður, snyrtileg umgengni og prúðmannleg framkoma var honum allt i blóð borið. En það mun hótelhaldara allt nauðsynlegt. Þau Sigriður giftust 1937. Þrem ár- um seinna varð eins konar bylting á Seyðisfirði eins og raunar á íslandi öllu. Ég á við hernám Breta hér á landi. Þá hætti Hermann hótel- rekstrinum, en Bretarnir fengu húsið leigt til sinna þarfa. Hvað var þá til ráða? Það er eins og þessum manni hafi verið flestir vegir færir. Nú gerist hann lögregluþjónn á Seyðisfirði og siðar tollvörður bæði þar og i Nes- kaupstað. Og sem tollvörður gengur hann um borð i Hvassafell og stendur þá svo á, að það vantar bryta á skipið. Það er kannski ekki mjög algengt, að tollvörður sé heppilegasti maðurinn i þá stöðu, en hér féll allt saman. Hver skyldi vera hæfari til þess að vera bryti á skipinu en lærður og vanur matreiðslumaður og hótelhaldari. Hvort sem þetta hefur verið rætt meir eða minna, réðst Hermann nú til þessa starfsog þess vegna hittumst við núa á Akureyri. Þangað fluttust þau hjónin 1948 og áttu þar heima i 10 ár. Þá lá leið þeirra til Reykjavikur. Hermann hélt áfram að vera bryti á skipum SIS en ekki alltaf þeim sömu. En þar kom að hann treystist ekki til að halda þvi áfram vegna heilsubilunar. Þá gerðist hann bryti við elliheimilið Hrafnistu hér i Reykjavik og gegndi þvi starfi unz yfir iauk En eitt sinn á árunum milli 1960 og ’70 tók hann að sér for- stöðu félagsheimilisins á Hvolsvelli, sem rekið var sem hótel, um tveggja ára skeið. Var hann beðinn um þetta og fékk þá leyfi hjá húsbændum sínum á Skipadeild SIS, en tók aftur við hinu fyrra starfi að loknum þessum tveim árum. Hjónin fluttust austur með fjöl- skylduna, og er þau sneru til baka, varð ein dóttirin eftir á Hvolsvelli og býr þar enn. Hér hefur verið leitazt við að draga upp ævimynd Hermanns Hermanns- sonar grófum dráttum. En íslending- um finnst það léleg eftirmæli, sé upp- runans að engu getið. Ætt Hermanns reyni ég ekki að rekja, en foreldrar hans voru Hehmann Þorsteinsson og Jóhanna Stefánsdóttir. Þau voru eitt- hvað skyld, bæði af svokallaðri Njarð- vikurætt yngri, Afi og amma Her- manns Þorsteinssonar voru Þorsteinn Ólafsson og Sigriður Eiriksdóttir, köll- uð Otsveitarsól. Hermann lauk prófi frá Möðruvallaskóla 1896 tvítugur að aldri. 1 20ára minningarriti skólans er hann sagður skósmiður i Stavanger í Noregi. Heim kominn til Seyðisfjarðar gerist hann skósmiður þar, en setur siðar upp verzlun og fæst við sitthvað fleira. Fyrri konu sina, móður Her- manns yngra, missti hann 1918. Þau eignuðust7 börn og voru flest ung, er hún andaðist. Eins og áður er getið kvæntisthann aftur, Jakobinu Jakobs- dóttur. Hana kann ég ekki að ættfæra. Þeim varð fjögurra barna auðið, en eitt dó kornungt. Sem kunnugt er, var Seyðisfjörður mikill uppgangsbær fyrir aldamótin siðustu og lengi bjó staðurinn að þeirri menningu, sem þá blómgaðist. Her- mann Hermansson ólst því upp i snyrtilegu menningarumhverfi. Hve mikil áhrif það hefur haft á mótun hans, er auðvitað ekki hægt að segja, en umhverfið setur þó alltaf svip á þá, sem það fóstrar. En Hermann endur- galt það aftur, þegar hann var orðinn þess megnugur. Mér skilst á kunnug- um, að hann hafi tekið mjög virkan þátt i flestu þvi, er til menningar horfði á þeim árum, sem hann bjó þar fulltiða maður. Eitt vil ég sérstaklega nefna, af þvi að mér finnst það i svo miklu samræmi við eðli hans allt. Er hann var i lögreglunni, kom hann þeirri venju á við jarðarfarir, að lög- reglumaður gekk á undan likfylgdinni ogsá um að ekki væru hindrariir i vegi, eða sem sagt að öruggt væri, að allt færivelfram. Þá veitég, að hann vann oft að leiktjaldamálningu og fleiru i sambandi við leiksýningar. Þess hefur verið getið, að þau Her- mann og Sigriður áttu fjögur börn, er þau settust að á Akureyri 1948. Siðar bættust þrjú við, svo að börn þeirra eru alls sjö. En til viðbótar má raunar telja dreng, son Dagnýjar dóttur þeirra, sem þau ólu upp og er enn i heimilinu, yngstur i hópnum. Börn Hermanns og Sigriðar eru þessi i réttri aldursröð: Jóhann Smári, Gigja, Dagný, Hermann, Gisli, Ragnheiður og Stefán. En Hermann hafði eignazt dóttur áður en hann kvæntist, svo að börn hans eru þvi átta alls. Þessi dóttir hans heitir Jakobina og er nú búsett i Hafnarfirði. Móðir hennar heitir Val- gerður Hallgrimsdóttir og er frá Skálanesi við Seyðisfjörð. Mér virðist systkinin öll vera sér- staklega geðug og mennileg. Þau virð- ast hafa erft gott úr báðum ættum og er það vel. En þess vil ég geta, að eðlilega hefur móðirin haft meiri veg og vanda af uppeldinu, einkum þeirra yngri, þar sem faðiririn var langdvölum burtu. Og enn er heimilið i Asparfelli 2 undir hennar stjórn og opið þeim börnum og barnabörnum, sem vilja eða þurfa að hafa þar skjól og vernd. Ég bíö þeim öilurn Dlessunar. 3. febr. Eirikur Stefánsson frá Skógum 18 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.