Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Blaðsíða 22

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Blaðsíða 22
Björn Jóhannesson Hinn 1. febrúar sl. voru liöin 100 ár frá fæöingu Björns Jóhannessonar bónda aö Nolli i Grýtubakkahreppi. Viö þessi timamót skal hér minnzt helstu æviatriöa þessa mæta manns. Björn fæddist aö Nolli 1. febrúar 1877, sonur hjónanna Jóhannesar Guömundssonar bónda þar og Guö- bjargar konu hans Björnsdóttur frá Pálsgeröi. Þau Jóhannes og Guöbjörg munu hafa búiö viö mikla fátækt eins og tltt var um bændafólk á þeim tíma. Þau eignuöust 14 börn, 5 dóu i æsku, en 9 komust til manns og uröu myndar- og dugnaðarfólk, náöu flest háum aldri og erfrá þeim kominn mikill ættbálkur. Systkini Björns sem upp komust voru: Jóhanna húsfreyja á Grund i Höföa- hverfi 1875-1955. Lilja húsfreyja á Noröfirði 1876-1957. Hermundur smiöur á Akureyri 1879- 1953. Auöur húsfreyja á Isafirði, siöar I Reykjavik 1882-1968. Kristinn sjómaöur á Akureyri 1884- 1945. Sesselja húsfreyja á Noröfiröi 1889- 1975. Sigurður sjómaöur á Akureyri 1891- 1926. Kristin húsfreyja á Akureyri 1893- 1957. Björn fór ungur til sjós og var bæöi á handfæra- og hákarlaskipum. Var lengi á oröi hve fengsæll fiskimaöur hann var. Þegar faðir hans andaöist, áriö 1901, stóö hann fyrir búi á Nolli I eitt ár með móður sinni og yngri syst- kinum, en tók siöan alfariö viö búinu áriö 1905 ásamt eiginkonu sinni Onnu Pálsdóttur frá Skeri á Látraströnd, en þau giftust 28. janúar 1903. Þeim Birni og önnu búnaðist vel þótt rýr væru efnin I byrjun, enda viöbrugöiö dugnaöi þeirra og hagsýni. Björn var hinn mesti hagleiksmaður og lagöi þvi gjörva hönd á margt með búskapnum. Auk þess að byggja og laga sín eigin hús veröa ekki talin dagsverkin, sem hann miðlaöi ná- grönnum sinum og sveitungum viö lagfæringu og uppbyggingu. Sjóinn stundaöi hann einnig, enda var Nollar- vikin lengi fengsæl veiöistöö. Sjálfur smiðaði hann báta sina og aöra aöstöðu i landi til aö nýta aflann. Margur góöur fengur kom þar á land, bæöi þorskur, koli og sild, meöan Eyjafjörður var fullur af lifi og slld fyrir öllu Noröurlandi. Menn komu úr nærsveitum og fengu lánaöan bát og veiðarfæri á Nolli og drógu oft góöan afla til búa sinna. Um margra ára skeiö stundaöi Björn síldveiöar seinni hluta sumars I lagnet á Nollarvlkinni og saltaði afla sinn i landi. Vann heimilisfólkið að þessu og vænkaðist viö þetta mjög hagur heimilisins. Um 1930 smiöaði Björn bát og setti I hann bensinvél. A þeim bát flutti hann fólk og varning aö og frá Svalbarös- eyri og Akureyri þar sem þá var ekki vegasamband nema um Fnjóskadal milli þessara staöa og Höhðahverfis. Ariö 1934 hóf hann mjólkurflutninga á bát sinum ti Mjólkursamlags KEA á Akureyri fyrir bændur i Höföahverfi. Hafði hann þessa flutninga á hendi I eitt ár, en þá tók við tengdasonur hans, Kári Baldursson, á stærri bát, enda jukust flutningarnir frá ári til árs. Stóðu þessir flutningar til ársins 1940. Segja má, aö á þessum árum væri Nollarvík aðalsamgöngumiöstöö ibúa Grýtubakkahrepps. Var þvi oft gest- kvæmtá Nolli. Ósjaldan komu hraktir ogvotir ferðalangar er illt var i sjó, en Anna sá um aö hafa jafnan heitt á könnunni eöa mat, svo og aö þurrka föt eöa lána þurr og hlý. Stundum gistu margir ef hriö, ill færö eöa myrkur hamlaöi för. Var þá stundum þröngt I Nollarbænum, en allt slikt var af þeim Birni og önnu talið sjálfsagt og velkomiö. Margir eru þeir, sem minnast þeirra hjóna meö hlýhug og þakklæti frá þessum árum. Björn tók mikinn þátt i kirkjulegu starfi. Var meöhjálpari I Laufáskirkju frá unga aldri meöan aldur og heilsa leyföi og i sóknarnefnd fjölda ára. Rækti hann þessi störf af samvizku- semi, enda einlægur trúmaður. Jafnframt þvi aö stunda sjóinn bátti Björn jörö sina, enda gaf bú hans góöan arö. Viöbrugöið var dugnaöi önnu viö öll störf úti sem inni, enda féll henni aldrei verk úr hendi. Sambúð þeirra hjóna var ástrík og farsæl. Þeim var 7 barna auöið og eru þau þessi: Sigriöur Þóra, gift Þorvaldi Arnasyni sjómanni á Arskógsströnd. Þau eru nú búsett á Akureyri. Kristin, gift Hauki Frimannssyni sjómanni á Arskógsströnd. Nú ekkja, búsett á Akureyri. Jóhannes Kristján, kvæntur Gyöu Jónsdótturfrá Akureyri. Ekkjumaður. Hefur verzlun á Hjalteyri. Guðbjörg, gift Kára Baldurssyni skipasmið á Akureyri. Hólmfriður Halldóra, gift Ingólfi Benediktssyni málara, Grenivik. Snæbjörn Armann, kvæntur Unni Stefánsdóttur frá Svarfaðardal. Bóndi á Nolli, fimmti ættliöur sem þar býr. Ingibjörg Birna, gift Theodór Gunnarssyni verzlunarmanni á Akureyri. Björn á Nolli var maður glaðlyndur, hrókur alls fagnaöar i góðum vina- hópi, en var þó aldrei með hávaöa eöa gambur. Hann naut þess aö greiöa götu samferöamanna sinna, drengur hinn beztiog hlaut aödáun og viröingu allra sem kynntust, enda hefur enginn 26 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.