Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Síða 25
Sigurður Matthíasson
Fæddur 24. sept-
ember 1924
Dáinn 17. júli 1977
Til moldar oss vigöi hiö mikla vald
Hvert mannslif, sem jöröin elur
Sem hafsjór er ris meö
fald viö fald
Þau falla en Guö þau telur
Þvi heiöloftið sjálft er
huliöstjald.
Sem hæöanna dýrö oss feliir.
Aöfaranótt sunnudagsins 17. júli sl.
andaöist hér i Reykjavík, Siguröur
Matthiasson kaupmaöur langt um ald-
ur fram eöa aöeins 52 ára aö aldri. Meö
Sigurði er genginn einn eftirminnileg-
asti og áhrifamesti persónuleiki Ur
kaupmannastétt, sem fram hefur
komiö á seinni árum og er hans sárt
saknað af öllum, sem einhver kynni
höfðu af honum bæði innan stéttar
hans og utan.
Sigurður Hinrik Matthiasson var
fæddur i Reykjavik 24. september
1924, kjörsonur hjónanna Guðrtlnar
Astu Guömundsdóttur (f. 10/10 1898, d.
24/4 1975) og Matthiasar Jóns Sigurös-
sonar sjómanns (f. 20/2 1896 d. 12/8
1973) Um fjögurra ára aldur fluttist
Sigurður með foreldrum sinum til
Akraness og þótti alla tið vænt um
þannstaöog vildi veg hans sem mest-
an. Minntist hann oft veru sinnar i
knattspyrnu-og skátafélagi á staönum
og uröu margir af þeim piltum sem
hann ólst upp meö þar, hans beztu og
kærustu vinir alla tiö. Kom þar fram
tryggð hans og meðfæddur hæfileiki til
þess aö laöa aö sér fólk, en þaö átti
hann mjög hægt með og var vina- og
kunningjahópur hans stærri en al-
mennt gerist.
A Akranesi stundaöi hann alla al-
genga vinnu, svo sem titt var um pilta
á þeim árum eða þar til Sveinn Guö-
mundsson kaupfélagsstjóri hjá Kaup-
félagi S. Borgfiröinga kom að máli við
hann og fékk hann eftir nokkra eftir-
gangsmuni til þess aö hefja störf hjá
félaginu. En þar með var framtið hans
ráðim Upp frá þvi helgaöi hann alla
starfskrafta sina verzlun og viðskipt-
um og á þeim vettvangi naut hann sin
til fulls, enda þótt segja megi að fá
muni vera þau störf sem Siguröur
heföi ekki leyst af hendi með hinni
mestu prýöi svo þróttmikill og ihugull
sem hann reyndist i hverju þvi, sem
hann tók sér fyrir hendur.
Hvaöan Sigurði var kaupmennkan i
blóð borin, sem raun reyndist er mér
ekki kunnugt en tveir móðurbræður
hand stunduðu kaupsýslustörf meö
miklum ágætum, en það voru þeir Jas-
onSigurðsson kaupmaöur á Framnes-
vegi 19 siðar i Efstasundi 27 og Dag-
bjartur Sigurðsson kaupmaður i verzl-
uninni Höfn við Vesturgötu.
Frá Akranesi lá leið Sigurðar til
Reykjavikur árið 1944, en þar vinnur
hann verzlunarstörf hjá öðrum þar til
hann kaupir verzlunina Vfsi að Fjöln-
isvegi 2 af Sigurbirni Þorkelssyni og
fleirum árið 1951 og hefur starf sitt
sem sjálfstæður kaupmaður og breytir
nafninu i verzlunin Viðir. Með útsjón-
arsemi og þrotlaustri vinnu blómgast
þetta fyrirtæki jafnt og þétt og á árun-
um 1963-’65 reisir hann verzlunarhús
að Starmýri 2 og flytur verzlunina
þangað. A þessum tima vaxa synirnir
tveir Matthias og Eirikur úr grasi og
taka æ rikari þátt i verzlunarrekstrinj-
um. 1 ársbyrjun 1976 kaupa þeir feðgar
verzlun Silla og Valda i Austurstræti
17og hafa rekið hana af sinum alkunna
dugnaði og atorku ásamt verzluninni i
Starmýriundir Viðisnafninu, sem þeg-
arer orðið vel þekkt meöal reykviskra
neytenda, en einnig um land allt.
Þrátt fyrir umsvif Sigurðar i verzl-
unarrekstrinum tekur hann virkan
þátt i uppbyggingu samtaka kaup-
manna, bæði á hinu faglega sem á hinu
hagsmunalega sviði. Munaði um
framlag hans á þeim sviöum sem öör
um og munu fá ráð hafa verið ráðin,
þannig að ekki væri leitað umsagnar
hans um hvernig skyldi að staðið..
Þannig átti hann rikan þátt i stofnun
Kaupmannasamtaka íslands, sem áð-
ur hétu Samtök smásöluverzlana.
Einnig studdi hann af alefli stofnun
Verzlunarsparisjóðsins nú Verzlunar-
banka Islands h.f. og lét sér ætið mjög
annt um vöxt hans og viðgang. Þá var
hann einn af forgöngumönnum að
stofnun heildsölufyrirtækis i eigu
kaupmanna, Matkaups h.f. og var
hann stjórnarformaður i þvi félagi, er
hann lézt. Margt mætti rita um störf
Sigurðar fyrir Matkaup h.f. sem bæði
voru mikil og farsæl, en á engan tel ég
hallaö, þóttsagtsé, að hann hafi verið
sú kjölfesta,er aldrei haggaðist, ef um
hagsmuni eða framtið þess félags var
að ræða, og óhagganlegastur þá mest
á reyndi. Sigurður tók einnig þátt i
stofnun kjötvinnslu i eigu kaupmanna,
Búrfells h.f. og tók hann lifandi þátt i
uppbyggingu þess og rekstri, enda þótt
hann léti öðrum eftir aö leiða það.
Frumlegur og sifellt ihugandi hvað
stétt sinni mætti verða að liöi leitaði
hann leiða til þess að efla hana til virð-
ingar og áhrifa i atvinnulifi þjóðarinn-
ar, svo sem hann taldi henni bera, þvi
honum var ljóst, að verzlun er nauðsyn
og hversem að henni vinnur af alúð og
kostgæfni, vinnur þjóð sinni og sam-
borgurum vel.
Enda þótt Siguröur væri hlédrægur
og þaö að minu áliti og margra ann-
arra um of.komsthann ekki hjá þvi að
vera kosinn i trúnaðarstöður fyrir fé-
lög og samtök kaupmanna. Þannig sat
hann i mörg ár i framkvæmdastjórn
Kaupmannasamtaka Islands, sat i
stjórn Lifeyrissjóðs verzlunarmanna
og varamaður i bankaráöi Verzlunar-
banka Islands h.f., er hann lézt. 1 fleiri
stöðum og embættum hefði hann getað
setiö í, en meðfædd hlédrægni bannaöi
honum að færast meira i fang, enda
islendingaþættir
29