Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Qupperneq 27

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Qupperneq 27
Guðjón Bj. Guðlaugsson F. 4. ágúst 1906 D. 21. marz 1977 „Vinn þú meöan dagur er,þvi nóttin kemur þá enginn getur unnið”. Ljóst mátti öllum vera, er Guöjón þekktu, aö slik var hans óbrigöula lifsstefna. Aðeins 10 ára gengur hann I barna- stúku þar vestra og hvikar aldrei frá þeirri hugsjón ævilangt. Guðjón bar nafn frænda sins, er ver- iö haföi forustumaður i héraöi og al- þingismaöur og mér skilst aö móöir hans hafi einnig veriö sterkur per- sónuleiki sem ekki hafi beðið hvern sem var að leiða sig i einu eöa neinu. Ekki er ólíklegt að þetta allt hafi haft sterk mótunaráhrif á drenginn og hinir eldheitu baráttumenn eins og Helgi Sveinsson bankastj. og Vilmundur læknir oröið þess valdandi að hann setti sér svo sterkar lifsstefnulinur sem reynd varö, aö reyna heldur aö vera leiöandi annarra, en láta leiöa sig blindan. Likama og sál skyldi hann rækta svo sem unnt væri, en hart var þá i ári eins og þetta litla ljóö hans sýnir, er hann kom hingað frá eins vetrar námi á Hvitarbakka: Minn háskóli var kreppa og litið vinnuval þvl varð ég oft aö hlma niöri á Eyri. Þaö þykir kannski barlómur og bölvað eymdatal, en bitur reynsla, . og hana þekktu fleiri. Ungur mun Guöjón hafa numið sund vestur á Reykjanesi er hann iðkaöi siöan alla tiö, var og um skeið bað- vörður viö Skerjafjörðinn. Aldrei kunnihannaö hlifa sjálfum sér, og þar nutu aörir þeirrar sterku fyrirmyndar, er hann hikaöi ekki viö löng sund i köldum sjóeöa neinar æfingartil aö ná settum mörkum, ekki aöeins i Viöeyj- arsundinu sem hann var heiðraður fyrir 1953, heldur mörgum öðrum og viö margan vanbúnaö er nú mundi kallað vera. Þá nær fimmtugur. Engin hætta var á þvi að Guðjón léti neinn leiða sig úti þann meinleysislega leik, eins og það var oft orðaö, um reyking- ar. Þar skyldi hann og vera fyrirmynd annarra, og geröist harður baráttu- maður Krabbameinsfélagsins móti reykingum og þótti þar ekki myrkur i máli um þær hættur báðar, áfengið og tóbakið. Hann átti lika þvi láni aö fagna, aö öll fjölskyldan stóð saman f þvi sem ööru, og vera umvafinn umhyggju sinnar góöu konu og allra sinna, er þrek og heilsa fóru aö bila. Kynni min af Guöjóni hófust ekki fyrr en ég kom i st. Framtiðina 1961. Þar gegndi Guöjón ýmsum embættum var m.a. æðstit., ritari, gjaldkeri ofl. ofl. og nú siöast fjármálaritari. Ætiö var Guöjón vakandi á verðin- um og gotttil hans aö leita til starfa á mörgum sviðum. Þaö munaði um hann við bindindis- mótin. Þeir,sem mest hafa unnið við undir- búning mótanna og framkvæmd þeirra, hafa gerst reynt hans góöu samvinnu bæöi sem smiös og til hvers er var á nótt sem degi bæði aö Húsa- felli og Galtalæk.'Slikar gleðistundir hjápaði hann lika aö endurlifa, er hann haföi fléttaö endurminningarnar i gamanbragi, og flutti á skemmti- kvöldum. Guðjón taldi ekki eftir sér neitt það er til heilla gæti verið hugsjóninni um fyrirbyggjandi starf, eins og það aö búa sem bezt i haginn til þess aö sem flestir gætu lært að skemmta sér án eiturlyfja og eiga aöeins gleöilegar minningar þar fríT. Margt af slnum og annarra ljóöum, gamni og alvöru, varðveitti hann i myndarlegri bók stúkunnar, og mun margt af þvi hvergi annarsstaðar aö finna. Eins og hann hafði bætt viö sundnám sittmeö virku starfi i K.R. bætti hann lika við sitt bóknám meö þátttöku I Námsfl. Rvikur. Þaö nýtti hann lika vel i þágu I.O.G.T. var sfvakandi til sóknar og varnar og siöasta grein hans, „ViðReykjavíkurbarinn”, kom i Timanum tveim dögum eftir aö hann var allur og varö m.a. sú kveikja, aö Timinn birti næsta dag á heilsiöu þing- ræðu Vilmundar læknis frá 1932: „Ahrif öldrykkju á áfengisneyzlu”. A þessa ræöu haföi Guöjón áöur minnt i' stúkunni, og er hún enn vel þess virði aö vera lesin sem allra tima reynd bjórhættunnar. Auk félagsstarfanna reyndi ég oft hversu gott var til hans að leita ef ein- hverja smiöavinnu skorti þar sem ég var að störfum, hvort sem vélavinnu þurfti við, eöa vinnu úti i bæ. Allt heimilið sýndi samhug allrar fjölskyldunnar, hliföarlausa vinnu úti sem inni, reglusemi og myndarskap. Sumir láta sér a.m.k. nægja ,,að moka frá sinum eigin dyrum” en Guöjón sópaði gjarnan langt út á götu. Trúnaö i störfum mátti marka á þvi, aö áratugum saman innti Guöjón af hendi viðhaldsþjónustu fyrir sama fólk og fyrirtæki. Þar á verkstæðinu tók ávallt á móti manni eins og hlýr andblær glettni og tviræönisoröaleikur, gjarnast i ljóölin- um, rann saman við verkiö, létti lún- um höndum starfið.eins og mig rámar i eitt sinn við hálfgeröa fúaspýtu er hann bar saman viö sinar hendur lún- ar-og bætti svo viö: „Ég yrki mitt ljóð i ónýtt tré, sem eins og ég sjálfur fún- ar”. , Margar bjartar bernskuminningar atti Guðjón vestan frá „Djúpi”, og væri eitt kvæöa hans um þann lands- kunna staö öshliöina veröugt aö kom- ast lengra en i handskrift niöur i skúffu, þar sem, leiöin þar er rakin með tugum örnefha, sem hann taldi þó vanta nokkuð i en honum entist ekki þrek né timi, eins og hann sagöi: 7 ^ A •f islendingaþættir 31

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.