Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Síða 28

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Síða 28
Bilað þrekið, farið fjör, fer að halla degi. Slitin brynja, brotinn hjör, barist get ég eigi. Ekki hafði hann samt látið svartsýni ná tökum á sér þó snjóþyngra væri en nú, er hann eitt sinn kvað: Þö að Is og fannafans flestum þyngdi sporið, syngjum innl sálu manns sumardýrð og vorið Og: Vetrarneyðin dökka dvln dimman eyðist þétta. Söl i heiði skært mér skin, skýrist leiðin tétta. Guðjón vandist sjómennsku frá barndómi og gerði glögglega mun á að renna upp að eða upp með vararvegg. Okkur landkröbbunum er þetta máske svolitið ljósara, eftia að hið erlenda skip rann ekki upp með vararveggn- um — bólverkinu þar eystra-, heldur að veggnum og á hann, til skaöa fyrir sjálft sig, bólverkið og önnur skip. Nú er Guðjón gerði sér alveg ljóst, hver sigling væri framundan, á þessi staka háns vel við (þó eldri sé): Renndi ég upp með vararvegg verða mun ég feginn. þegar ég að landi legg loksins hinumegin. Og gott er að ala svo bjartan hug sem þessi bendir til: Léttist róður, land ég sé er Ut ég yfir sundið. Fyrir stormi fæ ég hlé og fleytuna mlna bundið. Með þeirri öruggu trú er þessi staka hans bendir til mun hann hafa kvatt þérvistina um hádegisbilið mánud. 21. ínarz. Guðjón var i framkvæmdanefnd UMDÆMISSTOKUNNAR nr. 1. er staðið hefur fjrir bundindismótunum og má hún, við stúkusystkini hans í Framtiðinni og öll Góðtemplarareglan þakka hversu dyggilega hann vann meðan dagur entist. Ég votta fjöl- skyldu hans samhug og þakkir. 1 trú, von og kærleika. IngþórSigurbjs. t Guðjón Bj. Guðlaugsson húsasmiða- meistari er fallinn frí70 ára að aldri. Þegar Guðjón fluttist til Reykjavikur ungur maður, gekk hann fljótlega i KR og iðkaði sund, aðallega isjónum, eins og tiðkaðist mest á þeim árum. Nú sjáum við á bak elzta félaga sunddeildar KR. Guðjón var mjög félagslyndur maður og var honum sér- lega annt um velferð unga fólksins. Guðjón heitinn var algjör bindindis- maður alla ævi, enda var hann virkur starfskraftur t Góðtemplarareglunni. Guðjón var ætið traustur félagi hvar sem hann starfaði. Til marks um það vil ég minnast þess að árið 1959 þá er Guðjón var 53 ára gamall synti hann Viðeyjarsund í virðingarskyni við félag sitt KR, sem varð 60 ára á þvi ári. Þetta var mikið afrek, þar sem sjávarhitivar 8gráðurog synti Guðjón ósmurður. Sunddeild KR hefur verið gæfusöm að hafa átt Guðjón I slnum röðum. Guðjón var sannur heiðursmaður, drengur góður. Slðasta framlag Guðjóns til KR var ræða, sem hann flutti á siðasta aðal- fundi KR, sem haldinn var aðeins 5 vikum fyrir andlát hans. Guðjónimæltist vel og bar ræðan þvl vitni hve góðan hug hann bar til æsku- fólksins. Hann hreifst af góðu upp- byggingarstarfi félagsins og hvatti KR-inga til enn frekari dáða. Nú við andlát Guðjóns kveðjum við KR-ingar hann með þakklæti. Ekkju hans og fjölskyldu sendum við beztu kveðjur. Jón Otti Jónsson t Guðjón Bjarni Guðlaugsson lézt 21. marz sl. á Landspitalanum I Reykjavik. Það eru aðrir og færari menn en ég búnir að rekja ætt hans og uppruna hér i blöðum. Mig langar þó að flytja honum nokkur þakklætisorð vegna okkar persónukynna, þar sem við áttum ógleymanlega vináttu i sau- tján ár. Guðjón var hæfileikamaður á mörgum sviðum. Hann hafði húsa- smiðar fyrir sitt aðalstarf, en frí- stundum eyddi hann mest til ritstarfa, og ekki sizt til að hjálpa þeim, sem áttu við erfiðleika að striða. Bar þar hæst, að minu mati, bindindismálin, en hann var mikill bindindismaður bæði á áfengi og tóbak. Atti hann þvl láni að fagna, að sjá árangur síns mikla starfs á þvi sviði, þvl honum tókst að bjarga mörgum manninum úr greipum Bakkusar, án þess þó að minnast nokkurn tima a'alla þá fyrir- höfn sem þvi fylgdi. Við erfiðleika átti ég að striða, en hann sagði — engu þarftu að kviða. En þannig var, að ég missti heilsuna og varð að hætta I minu starfi og hafði fyrir þungu heimili að sjá. En Guðjón virtist eygj a björtu hliðarnar á hver ju vandamáli og átti ég honum mikið að þakka að afturfékk ég vinnu, er ég gat innt af hendi þrátt fyrir mína örorku. Sannleikurinn var sá, að til Guðjóns flutti ég gjarnan min vandamál, og ætið leið mér betur er ég fór frá Efsta- sundi 30, en þar bjó Guðjón með eftir- lifandi konu sinni, Ingibjörgu Waage. Lengi mætti skrifa um Guðjón og það sem hann fékk afrekað um ævi- dagana. Ég vil þakka að hafa átt þvl láni að fagna að kynnast Guðjóni, og bý ég að því sem ég á ólifað. Ég votta eftirlifandi eiginkonu, syni, tengdadóttur og barnabörnum dýpstu samúð mina. Ingólfur A. Jónsson t Það er ekki alltaf hlaupið að þvi að fá smið til að dyttá að gömlu húsi, en þegar við hjónin þurftum á þvi aö halda fyrir einum sjö árum vorum við svo heppin að fá til þess roskinn smið vestfirskan, Guðjón Bj. Guðlaugsson, og Eggert son hans, sem einnig er smiður.Okkurer enni minni hvað þeir feðgar gengu að verki sfnu af mikilli natni og hvað þeim var sýnt um að nýta lagfæra allt sem brúklegt var I stað þess að vilja fleygja á hauga og smiða nýtt. Það sem þurfti nauðsyn- lega endurnýjunar við eða umbóta var gert I sem bestu samræmi við það um- hverfi sem það átti heima I. Oftsinnis siðar þurftum viðaðleita til Guðjóns með ýmsar smlðar og við- gerðir og jafnvel eitt og annað sem kom ekki smiðum beinlínis við. Það brást ekki að hann fyndi smugu til að veita okkur úrlausn, kæmi á tilsettum tima og leysti verk sin af hendi á þann veg sem til var ætlast. Eggert sonur hans hvarf til annarra starfa, en eftir það var sonarsonur Guöjóns og nafni einatt með honum i för, afa sinum til aðstoðar. Þó að heilsan væri skert sið- ustu árin, setti Guðjón það ekki fyrir sig, heldur stundaði sina vinnu þegar hann hafði fótaferð á annað borð. Nú er Guðjón Bj. Guðlaugsson allur og lifsstarfi hans er lokið. Margar fjöl- skyldur i Reykjavik hafa séð á bak heimilissmið sinum, en minnast hans með þakklæti þegar þær s já eða taka á handaverkum hans, hvort sem það er stigi, handrið eða ofurlltill hurðar- húnn. En Guðjón smiður lætur eftir sig fleiraen handaverk sln. Hann varekki aðeins verkmaður sem kom og fór eftir að hann hafði lokiö sinu verki. Hann var athugull maður og íhugull, fróður og skrafhreifinn. Ungur hafði Guðjón flust að vestan til höfuðstaðarins, og hann lifði kjör verkamannsins á kreppuárunum með stopulli vinnu en stöðugri vinnuleit. Þá reynslu leit hann ekki einungis á sem personulegt böl, heldur skildi hana Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.