Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 29

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 29
félagslegum skilningi og skipaði sér við hlið þeirra manna sem börðust fyrir réttlátara samfélagi og fegurra mannlifi. Ég veit reyndar ekki hvort Guðjón heitinn tók mikinn þátt i starfi stjórnmálafélaga, en góðtemplara- reglan var einkanlega starfsvett- vangur hans á sviði félagsmála og skoðunum sinum og hugvekjum kom hann á framfæri i stuttum greinum og lesendabréfum i bjóðviljanum og fleiri blöðum. Hæfileiki Guðjóns til að skoða og skilja einstök fyrirbæri i stærra sam- hengi var tengdur skáldaneista sem i honum bjó, og hugsanir sinar setti hann stundum frami bundnu máli, bæði iljóöabálkum og tækifærisvisum, sem oft voru hnyttilega ortar i léttum dúr en með alvarlegum undirtón. Fróðleiksþætti skráði Guðjón einnig, m.a. um gömul vinnubrögð, en ekki er mér kunnugt um hvort hann kom sliku efni á framfæri nema þá i skrifuðum stúkublöðum. Með Guðjóni Bj. Guðlaugssyni er genginn góður fulltrúi þeirrar alþýðu- menningar sem íslendingar hafa löngum gumað af. Þrátt fyrir erfiða vinnu og langan vinnudag gaf hann sér tóm til að fræðast og hugsa, og hann var nógu menntur til þess að láta ekki neina vanmetakennd aftra sér frá þvi að miðla öðrum af reynslu sinni eöa skoðunum annað hvort i þröngum hópi ellegar á prenti. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið aö kynnast litillega sllkum samferða- manni sem Guðjón Bj. Guðlaugsson var, og ég bið fólki hans blessunar nú þegar hann hefur verið kvaddur. Stefán Karlsson t Tið og átakanleg hafa slysin verið á þessu sumri. Margt hjarta helsært við sviplegan missi ástvinar, og ekki of- sagt — þjóðin i heild harmilostin æ of- an I æ. — Eitt þessara hörmulegu slysa varð að kvöldi hins 17. júli, er tvær stúlkur i blóma lifs létu lifiö i bil- slysi vestur i Dölum — eins og alþjóð veit. — önnur þeirra, Guðný Maren Valsdóttir var aðeins 15 ára gömul, fædd á Akranesi hinn 28. september 1961 — og bar nafn ömmu sinnar. Hún átti til góðra aö telja. Foreldrar henn- ar eru Sigriður Garðarsdóttir og Valur Jónsson, húsasmiöur. Afar hennar og ömmur: Garöar Finnsson, kunnur skipstjóri og aflamaður og kona hans Guöný Maren Matthiasdóttir og Jón Guðmundsson, húsasmiðameistari frá Guðnabæá Akranesi og kona hans Sig- urrós Guðmundsdóttir. — Hún ólst upp i skjóli ástrikrar móður, við mikla um- hyggju ömmu sinnar og nöfnu og Garðars afa sins, en var frá bernsku löngum hjá föður sinum og Rósu ömmuá Akranesi.sem hún unni mjög, og föðursystkinum þar, svo og á Arn- bjargarlæk, hjá Guðrúnu, föðursystur sinni og hennar fjölskyldu. t þessum vina- og frændahópi átti hún sinar yndisstundir, og öllum þeim var hún einkar hugljúf og kær. Maren var mikið náttúrubarn og kunni vel að meta það, sem sveitin er og á með öllu sinu, gróðri og grösum og skepnunum — i fegurð sinni og frjálsræði, sem borgarlifiö hefur ekki upp á að bjóða. — Þó að árin hennar yrðu ekki mörg, lét hún eftir sig þau spor, sem af lýsir og ljómar, og varð- veitast i hugum og hjörtum ástvina hennar og vina. Þar er vissulega bjart yfir — enginn skuggi, ekkert ljótt, alt fagurt og tært. Maren var falleg stúlka, sviphrein — meö skæru augun sin, sem sögðu það, er inni fyrir bjó. Bliðlynd var hún og ástúöleg og tillits- söm, enda átti hún hlýjanstreng i allra brjósti, sem henni kynntust. Dul var hún nokkuð og bar ekki tilfinningar sinar á torg, eigi að siður glaðlynd og naut þess að vera i hópi jafnaldra sinna. Er nú stórt skarð opið og ófyllt i þeirra röðum — og sár tregi. En dýpst er sárið að sjálfsögðu i hjörtum ást- vina hennar, móður hennar og föður. —Við mannanna börn erum undur litil og vanmegna, ekki sizt þegar stóru og þungu höggin dynja yfir. Geislinn bjarti i sortanum mikla er okkar kristna trú, trúin, að góður Guð standi að baki, leiði lifið á hverri stund — og einnig i sárustu sporunum af visdómi sfnum. — Með hjartans þökk fyrir allt hið unaöslega, sem við eigum og geymum um okkar blessuðu Maren, brosið hennar, einlægnina og ástúðina, felum við hana handleiðslu fööur lifsins og Frelsarans. Guð græöi sár móður hennar og föður- og okkar allra, sem unnum henni, og þerri tárin höfgu, er er fylgja henni. Föðursystkynin. t Þann 21. þ.m. andaöist Guðjón Bj. Guðlaugsson á Borgarspitalanum. Hann hafði undan farin ár átt við van- heilsu að striða og af þeim sökum þarfnast með nokkru millibili sjúkra- hússvistar. Honum var fyllilega ljóst að hver ju stefndi en tók þvi með æöru- leysi og hugprýði. Guðjón fæddist i Unaðsdal á Snæ- fjallaströnd við Isafjarðardjúp 4. ágúst 1906 Foreldrar hans voru Þóra Guðmundsdóttir, Þorleifssonar, bónda i Unaðsdal, og Guðlaugur Bjarnason, Guðlaugssonar bróður Guðjóns Guð- laugssonar alþingismanns írá LjUfu- stöðum. Guðjón Bjarni bar nöfn Guðjóns afa- bróður sins frá Ljúfustöðum og B jarna föðurafa sins. Fullyrða má að hann hafi ekki kafnaö undir nafni, eins og stundum er sagt. Þegar Guðjón var tveggja ára gam- all fluttu foreldrar hans til Bolungar- víkur og ólst hann þar upp hjá þeim til ellefuára aldurs er þau fluttu til Hnifs- dals, og þar bjuggu þau unz þau árið 1929 fluttu til Reykjavikur. 1 Bolungarvik og Hnifsdal ólst Guð- jón upp og átti þar sin bernsku- og ung- dómsár. Á þessum árum rikti mikil fátækt i vestfirsku sjávarþorpunum, og var um algjöra örbirgð að ræöa á fjölda heimila. Heimili Guðjóns fór ekki varhluta af þessum erfiðleikum, en styrkar voru stoðir þess bæði i andlegum efnum og likamlegum, svo að ekki hlaust skip- brot af, þó að oft gæfi á bátinn og barn- ingurinn væri erfiður, við að hafa i sig og á. Strax i æsku lagði Guðjón sig fram um aö verða heimili foreldra sinna að liði og byrjaði þvi snemma aö vinna öll þau verk er til féllu og fáanleg voru fyrir unglinga en þar var einkum um aö ræða illa launaða stritvinnu, sem litið gaf I aöra hönd, og kallaði á lang- an vinnudag. En han var snemma harðger, dug- legur, samviskusamur og trúr hverju verki, sem hann gekk að, og entust þeir eiginleikar honum til æviloka. A uppvaxtarárum Guðjóns voru litl- ir möguleikar fátæku æskufólki til fra- mhaldsnáms. Barnaskólanámið mátti duga flestum, þar eö ungmennin urðu strax að hasla sér völl á vettvangi brauðstritsins til að hjálpa til við framfærslu heimilanna. Guðjón heppnaöist þóað stunda nám einn vetur við Hvitárbakkaskóla, sem þá laut stjórn hins merka skólamanns LUðviks Guðmundssonar. Taldi Guð- jón þann vetur hafa veriö sér mikils virði. Guðjón hóf nám i húsasmiði hér i Reykjavik hjá mági sinum Siguröi Waage, húsasmiðameistara, en með- an á námi stoð andaðist Siguröur, og lauk Guðjón þvi námi hjá Ingvari Þórðarsyni, húsasmiöameistara, jafn- hliða tilskildu iðnskóla námi 1940. Eftir þaö helgaði hann sig húsasmiði ásamt skyldum verkefnum, er hann starfaði aö fram til hinstu stundar. Guðjón var prýðilega greindurmað- ur og vel gerður. Skáldmæltur var hann I bezta lagi, og orti talsvert, þótt hann héldi þvi ekki mikið á loft. Vel tslendingaþættir 33 5 Q

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.