Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 31

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 31
séra Lárusar. Viö vorum þá i Súðavik og lögðum gjarnan á Breiðadalsheiði, þegár færð leyfði til vinamóta. Það spillti ekki gleðinni, ef Georg var þar staddur. Hann varð viðstöðulaust afi Svövu dóttur okkar eins og barnanna i Holti, og varð svo tengdur okkur að kom af sjálfu, að þegar við fluttum austur i Hreppa að hann skautst til okkar i helgarheimsóknir. Georg kom ævinlega færandi hendi, ekki aöeins með höfðinglegar og einstaklega smekklegar valdar gjafir, heldur flutti hann með sér gleðibrag og bjartsýni svo allt virtist auðveldara i hans ná- vist. Georg var greindur maöur og vellesinn. Hann hafði það gjarnan á takteinum sem hreif huga hans og þaö var margt og af ýmsu tagi. Hann hafði næma réttlætiskennd, sem var kveikj- an til ákveðinna pólitiskra skoðanna Georgs. Næmleiki hans fyrir þvi fagra ogfingerðá, varekki beinlinis það sem maður imyndar sér að einkenni gamla togarajaxla. En slikur var Georg. Hann lét ekki binda sig i formúlur samfélgsins. Hann var fagurkeri og erfiðismaður, heimsborgari og al- þýðumaður, sósialista og bjargálna- maður, en fyrst og fremst var hann einfaldlega Georg, sem leit á allt sem lifði og hrærðist með samúð og skiln- ingi og lýsti upp umhverfi sitt allt meö þessari dæmalaustu kýmnigáfu sem mölbraut alla þessa veggi, sem kyn- slóöir, stéttir og stöður byggja svo gjarnan i kringum sig. Aðrir kunna betur að rekja lifssögu Georgs. Við vitum reyndaraf frásögn- um hans, aö hann var löngum sjómað- ur og oft i siglingum. Siðustu árin var hann netagerðarmaður. Hann varð snemma ekkjumaöur og minntist ævinlega konu sinnar einstaklega fal- lega. Hann naut mjög barna sinna, tengda- og barnabarna og var þar áreiðanlega gagnkvæm hlýja. Georg var trúlega sáttur við lifið og hefur vafalaust gengiö glaöur inn i fögnuð Herra sins nú að leiðarlokum. Við hefðum sannarlega kosið að fá hann i heimsókn hingað til Blálands, hvar hann hefði kastað ljósi kýmni- gáfu sinnar og lifsreynslu á ýmis tilvik hér, sem hafa verið okkur til angurs og ama, þannig að þau hefðu oröið okkur skiljanleg og þess vegna þolanleg. Ævinlega mun Georg standa okkur skýrt fyrir hugskotssjónum með glettnisblik i auga og bros á vör þar var alltaf grunnt á grallaranum. En þar sjáum viö fyrst og fremst menn sem engin svik voru i. Þar var góður rriaður, Guð blessi minningu hans. Rannveig og Bernharður Guðmunds- son. Stefán Frið- riksson Fæddur 18.5. 1895, dáinn 27.10. 1976. Systurkveðja. Eg kveð þig eisku bróðir, svo klökk í hinsta sinn. t hugann koma liðnu æviárin. Eg dái þinar dyggðir, og drengskap vinur minn, um vangann streyma viðkvæm tregatárin. Og aftur verð ég ung, og við eigum saman spor, i átthögum á bak við fjöllin háu. Þar geymir sagan minningar um okkar æskuvon, og aftur blikar sól á iofti bláu. 1 fjarlægð var svo farið, það er gömui saga og ný, að finna færar leiðir til að iifa. Frumraunin var erfið, ég get ei neitað þvi, en allt við áttum hvort öðru að gefa. Fyrir þina fórnfýsi, færuin við þér þökk. Þú vildir koma undir búið rótum, þá faðirinn var horfinn og móðirin stóð klökk, með börnin ung á eyði vegamótum. 1 æsku varstu að vclja um glæsta frambraut, og veg scm skyldan býður fólki að berjast, þú valdir þann kost vænstan að veita þrek i þraut, þá einstæö móðir átti i vök að verjast. Svona gengur lifið, það liður smátt og smátt og limirnir þeir verða göngulúnir. En kærleikurinn mildar og gjörir lifið sátt, við drauma um dáð, sem eru löngu flúnir. Furðu löng var gangan, eftir þrekið okkar þraut, og þá var gott að eiga samleið beggja. Um þyrnum stráða göngustiga fótur minn oft hnaut og þinn var oröinn þreyttur upp að leggja. Og þegar likamsþrautirnar leggjast llfið á, er Ijúft að mega sofna hinzta blundinn. Að verða laus úr fjötrum, og losna kvölum frá, það veitir mildust viðkvæm dauðastundin. Vertu Guði falinn, hann fylgi þér á braut, sem fegri cr og betri en heimsins vegur. Hans mikla náðog miskunnar gleði I hverrí þraut. Guð gefi þér á hæðum dýrðar sigur. S.G. islendingaþættir 35

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.