Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 34

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Page 34
Jón Eðvarð Ágústsson F. 9.3. 1944. D. 27. 3. 1977 Jón EövarB Agústsson fæddist I Reykjavik árið 1944. Það kom I hlut móðurömmu og afa aö fóstra drenginn um tlma i bernsku. Við þau tók hann miklu ástfóstri og virti æ siöan. Það lýsti sér meöal annars I þvi að hann lét börn sin bera nöfn þeirra. Samband þetta var gagnkvæmt. Gömlu hjónun- um og þá sérstaklega afanum, varð drengurinn mikill gleðigjafi. A unglingsárum sinum dvaldist Jón I sveit á sumrura, framan af hjá skyld- mennum, en slðar hjá vandalausum. Sveitastörfin uröu honum lærdómsrik. Auk þess almenna menntunargildis, sem vera a góðu sveitaheimili hefur fyrir kaupstaðarungling, kynntist hann þar notkun véla I landbúnaöi. Það, ásamt starfi fööurins, hefur sennilega átt mestan þátti þvi aöreina áhuga hans að blfvélavirkjun, sem hann nam. Aö námi loknu starfaði hann hjá nokkrum aðilum I iön sinni, meöal annarra hjá framkvæmdadeild Vita- og hafnamálaskrifstofunnar. A vegum hennar dvaldist hann á nokkrum stöö- Þeir sem skrifa minningar- eða afmælisgreinar í íslendingaþætti, eru eindregið hvattir til þess að skila vélrituðum handritum, ef mögulegt er um úti á landi. Þar kynnist hann þeirri friðsemd, er oft ríkir á smærri stöðum við sjávarsíðuna. Eftir að hann haföi sjálfur eignazt fyrirmyndarheimili hér I Reykjavík og ekkert virtist á skorta, hafði hann oftar en einu sinni viö orö, að sér mundi sennilega falla betur að búa úti á landi, heldur en hér á höfuöborgarsvæöinu. A árunum 1967 til 1974 rak hann I Reykjavik og nágrenni bifreiöaverk- stæði, ýmis einn, eöa I félagi viö aðra. Þó að þessi starfsemi gengi öll vel, sem marka má af því, að á þessum ár- um eignast fjölskylda hans eigin ibúö, án stuönings annarra, tók hann gjarn- an aö sér verkefni úti á landi, ef eftir þvl var leitáfti Segja má, aö honum hafi gengið llfs- baráttan vel. ABstæöur I uppvexti hafa án efa mótað llfsskoðanir hans og þroskað hjá honum viljann til þess aö standa á eigin fótum. Jón EBvarð kvæntist Guðrúnu Bald- vinsdóttur úr Reykjavik, árið 1968. Eignuöustþau tvöbörn, sem bera nöfn Helgu og Kristins, móöurforeldra hans, eins og fyrr er getið. Guörún bjó manni sínum og börnum einkar vist- legt heimili, bæði hér fyrir sunnan og eins austur á Höfn I Hornafirði, þar sem að þau voru setzt að. Reglusemi, elja og ráödeild voru þeir eiginleikar I fari Jóns, er komu honum áfram, á- samt samheldni þeirra hjóna. Jón Eðvarö var I eðli slnu glaðlynd- ur. Þegar fjölskyldan og ættmenni hittust var hann ætíð hrókur alls fagn- aðar. Hann var greiðvikinn og taldi ekki eftir sér viðvik fyrir vini og kunn- ingja, ef svo bar undir. 1 ársbyrjun 1974 var honum boöiB að taka aö sér rekstur smurstöðvar á vegum Olluverzlunar tslands á Höfn. Tók hann því starfi. Fólkið og staður- inn féll honum strax svo vel, aö hann kaupir þar hús fyrir fjölskyldu sina og flytur hún þangað austur sama vor. Ekki mun hafa veriö ætlunin að setjast þar aö til langframa þá. En nú hafði hann haft uppi ráðagerðir um aö byggja sér vandað einbýlishús þar eystra, þó að hann ætti þar nýlegt hús fyrir. A Höfn sat Jón EBvarð ekki auöum höndum frekar en endranær. Hann haföi þar fleiri en eitt járn I eldinum. Auk reksturs smurstöövarinnar og skyldrar þjónustustarfsemi, var hann nýbúinn að koma af stað rekstri þungavinnuvéla, sem hann batt mikl- ar vonir viö. Kona hans, Guðrún, átti framan af minni samskipti viö fólk á staðnum, vegna umönnunar um heimilið. Hafði hún komiö sér upp smá verzlunar- rekstri til afþreyingar. A þennan hátt gerði hún sitt til þess að fjöJskyldan festi yndi þar eystra. Þau hjónin voru bæði vel látin og mun Jón Eðvarð hafa notiö trausts Hornfirðinga, því að hon- um voru þar falin trúnaðarstörf. Ená skammristundu skipastveður I lofti. Sorg umlykur annars hamingju- ríkt heimili. Jón Eðvarð Agústsson lézt af slysförum sunnudaginn 27. marz siðastliðinn. Megi minningin um góðan dreng veita ungri ekkju, börn- um og öðrum ástvinum huggun I harmi- Sólveig og Einar 38 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.