Mánudagsblaðið - 29.05.1967, Page 6
I
UR EINU
1ANNAÐ
Vel er, að malbikaðar séu götur borgarinnar, en þær hafa
aldrei verig lélegri en nú í vor. En getur borgin ekki kom-
izt að samningum við gatnagerðarmenn um að vinna í kvöld
eða næturvinnu í stað þess að stöðva alla umferð um að-
alæðar borgarinnar? Þetta er ófært ástand eins og nú er.
Svo má spyrja hvort satt sé, að tjaran í malbikinu sé
þriðja eða fjórða flokks og sé þar ein ástæðan fyrir því,
að göfurnar eru svona leiknar eftir veturinn?
Talið er að um 90% útvarpseigenda séu löngu hættir að
hlusta á morgunútvarpið. Ástæðan er auðvitað hljómlistar-
valið sem er með eindæmum lélegt. Klassiska músikkin er
allsráðandi og vita allir hversu hún þykir í morgunsárið.
Það verður að losa sig vió þau draugasjónarmið, sem nokkr
ir gamlir menn ráða hjá útvarpinu. Þetta er þó almennings-
eign, en ekki sérstakt leikfang fyrir menn, sem telja sig
ráðandi í þessum efnum.
„Leikhúsið var þéttskipað“ sagði Jón Múli s.l. fimmtudag
í hádegisfréttum útvarpsins af frumsýningu Hornakóralsins
s.l. miðvikudagskvöld. Spyrja má hver sé tilgangur frétta-
stofiunnar að ljúga upp svona fréttum? Húsið var hálftómt,
svalir báðar nær altómar en áhorfendur milli 3—400. Þetta
er ekki ný bóla hjá fréttastofunni þegar hún flytur fréttir
af leikhúsunum. En tilgangurinn er óskiljanlegur, og ætti
\
að vera langt neðar virðingu fréttastofunnar. En máske er
þetta eftir öðrum fréttaburði stofnunarinnar. Auðvelt hefði
verið að hringja í miðasöluna, eða fæst þetta máske fyrir
„frímiðann“.
Lögregluþjónn skrifar: „Nú stendur yfir hörkuskotkeppni
og olnbogaskot hjá okkur. í fyrra sigraði Óskar Ólason, yf-
irlögregluþjónn, en hann notaði sér vel aðstöðu sína og
æfði af kappi og er flinkur skotmaður, var sagður í gamla
daga geta hitt. benzínskömmtunarseðla á afar löngu færi.
En ég vil spyrja hvort nota megi aðra tegund byssu en allir
hinir í svona keppni. Satt bezt sagt þori ég ekki að koma
fram með fyrirspum hjá honum né í blöðum undir fullu
nafni, því mér yrði hegnt fyrir. En svona er réttlsetið.**
(Samkvæmt keppnisreglum á að nota sömu tegund byssu,
en benzínmiðabrandarann skiljum við ekki. Ritsj.).
Enn hefur þjóðin sett nýtt met. Nú eigum við fleiri fúsk-
ara í málaralist en nokkur önnur, miðað við mannfjölda.
Hver „málarinn“ á fætur öðrum heldur sýningar allt árið
og lýðurinn kaupir þetta eins og alvörumálarar ættu í hlut.
Það er huggulegt að vita til þess, að þessar klessumyndir
skreyta nú veggi hinna nýriku, sem auðvitað þykjast njóta
listaverkanna. Gallinn er sá, að þetta hefur hin verstu upp-
eldisáhrif á blessuð afkvæmin þeirra, sem máske hafa mögu
leika á að mannast og meta listaverk, ef þau yrðu ekki að
horfa upp á þetta glansmynda- og klessurusl.
Hve lengi á flokkahappdrættunum að líðast að véla fólk
til miðakaupa og svíkja síðan að draga um vinninga á rétt-
um tíma? Þetta er ekki undantekning heldur regla, og al-
gjörlega óafsakanlegt hver sem í hlut á. Raunar er vand-
séð hvaða heimild stjórnmálaflokkar hafa til happdrættis
til að halda starfsemi sinni gangandi. Ef áhugi og fylgi er
ekki fyrir hendi er ástæðulaust að betla jjil almennings til
að halda starfseminni lifandi, eða hivar td. er grundvöllur
fjrrir happdrætti flokks eins og Þjóðvamarflokks, sem ekk-
ert fylgi hefur? Nóg er af merkjasölum samt.
Það er dálítið spaugilegt að lesa um það þegar hver ræðu
kona Sjálfstæðisflokksins eftir aðra rís á fætur á kaffi-
fundum flokksins og heimtar meira frslsi, lýðræði, jafnrétti
og álíka kröfur. Skyldu ekki blessaðir eiginmennirnir vera
orðnir að kvikindum yfir þessum stanzláusu kröfum bvenna
sinna, sem auðvitað þýða, að þær í rauninni eru að
kvarfia um meðferðina á sjálfum sér. Konur, almennt, ættu
vart að hætta sér út fyrir saumaklútobastigið. Það fer þeim
bezt. '
Allt frá hattí oní skó
H ERRADEIIP
Kefíavíkur
sjónvarpiB
Sunnudagur
1400 Chapel of the Air
1430 This Is the Life
1500 Sports
Greatest Fights
1630 Bell Telephone Hour
Frægar óperukonur
1730 An Essay on Women
1800 Oceanography. Hafrann-
sóknir
1830 Crossroads
1900 News
1915 Sacred Heart
1930 News Special
2000 Ed Sullivan
2100 Bonanza
2200 Jim Bowie
2230 What‘s My Line
2300 News
2315 Shadows of Chinatown
Mánudagur
1600 Coronado 9
1630 Dennis Day
1700 „Fresh from Paris“
Forrest Tucker, Margaret
Whiting.
1830 Andy Griffith
1955 Clutch Cargo
1900 News
1925 Moments of Reflection
1930 My Favorite Martian
2000 Daniel Boone
2100 Survival
2130 Password
2200 12 O’Clock High
2300 News
2315 Tonight Show
Woody Allen, Joan Rivers,
Cassius Clay
Þriðjudagur
1600 Odyssey
1630 Joey Bishop
1700 „Miracle of the Bells“.
Frank Sinatra, Fred
MacMurray
1830 Dupont Cavalcade of
America
1855 Clutch Cargo
1900 News
1930 News Special
2000 Lost in Space
2100 Green Acres
2130 Hollywood Palace
Bihg Cfrósby, Louis Arm-
strong, Red Buttons,
Prag-ballett.
2230 I’ve Got a Secret
2300 News
2315 „Suez“. Tyrone Power,
Loretta Young. Um Ferdin-
and de Lesseps, franska
diplomatinn, sem átti mest-
an þátt í greftri Suezskurð
arins og upptökin að Pan-
amaskurðinum.
Miðvikudagur
1600 1 2 3 Go
1630 Peter Gunn
1700 Sjá þriðjudag kl. 11.
1830 Pat Boone
1855 Clutch Cargo
1900 News '
1925 Moments of Reflection
1930 Danny Kaye
2030 Smothers Brothers
Barbara Eden, Carl Reiner,
Paul Revere og The
Raiders
2130 To Tell the Truth
2200 Lawrence Welk
2300 News
2315 „High Tension". Brian
Donlevy, Glenda Farrell.
Ævintýri og ástir.
Fimmtudagur
1600 The Third Man
1630 My Little Margie
1700 Sjá miðvikudag kl. 11
1830 Social Security
1855 Clutch Cargo
1900 News
1930 Beverly Hillbillies .
2000 Wanted Dead or Alive
2030 Red Skelton
Cliff Robertson
2130 News Special
2200 Untouchables
2300 News
2315 „Sea Devils“. Rock Hudson,'
Yvonne de Carlo.
Föstudagur
1600 Big Picture
1630 Danny Thomas
1700 Sjá fimmtudagur kl. II
1830 Roy Acuffs Open House
1855 Clutch Cargo
1900 News
1925 Moments of Reflection
1930 The Addams Family
2000 Voyage to the Bottom of
the Sea
2H>ð Dean Martin.
Patricia Munsel, Sid
Caesar, Trini Lopez, Adam
West.
2200 Rawhide
2300 News
2315 Sjá þriðjudagkl. 5
Laugardagur
1030 Animal Secrets
1100 Captain Kangaroo
Cartoon CamivaL
1330 Baseball
1700 Dick Van Dyke
1730 Roy Rogers
1800 Town Hall Party
1855 Chaplain’s Corner
1900 News
1915 Coronet Films
1930 Jackie Gleason
2030 Perry Mason
2130 Gunsmoke
2230 Get Smart
2300 News
2315 Sjá mánudag kl. 5
Grein Jónasar
Framhald af 2. síðu.
ingarstjórn snúið sér til bolsi-
vikaríkja erlendis og tryggt sér
þar vernd og nauðsynlega hjálp.
Ef við værum orðnir sjálfstætt
þjóðveldi værum við húsbænd-
ur á okkar heimili og gætum
ráðstafað okkar efstu stjórnar-
málum. Engri lýðræðisþjóð
kæmi til hugar að koma okkur
til hjálpar. Við værum húsbænd
ur 1 okkar landi. Ekki var þetta
samtal lengra en hugir okkar
andstæðinganna leituðu litla
stund fram á veginn til kom-
andi kynslóða og nýrra verk-
efna. En það var undarleg til-
viljun að örstuttum' tíma eftir
að við Jón gistum í Haga kom
í Reykjavík til bardaga um
kaup og kjör, þá kom í ljós að
Jón Þorláksson hafði séð fram
í tímann, erfiðleika smáþjóðar
að vernda sjálfstæði og frelsi.
í næsta' þætti birtist fram-
hald þessara athugana.
Leikdómur
Framhald af 3. síðu.
„sýning hefst klukkan 20.00 og
lýkur um kl. 10.30“ er ekki
laust við að manni ói við en
vera má, að ritstjóri hennar
hafi fyrir sér hina symbólsku
klukku sviðsins.
Það er undarlegt að frum-
sýna svona verk á þessum tíma,
enda var húsið hálfsetið á frum
sýningu. Leikárinu lýkur í
næsta mánuði og vel hefði sýn-
ingin þolað að bíða sumarlangt,
myndi hafa fágast og slípast
með lengri æfingu ýmissa at-
riða.
A. B.
Bladfyrvr aila
Mánudagur 29. maí
Skoðanakönnun:
Stjórnarfíokkarnir
græða á upplausn
andstöiunnar
Mánudagsblaóið hefur tekið þátt í einskonar skoðana-
könnun varðandi framboðin til kosninganna, spurt ýmsa
málsmetandi menn hvemig þeir telji að kosningarar
fari, einkum hér í Reykjavík, og þá sérlega með tilkomu
nýju listanna.
Flestir telja enn of snemmt að spá með nokkurri vissu,
en furðu margir telja, að stjómarflokkarnir muni senni-
lega græða á þeirri upplausn sem er í andstöðuflokkun-
um, einkum kommum. Það er sýnilegt, segja margir,
að almenningur hafi vantrú á flokkum, sem eru svo
ósáttir innbyrðis að allt logar í eldi. Fyrir utan klofning
Hannibalistanna, þá ríkir í Sósíalistaflokknum falinn eld-
ur upplausnar, sem út getur brotizt fyrr en varir og
brýzt áreiðanlega út ef flokkurinn vinnur á, jafnvel
lieldur sínu. Kommar hafa litla eða enga möguleika til
aukins fylgis, enda lítill ef nokkur jarðvegur fyrir þá
stefnu hér á landi í dag.
Framsókn tapar sí og æ meiru á þvi hve mikil
tök Eysteinn hefiir, og hversu hann enn heldur niðri á-
gætismönnum flokksins, yngrra fólki t.d. Einari Ágústs-
syni, Jóni Skaftasyni o. fl., þótt þeir sjálfir, undir niðri,
vilji aðra og víðsýnni stefnu, en hafa ekki bolmagn til
að hrinda af sér fjötrum föður haftanna. ,
Talið er að Hannibal komizt að, því nú geta margir,
sem vildu ekki kjósa hann fyrir daðrið við komma, kosið
liinn nýja flokk og munu nokkrir óánægjumenn hinna
flokkanna allra veita Hannibal eitthvert brautargengi.
Fæstir telja nokkra von um áð flokkur Áka hái nokkr-
um teljandi árangri. Áki er ekki lengur vinsæll maður
og hefur jafnan þótt nokkuð tvískipur í pólitíkinni,
flokkurinn stefnulítill nema í sambandi við hægri hand-
ar akstur, en' þar hefur honum áskotnazt óvæntur og
ötull sérfræðingur, þar sem er sr. Árelíus.
Yfirgnæfandi skoðun hóps þess, sem blaðið hefur tal-
að við telur að Alþýðuflokkurinn haldi sínu, en hann
hefur verið mjög heill í allri samvinnu og furðu ákveð-
inn, þótt umbrotamenn eins og Benedikt Gröndal sé ekki
teljandi ágóði fyrir flokkinn í heild.
Um Sjálfstæðisflokkinn gildir líku máli og þó mest
vegna stóriðjunnar, sem daglega færir mönnum heim
sanninn um nauðsyn sína, einkum’ þegar menn óttast
aflaleysi og síldarbrest.
Hin hatrama barátta vinstri flokkanna gegn stóriðju,
fjarstæðufullur ótti við erlent fjármagn og sentimentalt
kjaftæði um eyðileggingu á landslagi, hefur sýnt fólki
fram á, að óábyrg stjómarandstaða, einkum sú vinstri,
er stórhættuleg á þeim uppgangstímum, sem nú ríkja.
Hin vinsæla hljómsvelt Olafs Gauks í Lídó hefur á sér hið bezta orð fyrir fjölbreytta og skemmti-
lega músík. Sex þekktir hljóðfæraleikarar eru í hljómsveitinni ásamt einnu kunnustu söngkonu
höfuðstaðarins.
*