Mánudagsblaðið - 25.09.1972, Blaðsíða 1
BlaÓ fyrir alla
24. árgangur
Mánudagur 25. september 1972
36. tölublað
Nú verður látið til skarar skríða:
Orðið við kröfu almennings
um afhjúpun skattsvikanna
Þrautpíndir skattþegnar með
þurftartekjur sætta sig ekki við að
óhófslýður og bílífismenn séu
ómagar á þjóðarbúinu
Þá er taJið víst, að í uppsiglingu séu stórfelldar rannsóknir-á skatta-
framtali einstaklinga og fyrirtækja, sem virðast lifa „um efni, fram".
Hefur skattayfirvöldum lítt gefizt að liegðan þeirra, sem telja Jágt"
fram, en lifa, byggja og ferðast framar öllum vonum. í þessu skyni
mun nú áædaö að rannsaka sum sterkustu fyrirtæki landsins, sífelldan
taprekstur og svo það fyrirbrigði, að forstjórar telja hagkvæmt að
tapa ár. frá ári, þótt lífernishætdr breytist alls ekki J einkalífi þeirra.
Lögreglan og hjólreiðamennirnir
Það virðist nú með hverjum
degi ljósara, að lögreglan, þ. e.
götulögreglan, á ekki veigalít-
inn þátt í umferðarslysum hjól-
reiðarmanna. Skýringin er ein-
föld. Eins og oft hefur verið
bent á, þá eru hjólreiðarsveinar
látnir algjörlega eftirlitslausir
hér á götunum, enda eru þeir
orðnir svo kærulausir í um-
ferðinni, að þakka má forsjón-
inni, að fleiri eru ekki drepnir
eða limlestir á götum borgar-
innar en raun ber vitni um.
Það er krafa foreldra, að lög-
reglan auki nú þegar eftirlit
með ' hjólreiðarmönnum, skipi
þeim að hlýða umferðarreglum
og sjái svo tii að brotamönn-
um verði refsað. Tómlæti götu-
eftirlitsins er orðið geigvæn-
legt og tími til kominn að
breytt sé um stefnu.
Á íslandi er talað mikið um
uppgangstíma síðustu missera. —
Surnt af þessu er rétt, mikill hluti
er þvílík sjálfsblekking, að nú
þegar hefur verið rætt um gengis-
fellingu. Þá er sú staðreynd fyrir
hendi, að auðkýfingar íslands eru
byrjaðir að lifa eins konar „ör-
væntingarfullu bílífi", kastað , öllu
lausafé, sem tekizt hefur að.„fela"
í siglingar, bifreiðir og alls kyns
lúxus, sem er andstæður þeim tekj-
um sem upp eru gefnar.
Almenningi ofboðið
Það er þess vegna sem skatta-
lögreglan hefur nú undirbúið að
skera upp herör gegn þessu fólki,
sem með lúxus og millalíferni hef
ur ofboðið hinum almenna borg-
ara, svo ekki sé talað um þann hóp
manna, sem hefur að atvinnu að
skyggnast um hagi þessara auð-
manna.
Kaupsýslumenn hafa jafnan ver-
ið fórnardýr allskyns „rassíu" og
sumir orðið illilega fyrir barði
„skattsins". Nú mun svo komið,
að fjöldi annarra og fjarskyldari
fyrirtækja, m. a. í iðnaðinum og,
að sumu leyti, útgerðinni, verða að
gera góð skil og sönn á tekjum
og útgjöldum, svo og þeim fjölda
sem sum þessara. fyrirtækja hafa
á snærum sínum á fullum latinum.
Krafizt hörku
Núverandi yfirvöldum er ljóst,
að með hverjum degi magnast ó-
vild almennings í garð þeirra á-
Iaga, sem lagðar eru á hinn al-
menna borgara. Þeim er og ljóst,
að verði ekki brugðið hart við,
og fengin opinber dæmi um skatt-
svik á „æðri stöðum", þá eru dag-
ar þeirra taldir.
Engin vettlingatök
Það þýðir ekki lengur að byggja
á hinu aikunna bragði Nerós heit-
ins, að „lýðurinn hrópar á hefnd
— til hefndar þarf einhverju a?f
fórna" — og kastaði kristnum fyr-
ir Ijónin.
Eitthvað raunverulegt verður að
nota nú.
Ofbeldi
kirkjunnar
í bréfi frá S-Afríku skýrir
Viggó Oddsson frá því, liví-
Líkt ofbeldi ráðandi kirkjuklíka
þar í landi sýni lifnaðarhátt-
um manna — apartheid-stefn-
una — og enn fleira, m. a.
misskiining klerks í Dómkirkj-
unni, varðandi alveldi kirkjunn-
ar. — Á sömu síðu birtum
við laglegt kvæði, Hauststemn-
ing, eftir Kristin Magnússon.
(Sjá bls. 3)
Arabalýður
á Íslandi?
Fjórða síðán fjallar í leiðara
um ofbeldisverk og áfstöðu ís-
Iands — svo og, að vanda,
gagnrýni Kakala.
Heimsfræg
mynd í sjónvarpi
Sjötta síðan birtir áð venju
dagskrá sjónvarps, og ein af
myndunum í vikunni er How
Green was my Valley, heims-
fræg mynd með Walter Pidge-
on, og gerist í námumanna-
bæ. Þá er og spennandi mynd,
Machine-gun Kelly, — spenn-
andi gangstermynd, ætluð ung-
um og öldnum. — Glímur, box
og cowboy-myndir eru í pró-
gramminu. — Svo er kross-
gátan líka á þeirri síðu.
Mysticus og
Perry Mason
Mysticus á 7 .síðu fjallar
um leynimál, en þar í flækist
sjálf.yr Perry Mason.
Bóndinn
og beljan
Undiriæjuháttur Sjálfstæðis-
manna gagnvart Jósepský
Linnulaus ádeila á aumingjaskap Sjálfstæð-
isflokksins í landhelgismálinu, sem öðrum mál-
um, og einkanlega sú fáheyrða þjónkun og að-
dáun fyrirsvarsmanna einkarekstursins innan
flokksins, gagnvart kommanum Lúðvík Jóseps-
syni, svörnum andstæðingi vestrænnar sam-
vinnu, er meðal umræðuefna á 5. síðu — grein-
ar J. Þ. Á., en greinar hans vekja nú almenna
athygli, fyrir - skarpskyggni, einurð og þekk-
ingu.
Öhtiur síðan flytur að venju
getraunina vinsælu, og svo síð-
ari hluta þjóðsögunnar úr síð-
asta blaði.
Japanskt
vændi bezt
Er það satt, að stórfelldar „hreins-
anir" standi yfir á Morgunblaðinu
—, einum sex blaðamönnum hafi
verið sagt upp?
Hin vinsæla S. síðar birtir
greinargóða og ábyggilega lýs-
ingu á japönsku vændi, lipurð
og þjónustu við „kúnnana" sem
alltaf hafa rétt fyrir sér. — Og
svo Úr einu í annað!