Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 25.09.1972, Blaðsíða 2

Mánudagsblaðið - 25.09.1972, Blaðsíða 2
2 Mánudagsblaðið Mánudagur 25. sept 1972 ÚR SÖGU LANDS OG LÝÐS HILDUR ALFADROTTNING Meðan þau ræddust við, kon- ungur og drottning, komu til þeirra þrjú börn yngri en þau, sem áður er getið, og fögnuðu þau einnig móður sinni. Hildur drottning tók því og blíðlega; tók hún yngsta barnið og setti í kné sér og lét að því alúðlega; en það brekaði og var óvært. Setti drottning af sér barnið, dró hring einn a fhendi sér og fékk því að leika sér að .Barnið þagnaði þá og lék sér um liríð að gullinu; en missti það loksins á gólfið. var sauðamaður þar nærstaddur; varð hann fljótur til, náði hringnum, er hann féll á gólfið, stakk hon- tun á sig og geymdi vandlega, og varð enginn þess var. Þegar Iangt var liðið á nótt fram, fór Hildur drottning að hreyfa sig til ferð- ar; en aliir þeir, sem innan hallar voru, beiddu hana að dvelja leng- ur og voru mjög hryggir, er þeir sáu ferðasnið á henni. Sauðamað- ur hafði veitt því eftirtekt, að á einum stað í höllinni sat kona öldruð mjög og heldur illileg; hún var sú eina af öllum, sem þar voru inni, er hvorki fagnaði Hildi drottningu, þegar hún kom, né latti hana burtfarar. Þegar konung- ur sá ferðasnið á Hildi og hún vildi ekki kyrr vera, hvorki fyrir bænastað hans né annarra, gekk hann til þessarar konu og mælti: „Tak nú aftur ummæli þín, móðir mín, og virð til bænir mínar, að drottning mín þurfi ekki lengur að vera fjarvistum og mér verði svo lítil og skammvinn unaðsbót að henni se mverið hefur um hríð'. Hin aldraða kona svaraði honum heldur reiðilega: „Öll mín um- mæli skulu standa, og enginn et þess kostur, að ég taki þau aft- ur". Konungur hljóðnaði við og gekk harmþrunginn afmr til drottningar, lagði hendur um háls henni og minntist við hana og bað hana enn með blíðum arðum að fara hvergi. Drottning kvaðst ekki annað mega fyrir ummælum móð- ur hans og taldi það líkast, að þau mundu ekki oftar sjást sök- um óskapa þeirra, er á sér lægju, og að manndráp þau, er af sér hefðu staðið og svo mörg væru orðin, mundu nú ekki geta leynzt og mundi hún því hrepþa makleg gjöld verka sinna, þótt hún hefði nauðug orðið að vinna þau. Með- an hún taldi harmatölur þessar, fór sauðamaður að hafa sig til vegs út úr höllinni, er hann sá, hvern- ig á stóð, og svo beina leið yfir völluna að jarðfallinu og þar upp sem leið lá. Síðan stakk hann á sig hulinshjálmssteininum, lét á sig beizlið og beið svo þess, að Hildur kæmi. Að lítilli stundu þar, ein og döpur í bragði; sezt liðinni kemur Hildur drottning hún þar enn á bak honum og ríð- ur heim. Þegar hún kemur þar, Ieggur hún hauðamann í rúm hans kyrfilega og tekur þar fram af honum beizlið, gengur síðan til rúms síns og Ieggst að sofa. Þó sauðamaður væri allan þennan tíma glaðvakandi, Iét hann sem hann svæfi, svo að Hildur yrði einskis vör annars. En er hún var gengin til rekkju, hefur hann eng- an andvara á sér framar; sofnar hann þá fast og sefur fram á dag, sem von var. Morguninn eftir fer bóndi fyrst- SÍÐARI HLUTI ur á fætur af öllum á bænum, því að honum var annt um að‘ vitja um sauðamann sinn, en bjóst við þeim ófögnuði í staðinn fyrir jólagleði að finna hann dauðan í rffrm-Snu.^ifirS'g 'orð'ÍS* hafði áB1 undanförnu. Um leið og bóndi klæðist, vaknar hitt heimilísfólk- ið og klæðist; en bóndi gengur að rúmi sauðamanns og hefur hönd- ur á honum. Finnur hann þá, að smalamaður er lífs; verður bóndi af því ails hugar feginn og lofaði guð hástöfum fyrir þessa líktt Síð- an . vaknar sauðamaður heill og hress og klæðist. Meðan á því stendur, spyr bóndi hann, hvort nokkur tíðindi hafi borið fyrir hann um nóttina. Sauðamaður kvað nei við; — „en mikið und- arlegan draum dreymdi mig". „Hvernig var draumur sá?" seg- ir bóndi. Sauðamaður byrjar þar á sögunni, sem fyrr er sögð, er Hild- ur kom að rúmi hans og Ieggur við hann beizlið ,og greinir síðan hvert orð og atvik, er hann man framast. Þegar hann hefur lokið sögunni, setur alla hljóða nema Hildi; hún segir: „Þú ert ósann- indamaður að öllu því, sem nú hefur þú sagt, nema þú getir sann- að með skírum jarteikmun, að svo hafi verið sem þú segir". Sauða- maður varð ekki endurrjóða við það og þrífur til hringsins, er hann hafði náð um nóttina á hallargólfinu í álfheimum, og seg- ir. „Þó ég ætli mér óskylt að sanna draumsögu með jarteiknum, þá vill þó svo vel til, að ég hef hér eigi óljósan vott þess, að ég hefi með álfum verið í nótt, eða er þetta ekki fingurgull yðar, Hildur drottning?" Hildur mælti: „Svo er víst, og hafðu allra manna heppnasmr og sælastur leyst mig úr ánauð þeirri, er tengdamóðir mín hefur á mig lagt, og hef ég orðið nauðug að vinna öll þau ódæmi ,er hún á mig lagði". Hef- ur þá Hildur drottning sögu sína svolátandi: „Ég var álfamey af ótignum ættum; en sá sem nú er konung- ur yfir álfheimum, varð ástfang- inn í mér. Og þótt móður hans væri það allnauðugt, gekk hann að eiga mig. Varð tengdamóðir mín þá svo æf, að hún hézt við son sinn, að hann skyldi skamma unaðsbót af mér hljóta, en þó skyldum við sjást mega endrum og sinnum. En á mig lagði hún það, að ég skyldi vera ambátt I mannheimum, og fylgdu þar með þau ósköp, að ég skyldi verða mannsbani hverja jólanótt á þann hátt, áð ég skyldi leggja beizli mitt við þá sofandi og ríða þeim somví leið, er" eg reið sauðamanni þessum í nótt, til að hitta kon- unginn, og skyldi þessu svo fram fara, þangað til óhæfa þessi sann- aðist á mig og ég yrði drepin, nema ég hitti áður svo vaskan mann og hugaðan, að hann bæri traust til að fylgja mér í álfheima og gæti eftir á sannað, að hann hefði þangað komið og séð þar athæfi manna. Nú er það bert, að allir hinir fyrri sauðamenn bónda, síðan ég kom hér, hafa bana beð- ið fyrir mínar sakir, og vænti ég, að mér verði þó ekki gefi nsök á því, sem mér varð ósjálfrátt, bví enginn hefur fyrr til þess orð- ið að kanna hina neðri leið og forvitnast um híbýli álfa en þessi fullhugi, sem nú hefur Iey9t mig úr ánauð minni og álögum, og skal ég að vísu launa honum það, þó síðar verði. Nú skal hér og eigi lengri dvöl eiga, og hafið þér góða þökk, er mér hafið vel reynzt; en mig fýsir nú til heim- kynna minna". Að svo mæltu hvarf Hildur drottning, og hefur hún aldrei síðan sézt í mannheim- rnn. En það er frá sauðamanni að segja, að hann kvongaðist og reisti bú næsta vor eftir. Var það hvort tveggja ,að bóndi gerði vel við hann, er hann fór, enda setti hann ekki saman af engu. Hann varð liinn nýtasti bóndi í héraðinu, og sóttu menn hann jafnan að ráð- um og liðsemd; en ástsæld hans og lán var svo mikið, að mönnum þótti likindum meiri og sem tvö höfuð væru á hverri skepnu, og kvaðst hann allan sinn uppgang eiga að þakka Hildi álfadirottn- ingu. EINNAR MÍNÚTU GETRAUN: Hve slyngur rannsóknurí ertu? Beljan og bóndasnillingurinn „Ég er sko alls enginn Iæknir, Tom Naby, en þú ert með heilahristing. Jafnvel höfuðkúpubrotinn. Hvað sem að er, þá er víst, að þú þarfnast hjúkrunar og hana færðu ekki nema í Morrestown. Ég hefi verið að velta þessu fyrir mér. Aukalest — sem ekki hefur fleiri en tvo-þrjá farþega — fer héðan eftir tvo tíma. Það gefur mér nægan tíma og þú heldur það út það lengi. Þú gerir aðeins það, sem ég segi þér og þú verður ekki verri en þú ert þegar. Og síðan færðu beztu spttalaumönnun — alveg frítt. Og auk alls þessa færðu nokkur hundiruð dollara í skaða- bætur, sem við skiptum á milli okkar." Amor Sneed, bóndi, var stoltur með sjálfum sér, fyrir snilli sina. — O-- Auglýsið í M ánudagsblaðinu Prófessor Fordney hafði næstum kastazt úr sæti sínu, þegar neyðarhemlar járnbrautarinnar snarstoppuðu hana á miklum hraða. Hann var í talsverðu uppnámi, og leit skjótt aftur í hinn skítuga vagn til að sjá, hvort hinn farþeginn — þeir voru að- eins tveir — sem staðið hafði við enda vagnsins fyrir skömmu, væri í lagi. Fordney sá hann liggjandi á baknu, auðsýnilega meðvitundarlausan. „Er hann mikið slasaður?" spurði lestarstjórinn nokkrum mín- útum síðar. „Það er erfitt að segja," svaraði Fordney. „Það verður að koma honum á spítala eins fljótt .og auðið er. Hvað skeði eigin- lega?" „Rákumst á belju. Lélegt skyggni — var að byrja að dimma. Þetta er;í þriðja skiptið á tveimur mánuðum. Við fáum aldeil- is fyrir ferðina á skrifstofunni, þegar þessi maður heimtar skaðabætur — ef liann þá lifir." „Ljósaskipti — Ijósaskipd," endurtók Fordney prófessor. „Já, einmitt það. Þú þarft ekki að óttast um skaðabótarkröfur þessa manns," fullvissaði hann lestarstjórann. „Hann gerir engar kröf- ur — ef hann hefur vit fyrir sér." Hvers vegna sagði Fordney þetta? Sjá bls. 6. C5Z31E Der Sommer- Sonderteil, DM 3. «S 27~ Handarbesfen 68Schnitte Gr.34-52 Kleider JÉ Jacken Hosen

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.