Mánudagsblaðið - 25.09.1972, Page 4
4
Mánudagsblaðið
Mánudagur 25. sept. 1972
laoid
jJ|i Rítstjóri og ábyrgðarmaóur: AGN AR BOGASON
Sími titstjórnar: 13496 — Auglýsingasími: 13496
Verð i lausasölu kr. 30,00 — Áskriftir ekki teknar
Prentsmiðja Þjóðviljans
íslendingar
og úrhrakslýður
Restum menningarþjóðum mun nú farið að ofbjóða aðgerðir öfga-
manna fyrir bomi Miðjarðarhafs, gagnvart þeim, sem þeir telja óvini
sína. Auk hinna algengu flugvélarána og fjöldamorða á þeim vett-
vngi, fer nú vaxandi sá siður að drepa fulltrúa ísraels með sprengju-
sendingum í pósti, svo og mannrán eða hótanir um mannrán.
Einna harðhentastir öfgamanna em skæruiioar Arabaríkjanna — Fe-
deyans — hálfviltir menn, fullir af eldmóði og .diugsjónum" og hika
ekki við að fórna lífi sínu til þess að morð þeirra og rán verði sem
áhrifaríkust. Sumir telja þetta hetjulegt, en aðrir, sem betur vita, telja
þetta ekki annað en ótakmarkaða villimennsku og langt úr samræmi
við þann málstað sem barizt er fyrir. Sumum finnst og að tilgangurinn
helgi meðalið, en enn hafa t. d. aðferðir skæruliðanna ekki haft nein
áhrif, en þó tekizt að skapa alþjóða fyrirlitningu á sumum aðgerðun-
um, t. d. drápi ísraelskra íþróttamanna í Múnchen.
Þessi nýi frelsisandi hefur nú náð til Norðurlanda og þá auðvitað
í ruslatunnuna Svíþjóð fyrst, sem hefur verið safnhít glæpamanna,
Iandráðamanna, liðhlaupa og úrkasts svertingjalýðs frá Bandaríkjun-
um. Spilling sænskra á sér enga hliðstæðu í þessum efnum, enda upp-
skera þeir nú eins og til var sáð. „Gestir" Svía, króaskir verkamenn,
sem Svíar hafa hleypt og flutt inn í land sitt á sama hátt og Frakk-
ar flytja inn negra frá Afríku, sem ódýrt vinnuafl, hafa myrt sendi-
herra Títós, staðið í að sprengja upp farþegaflugvél fulla af farþeg-
um og unnið álíka glæpaverk í stærri og smærri stíl. Síðast kúguðu
þeir sænsku ríkisstjórnina með Palme í farabroddi, til að sleppa
glæpamönnum úr fangelsi ,ella sprengja upp enn eina flugvélina, og,
eins og hlaut að verða, þá samdi Palme við glæpamenn og fór vélin
á náðir Francos, sem þykir ekki mjúkhentur við glæpamenn, enda
fór öll áætlun glæpamannanna út um þúfur og verða þeir sennilega
sendir aftur í elskandi faðm Palmes. Má vera að hann geti notað þá
næst, þegar hann fer í píslargöngu að bandaríska sendiráðinu í Stokk-
hólmi.
Það verður ekki of oft tekið fram, að upplausnarlýður frá Araba-
löndunum leitar nú hælis á Norðurlöndum, einungis vegna þess, að
hann er alls staðar óvelkominn nema þar sem innfæddir, eins og við,
þekkjum ekki til hans. Svíar eru að súpa seiðið af veru þessa ólíka
kynflokks. Arabar eru góðir og vondir, eins og aðrir, og sama giidir
um allar aðrar þjóðir. En þjóðargeðið er svo algjörlega óskyit, að það
þarf meira en einhverja yfirborðsþekkingu á málinu, til að breyta þeim
mismun. Það er einnig sannanlegt ,að skríll sá, sem til Norðurlanda
flytur, er það versta úr þessum þjóðum. Samfélag þeirra við innfædda
á Norðurlöndum byggist einnig á fákænum stúlkum, eiturlyfjaneyzlu,
vændi og alls kyns annarri úrkynjun. Þetta er fádæma latt fólk og
þykir betra að fá sér smástelpur til að vinna fyrir sig en að taka til
höndum sjálft. Arabaþjóðirnar eru fegnar að losa sig við þetta fólk.
Þær fagna því, að enn skuli vera svo fákænar þjóðir, að þær hirði upp
rusl — af mannúðarástæðum, sem er tilfinning, sem Afríkuþjóðir og
þar með Arabar þekkja ekki.
Það fréttist fyrir skömmu, að útlendingaeftirlitið hefði neitað að
hleypa nokkrum Aröbum inn í Iandið. Gott er cf rétt reynist, og þá
tekin upp raunhæf stefna gagnvart þessu fólki .Ef Svíar læra ekki af
þeim atvikum, morðum og flugvélasprengingum og ránum, þá er víst,
að „pressað" verður af þessum lýð að komast til íslands, sem er til-
tölulega lítt numinn völlur fyrir þessa menn.
Palme er fallandi tjarna. Hugsandi Svíar sjá það æ betur, að allt
fals hans og yfirborðsmennska hefur orðið þeim til bölvunar og ó-
sæmdar um allan hinn siðmenntaða heim. Líkur eru á, að þeir hreinsi
til, þegar næst verður kosið.
íslendingum mistókst þegar eitrið óð taumlaust um alla Svíþjóð og
Danmörku. Við töldum það aldrei verða hlutskipti íslendinga að neyta
eiturs. Önnur varð raunin á. íslendingurinn í Svíþjóð og Danmörku
var auðvelt bráð eiturlyfjasala, sem störfuðu undir umsjón Araba. ís-
lenzk stúlka, staðin að smygli, var dæmd i ísraelskt fangelsi. Fjöldi
ungmenna á vegum au-pair-kerfisins, hafa verið sendar heim, aum-
ingjar að mestu. Vandræðabörn íslenzk eru í daglegum hreppaflutn-
ingum frá öðrum nágrannaþjóðum okkar.
Við eigum aðeins eftir að ná Svíum í innflutnnigi úrhraksins frá
Miðjarðarhafsbotni.
KAKALI skrifar:
í HREINSKILNI SA
Þá er túristatímanum að
Ijúka og friður og eðlilegt horf
komið á í borgarlífinu, sveita-
hótelin orðin að skólum eða
heimavistum, Reykjavíkurhótel-
in að tæmast, unz utanborgar-
menn fara að flykkjast hingað
að loknum „haustverkum",
bændur á sitt hótel, aðrir á
önnur.
Þegar litið er á þróun gisti-
mála í sambandi við ferðafólk,
þá er að vísu um framför að
ræða, en hana svo sáralitla, að
undrun sætir og má ýmsu um
kenna. Nokkur ágæt gistihús
hafa risið upp úti á landi, eink-
um eystra, síðari árin. Þó er
það enn svo, að þeir staðir,
sem ekki aðeins allur fjöldi
ferðamanna, basði dvalargestir
og svo þeir, sem á skemmti-
skipum koma, heldur og allir
gestir hins opinbera heimsækja,
búa við fáránlega frumstæð
skilyrði hvað gistirými, matar-
staði og alla fyrirgreiðslu snert-
ir. Er þar fyrst og fremst að
benda á ástandið við Gullfoss
og Geysi, sem er landi og þjóð
til háðungar. Ekki er gott að
vita hver er ábyrgur fyrir því
að þetta ástand hefur verið Iát-
ið óátalið um áratugi, og hrak-
að eftir því. Þó myndi manni
fyrst detta í hug að Ferðamála-
ráð væri þar sekt, a. m. k. að
því leyti, að ekki hafa forráða-
menn þess, svo menn viti, ritað
alvarlegar ádeilugreinar á þá
aðila, sem þessa staði reka, og
hafa látið vera í svívirðilegri
niðurníðslu, svo svívirðilegri, að
hverjum þjóðhollum manni
býður við að standa þarna og
horfa á útlendinga fyllast ó-
hugnaði í návist Gullfoss og
Geysis.
Starf Ferðamálaráðs virðist
helzti óljóst. Vera má, að það
hafi komið einhverju góðu til
leiðar og um stund starfaði,
að ég hygg, á vegum þess eftir-
Iitsmaður með gisti- og matar-
stöðum, en sá er nú Iátinn. Ef
Ferðamálaráð er ráðgefandi í
ferðamálum almennt, þá virð-
ist ekki nokkur aðili þiggja
ráð þess og enn síður fara eftir
þeim. Formaður ráðsins og
framkvæmdastjóri stendur að
vísu í hótelbyggingu, sem verð-
ur auðvitað 1. flokks, en það
er tímafrekt starf og ekki varð
manni Ijóst í upphafi, að ætl-
azt væri til að maður í slíkri
stöðu stæði í hótelbyggingu á
fullum launum, sem teðsta akt-
íva valdið í eins mikilsverðum
iðnaði og ferðamálum. En svo
er nú það.
Sú jákvæða þróun, sem orðið
hefur á ferðamálum í Reykja-
vík, er því ekki Ferðamálaráði
að þakka, heldur þeim einstakl-
ingum og félögum, sem byggt
hafa gistihýsi og svo ferðaskrif-
stofunum, sem unnið hafa
hrein kraftaverk, bæði fyrir inn
lendan ferðamannaiðnað og er-
lendan. Þó er það svo, að á-
standið í rekstri gistihúsa R-
víkur er víða harla bágborið og
sums staðar með öllu ófært.
Matur gistihúsanna er svo
einmuna tilbreytingarlaus, að
fádæmum sætir, enda kvarta
kngdvalargestir — ein til tvær
vikur — um að þeir hafi feng-
ið Ieið á matarvalinu eftir að-
eins fáeina daga. Kalt borð og
síldarréttir eru sums staðar
eins konar standard „Gullfoss-
fæða" (skipið), „snitchelur",
steikur og fiskréttir, einhæfir
og tilbreytingarlausir, súpur úr
pökkum eða dósum, og yfirleitt
hinn mesti kaffiteríubragur af
öllu saman. AUir vita svo um
Ferðamanna-
tíminn biiinn —
Fátækar fram-
farir — Aðbún-
aður í sveitum
— Störf Ferða-
málaráðs —
Gestir og utan-
gáttaskríll —
Þörfin á nætur-
klubbum —
Furðuleg við-
horf - Mikill
atvinnuvegur
áfengislöggjafarvitleysuna, svo
ekki verður hún rædd hér, enda
hefur Ferðamálaráð ekki fært
almenningi neina vitneskju um,
að það hafi sótt um Ieiðrétt-
ingar á þeim skrípaleik, og er
það þó almenningur sem greið-
ir starfsmönnum þess laun,
veitir þeim skrifstofu og stend-
ur undir þeim sjóðum, sem það
hefur til umráða.
En það er önnur hlið, sem
Iýtur að gistihúsum höfuðstað-
arins, sem erlendir gestir, svo
og íslenzkir utanborgarmenn,
sem gista hér, eru farnir að
hafa hinn mesta ímugust á.
Það eru helgarskemmtanir hót-
ela, eins og t. d. Loftleiða og
Sögu. Það mun hvergi í héimi,
að hótelgestir verði að ryðja
sér veg að dyrum eigins hót-
els að kvöldi, hafi þeir verið
úti, eða jafnvel orðið að leita
lögregluaðstoðar til að komast
í híbýli sín. Alir skilja, að hót-
elin þurfa sitt. Hitt er svo ó-
fært, að gera ekki einhverjar
haldbærar ráðstafanir til þess,
að múgurinn, gestirnir, fullir,
hávaðasamir og ósvífnir. og
gildir hér jafnt mn konur og
karla, slái einhvers konar skjald-
borg um inngöngudyr þessara
hótela, svo heimamenn kom-
ast ekki inn og oft ekki einu
sinni á vínbari síns eigin hót-
els, og oft með erfiðleikum að
matborði. Þessi vúlgarismi
þekkist hvergi og í fljótu
bragði er illt til úrræða, nema
þá ef hótelin sjálf leigi aukið
varðmannastarf utan aðaldyra,
sem tilkynni utangarðsmönn-
urn, að aðaldyr hótelanna séu
fyrir leigjendur þeirra og gesti.
Persónulega tel ég að hér sé
um að kenna að nokkru, að
veitingastaðirnir eru ekki mis-
dýrir og bundnir gæðamati.
Gestrisni er orð, sem einna
mest hefur verið misbrúkað í
sambandi við ferðamenn og fyr-
irgreiðslu þeirra. Gamlir hlunk-
ar, sem „muna tvenna tíma",
telja gestrisni í þeirra daga
merkingu eiga að vera aðals-
merki allrar fyrirgreiðslu til
ferðamanna, innlendra og er-
lendra. Gestrisni og sá falski
ljómi, sem stafar af því orði í
nútímamerkingu, er frá þeim
tímum, þegar gestir voru fátíð-
ir á bæjunum og tekið vel á
móti þeim, EKKI vegna með-
fædds örlætis eða höfðingsskap-
ar í flestum tilfellum, heldur
voru þetta lifandi fréttabréf,
næstum nauðsynleg fyrirbrigði
í lífi sveitafólksins. Þeim var
gefið að éta, drekka, hýrgaðir
með brennivínstári og dekrað
við þá, eða þeir látnir „taka
hendi til einhvers", ef svo bar
undir, enda buðust flestir al-
þýðumenn til slíks.
Gestrisni í máli nútíma-
mannsins, sem hefir það að at-
vinnu að veita ferðamönnum
fyrirgreiðslu, er allt annars eðl-
is. Nú eru það móttökur við-
urkenndra gististaða, sem máli
skipta, enda kemur gjald fyrir.
Nú er hún að verða ópersónu-
leg, en ætti að vera virðuleg
og hlýleg, þjónusta lipur, hrein
lætið fullkomið. Heilar stéttir
manna byggja nú lífsafkomu
sína á þessum atvinnurekstri.
þjónar, barmenn, hljómlistar-
menn, ferðaskrifstofur, hótel-
stjórar, bílstjórar og rútueig-
endur og fjöldi annarra, sem
beint og óbeint hafa hagnaðar-
aðild af ferðamennsku. Gamla,
góða gestrisnin var barn síns
tíma, góð minning og viss þátt-
ur í lífi okkar, en hún getur
í þeirri gömlu merkingu aðeins
átt við heimili og móttökur
einkavina þar. Alls ekki í sam-
bandi við ferðamál.
Það er því mikil nauðsyn, að
breytingar verði gerðar á al-
mennu ástandi gistihúsanna,
sumra. úti á landi, og ekki síð-
ur einstaka liði gistirekstursins
hér ' Reykjavík. Fjölgun nætur-
klúbba, sem starfa máske að-
eins um helgar á sumrin, er
nauðsyn. Það myndi dreifa
lýðnum og skapa einhvern ball-
ans í næturlífið. Svo fáránlega
vill til, að sumir áhrifamenn í
Framhald á bls. 6