Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 25.09.1972, Side 5

Mánudagsblaðið - 25.09.1972, Side 5
Mánudagur 25. sept. 1972 Mánudagsblaðið 5 Ovinsælar athugasemdir: „Aldrei fyrr, á öllum bílífisferli lýðveldiskynslóSarinnar, hafa íslendingar drukkið meira, étið meira, drabbað meira, bæði innanlands og utan, brælt meira og svælt, keypt fleiri og breiðari bíla; í fáum orðum sagt: sökkt fleiri milljónahundr- uðum í skaðiegan hégóma og niðurlægjandi hjóm.“ Verkalýðsrekendur valda atvinnuleysi - Hraðgróðamenn brenna spariféð „Þegar kreppir aÖ sjávarútveginum eins og nú gerir af völdum óðaverðbólgunnar er það miklu geigvcenlegra en menn vilja gera sér grein fyrir, því að það er miklu þægilegra að látast ekki vita af óþcegindum en að glíma við þau. Karfafrystihúsin vœru fyrir löngu hcett að taka á móti karfa, ef sjávarútvegsráðherra hefði ekki haft góð orð um að leysa vanda þeirra." — Einar Sigurðsson, útgerðarmaður: ÚR VERINU/Sjávarútvegurinn og bankarnir. („Morgunblaðið", sunnudagur 13. Ágúst 1972.) Gert út á spaxifjármið Tæpir tíu mánuðir eru nú liðnir síðan svokallaðir atvinnu- rekendur skuldbundu sig til þess að veita verkalýð sínum allt að 900% meiri kauphækk- un að fjórtán mánuðum liðn- um frá undirritun kaup- og kjarasamninga hinn 4. Desem- ber 1971,. heldur en Seðla- banki íslands, Hagstofa íslands, Efnahagsstofnun íslands, og fjöldi annarra velviljaðra og vitiborinna aðstandenda, höfðu sannað þeim, að þeir gætu mögulega greitt. Nefndir aðilar töldu ágreiningslaust, að af- koma flestra atvinnugreina benti til þess, að þeim ætti yfirleitt ekki að verða um megn að standast 6—8% út- gjaldahækkun áhættulítið á ár- inu 1972, þ. e. samtais vegna kauphækkana, fyrirsjáanlegra verðhækkana rekstursvara og er- lends tilkostnaðar, einstaka sér- lega vel rekin fyrirtæki í mesta Iagi 10%. Sá fyrirvari fylgdi þó með, að aflabrögð og við- skiptaárferði yrðu ekki lakari en undanfarið ár. Ef „atvinnurekendur" hefðu talíð ómaksins vert að athuga eigin höfuðbækur, og skilið hættumerki þeirra, ellegar feng- ið færa menn til þess að þýða boðskap þeirra fyrir sig, er ekki ósennilegt að a. m. k. sumir þeirra myndu hafa komizt að svipaðri niðurstöðu. En sökum þess að raunsýni og þekking, einkum sérþekking, hefir ávallt verið í lágmarksmet um, nánast fyrirlitin, í strandlýð veldi voru, skrifuðu framverðir einstaklingsframtaksins undir þá pappíra, sem verkalýðsrekendur réttu þeim yfir samningaborð- ið (sýnileg mánaðarlaun verka- lýðsbraskaranna og þingþras- anna Björns Jónssonar, sem á sœti í ekki fœrri en 8 fasta- nefndum Alþingis, Péturs Sig- urðssonar, Eðvarðs Sigurðssonar og Sverris Hermannssonar kr. 71.520,00 hver um sig, að með- töldum skattfrjálsum bílastyrk, fyrir „þingstörf' í September 1972; vinnutími 0 klst.). Merk- isberum einkarekstursins þótti því hyggilegra að treysta brjóst- vitinu sínu, sem allir íslend- ingar bera takmarkalausa virð- ingu fyrir, og tékkaheftinu, sem enginn íslendingur telur sig geta án verið, og flestir álíta veita sér seðlaútgáfuréttindi, heldur en „svartsýni" og „úrtöl- um" bankastjóra og hagfræð- inga, er helzt hefir verið fund- ið til foráttu, að hafa aldrei staðið í fiskseiðaslorí eða sval- að athafnaþrá sinni með æðis- gengnu smáfiskadrápi. Hinn 4. Desember 1971 reyndust forkólfar Vinnuveit- endasambands íslands þess vegna einkunnarorðum stéttar- innar trúir sem jafnan fyrr: „Þetta reddast allt saman einhvern veginn." Peningaglaðari og veiðireif- ari en nokkru sinni fyrr, héldu svokallaðir atvinnurekendur hið bráðasta út á þau hin sömu miðin, sem ávallt höfðu reynzt þeim einkar gjöful, og þeir þekktu bezt: styrkja- og upp- bótamið í gæzlu ríkissjóðs, og á sparifé alls ráðdeildarfólks, þ. á m. barna, unglinga og gamal- menna; ekkna, munaðarleys- ingja og eftirlaunafólks; í vörzlum banka og sparisjóða. Aldrei fyrr hafði dugnaður Og leikni „atvinnurekenda" við að Strá um sig tékkum, samþykkja víxla og gefa út skuldabréf — og safna eignum svona í fram- hjáhlaupi — notið sín fagur- legar við fjárplógshentari skil- yrði. Aldrei fyrr hÖfðu verka- lýðseigendur getað gortað af at- kvæðasælli draumakauptöxtum. Aldrei fyrr hafði aðalmálgagn Sjálfstæðisflokksins, „Morgun- blaðið", komið auga á heilla- drýgri bjargráðastörf. Aðalmálgagn Sjálfstæðis- flokksins hrósaði vitsmuna- brunnum verkalýðshreyfingar- innar fyrir dæmalausa þjóðholl- ustu (!), sagði þá hafa borið „djúpstæðan skilning á högum þjóðarinnar" á borð með sér, þeir hafi sýnt af sér „einstæða umhyggju fyrir afkomu at- vinnuveganna". Til þess síðan að ekki færi á milli mála, hverj- um þjóðin skuldaði efnahags- lega framtíðarvelferð sína, tók „Morgunblaðið" alveg sérstak- lega fram, „að fylgismenn stjórnarandstöðunnar beggja megin við samningaborðið" hafi átt „drýgstan þátt í, hversu giftusamlega hefur tekizt til". Og ekki efuðust hinir sigur- glöðu Sjálfstæðismenn andar- tak um, að þjóðin væri gædd þeirri hæversklegu þakklætis- kennd, sem vísir og vitrir leið- sögumenn jafnan verðskulda, og þá helzt, þegar þeim hefir lán- azt að rata með sporgöngulið sitt yfir hættulegar torfærur. „Og þess vegna andar nú öll þjóðin léttara", lauk aðalmál- gagn Sjálfstæðisflokksins lof- söng sínum um gæfusmiðina við gerð kaup- og kjarasamn- inganna hinn 4. Desember 1971. Æ íylgir munaði mærð Ósanngjarnt væri, auk þess alrangt, að halda því fram, að Sjálfstæðismenn hafi ekki haft rétt fyrir sér um hinn létta andardrátt þjóðarinnar eftir gerð glæfrasamninganna. Ekk- ert getur glatt hjarta heimtu- frekrat bruðlþjóðar meira en vonin um endalaust hóglífi á óskakauptöxtum og eyðsluvísi- tölu. Trú sína hefír hún enda staðfest í verki með eftirminni- legum hætti. Aldrei fyrr, á öll- um bílífisferli lýðveldiskynslóð- arinnar, hafa íslendingar drukk- ið meira, étið meira, drabbað meira, bæði innanlands og ut- an, brælt meira og svælt, keypt fleiri og breiðari bíla; í fáum orðum sagt: sökkt fleiri milljónahundruðum í skaðleg- an hégóma og niðurlægjandi hjóm. En hvaðan lýðræðisfólki hef- ir áskotnazt sú vizka, að slík vinstrimennska geti blessazt til frambúðar, hefir mér lengi ver- ið hulin ráðgáta. Ég hefi því leyft mér að efast um, að end- ing „velferðarinnar" yrði mikið betri en efndir venjulegs þing- þrasaloforðs. Skylt og rétt er mér reyndar að viðurkenna, að ég hefi ekki verið alveg einn um efann. Síð- ustu vikurnar, aðallega síðustu dagana, hafa heyrzt raddir, sem Iáta á sér skilja, að skuldadag- arnir kunni e. t. v. að vera skammt undan. Kröfur „at- vinnurekenda" um tafarlausa gengisfellingu í einu eða öðru gervi, ásamt meðfylgjandi hót- un um stöðvun atvinnuveg- anna, ef Iögformleg stjórnarvöld þrjóskast við, virðist einna helzt hafa orðið til þess að rumska við atkvæðunum, sem finna á sér, að kauptaxtarnir úr himnastiganum og eyðsluvísi- talan sjálfvirka séu ekki, þegar öllu er á botninn hvolft, heppi- legustu varnarvopnin gegn at- vinnuleysi og verðbólgu. Ég hefi m. a. s. heyrt getið um nokkur sjaldgæf og ólýðræðis- leg atkvæði á strjálingi, er hafi jafnvel drýgt þá hægri hug- renningasynd að velta því fyrir sér, hvort ekki geti annars ver- ið, að eitthvert smáræði sé til í þeirri kenningu hagvísinda- manna, að skýjakauptaxtar og kjósendaveiðivísitala séu frum- orsakir verðbólgu, gengishruns og atvinnuleysis. Vitaskuld leiðir af lýðræðis- ins eðli, að hugsandi atkvæði hljóta alltaf að vera færri en rúsínukeppir í sláturtíð, enda ætti lýðræðið enga framtíð, ef þau væru eitthvað fleiri. Ollum stranglýðræðislegum atkvæðum er sameiginlegt, eins og löng og dýrkeypt reynsla sann- ar, að til þess að geta skilið, þurfa þau fyrst að finna — finna til. Það má því telja full- víst, að almennur skilningur á fyrirædunum „atvinnurekenda" með 'sa'msær'i"'þeirra ög’'Vérka- Iýðsbraskara hinn 4. Desember 1971, vakni ekki að neinu ■ marki fyrr en atvrnnuleysi hef- ir heilsað upp á verkalýðinn. En til þess dugar ekkert smá-at- vinnuleysi. Það sannaðist bezt á árunum 1967—1968. Reikninguiiitn mikli Sjálfstæðismaðurinn Einar Sigurðsson, fyrrv. þingmaður flokksins síns, einn athafnasam- asti útgerðarmaður landsins og helzti fjármálapenni „Morgun- blaðsins", birtir reikning „frá sjávarútveginum" í vikulegum efnahagsmálapistli sínum, „Úr verinu", hinn 17. þ. m. „til rík- isstjórnar íslands", sem hljóðar upp á „Samtals: 1.530 millj. kr.". Þetta mun láta nærri að vera sú upphatð, sem sjávarút- veginn einan skortir til þess að geta staðið við skuldbind- ingar sínar um vinnulauna- greiðslur og önnur útgjöld, beinlínis og óbeinlínis sprott- in af nýgerðum kaup- og kjara- samningum. Ennþá hafa for- ystumenn annarra atvinnu- greina, t. d. iðnaðar og verzlun- ar, ekki birt peningakröfur frá sér opinberlega „til ríkisstjórn- ar íslands" af sama tilefni og í sama tilgangi. Ekki efa ég, að svipuð kröfugerð muni vera í undirbúningi líka þar. Einnig tel ég nokkurn veginn sjálfgef- ið, að kröfur iðnaðar og verzl- unar muni ekki verða metnar. hlutfallslega mikið lægra til peningagildis. Miðað við fjölda starfsfólks hverrar hinna þriggja /neginatvinnugreina efnahagslífsins, svo og vegna annarra aðstæðna, ætti „at- vinnurekendur" því að vanta. lauslega áædað, allt að þremur milljörðum króna — strax — til þess að geta staðið við lof- orð sín um launagreiðslur. Hversu lengi slík surnma hrykki til, er auðvitað viðskipta- Ieyndarmál svokallaðra atvinnu- rekenda. En reikning sinn senda „at- vinnurekendur" ráðaleysissam- laginu, sem við verðum, nauð- ug viljug, að sætta okkur við að reki einkapeningabrall sitt undir firmaheitinu „ríkisstjórn íslands". Væntanlega eiga hrað- gróðamenn við íslenzku þjóðina í heild, og þá ekki hvað sízt eigið starfsfólk; fólkið, sem þeir fyrir tæpum tíu mánuðum höfðu heitið skilvíslegri greiðslu vinnulauna. Fljótt á lit- ið virðist mér póstfangið skakkt. í annan stað fæ ég ekki skilið, að það geti verið alvara fullorðinna og reyndra manna, að þeir búist við að núverandi „ríkisstjórn íslands", sem fyrir rösku ári hét öllu vinnandi fólki a. m. k. 20% hagsældar- aukningu og bölvaði sér upp á, að aldrei skyldi hún láta sér gengislækkun til hugar koma með einum eða öðrum hætti, anzi margendurteknum hunda- kúnstum og bófabrellum af þessu tagi. En — afsakið, ég sé að ég hefi ekki lesið ívitnaða grein- argerð með reikningi sjávarút- vegsins í efnahagspistli aðal- málgagns Sjálfstæðismanna af skyldugri athygli. Við nánari athugun sé ég, að enda þótt reikningurinn sé stíiaður á „rík- isstjórrí íslarids", þá ér það bara formsatriði. Sjálfstæðis- menn í sjávarútvegi eru ekki fýlliléga sannfærðir um, að „rík- isstjórn íslands" megni að greiða vinnulaunin fyrir þá. En þeir vita samt sem áður, hver bæði vill og kann. í pistlinum segir: „Einn er sá maður á Islandi, sem öðrum fremur getur af- létt þessum ósóma af sjávar- útveginum, og væri mdkill mannsbragur að. Sá maður er sjávarútvegsráðherra." Áður hefir sami Sjálfstæðis maður játað trú sína á „skiln ing" og „sérþekkingu" sjávar útvegsráðherram með „manns braginn", og síðast lúnn 13. þ m. lýst yfir, að hann reisi at vinnurekstur sinn að miklu leyti á „góðum orðum" hins góða dáta. Sjálfstæðismenn sviku skyn- samlega og heiðarlega stefnu sína í landhelgismálinu, eins og flestum öðrum málum áður, hinn 15. Febrúar þ. á., einmitt á grundvelli „skilnings", „sér- þekkingar", „mannsbrags" og „góðra orða" þessa sama stjórn- málarisa, og telja síðan, að „einn er sá maður á íslandi", sem getur vísað veginn í þeim málum. Ég get því ómögulega láð Einari Sigurðssyni þótt hann gangist við þeirri skoðun sinni, að ofurmennið muni ekki um að bæta erfiðleikum sjávarútvegsins á sig, og leysa. En hver er maðurinn? „Maðurinn" er sjálfur Lúðvík Jósepsson, sami „maðurinn" og „leysti" vandamál sjávarútvegs- ins á árunum 1956—1958 og „færði út" landhelgina. ísland, þú þarft engu að kvíða! J. Þ. Á.

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.