Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Page 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Page 6
að ég átti þess ekki kost að kaupa það, en á hinn bóginn stóðst ég ekki þetta góða boð vinar míns Bjarna, og sótti um auðfengna inntöku í skólann. Fyrri veturinn leigðum við tveir saman, Richard Hansson Beck frá Reyðarfirði og ég, í einlyftu, lágu húsi við Tjarnargötuna, sem enn stendur þar. Þá átti það Jón Þórðarson kaup- maður. Ég svaf í járnbedda við rúmföt að heiman, lifði við skrínukost, hitaði mér sjálfur kaffi á prímus. Ég fór með 10 krónur í vasanum að heiman, til þess að kaupa fyrir ýmislegt, sem ég gat ekki án verið. Richard Beck, sem var frá Sómastöðum í Reyðarfirði, ríkisheimili, hafði alltaf nóga peninga og borðaði á matsölu- húsi eins og fínn maður. Hann var reglusamur og indæll piltur í alla staði, vorkenndi mér aura- leysið og margbauð að lána mér peninga, en ég var ekki alveg á þeim buxunum að fara að safna skuldum, meðan ég vissi ekki meira um framtíð mína en orðið var, því þó maður drægi fisk úr sjó og fengi töluvert innlegg, sást aldrei pen- ingur. Það var bókstaflega ekki hægt að særa út nokkurn pening. Faðir minn var að reyna að herja 2—5 krónur út í skútureikning minn, til þess að borga upp í opinber gjöld. Öll greiðsla var vörur út í reikning. Rétt eftir nýárið þenna vetur, sem við Beck leigðum saman, fékk hann peningabréf að heiman, með segi og skrifa 300 krónum, var kátur og sýndi mér seðlabunk- ann og sagði: „Þú gerir það nú fyrir mig að þiggja hjá mér svo sem 20 krónur að láni og borga þær einhverntíma við hentugleika", og réttir mér 20 krónur. Ég stóðst ekki mátið lengur og tók 10 krónur að láni hjá þessum vini mínum og borgaði honum lánið með fyrstu Hiistið 1891 tók Stýrirnannaskólinn til starfa undir stjórn Markúsar Fr. Bjarnasonar. Þorsteinn Þorsteinsson var meðal fyrstu nemendanna. Fyrstu nemendur skólans útskrifuðust þaðan árið 1893. Voru þeir fjórir, og urðu allir skipstjórar. Birtist hér mynd af hinum fyrstu skipstjórum, er liér á landi luku prófi frá löggiltum stýri- mannaskóla. — Talið frá vinstri: Kristinn Magnússon, Þorsteinn Þor- steinsson, Pétur Ingjadsson og Þor- váldur Jónsson. peningunum, sem ég fékk. Okkar kunningsskap var því miður lokið, því hann fór næsta vetur til Danmerkur til að ljúka sínu námi þar, en ég* hélt áfram hér. Það síðasta, sem ég frétti af honum var það, að hann varð eftir prófið skip- stjóri á skútu á Austfjörðum, er fórst með allri áhöfn. * Vorið 1892 sótti faðir minn um bæjarleyfi til hlutaðeigandi yfirvalda í Reykjavík, og var um- svifalaust synjað um leyfið, með þeim forsend- um, að hann gæti ekki sýnt tiltekna fjárupphæð sem skuldlausa eign. öll voru börnin komin upp, yngsta barnið, Kolbeinn, alveg kominn að fermingu. Þetta þótti mörgum skringileg ráð- stöfun bæjarstjórnarinnar og ólík því sem nú gerist, þar sem hver sem vill veður inn í bæinn til dvalar. Um þessar mundir var ég að ljúka prófi í stýrimannafræði hér við skólann, svo ég gat þess vegna snúið á bæjarstjórnina, bað um bæjarleyfi fyrir mig, og auðvitað sömu fjöl- skylduna, sem ekki var þá h'ægt að neita mér um. Það gleður mig, að bærinn hefur ekki tapað fé á þessari fjölskyldu. Eins og áður er sagt, byrjaði ég skipstjórn mína á Sleipni 1893. Ég var líka skipstjóri á sama skipi árið 1894. Eigendur voru bænd- urnir Guðni á Vatnsnesi og Pétur í Bergvík í Leirunni. Eftir úthaldið um haustið var Sleipn- ir, ásamt fleiri skútum af þeirri stærð, settur upp í fjöruna hér í Reykjavík, til þess að standa þar til næstu vertíðar og til aðgerðar og eftir- lits. Þennan vetur gerði einu sinni svo mikinn útsynning og stórbrim, að vörugeymsluhús Helga Helgasonar, sem stóð þar, sem nú er 46 VÍ K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.