Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Page 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Page 9
HallfreSur Gu'Smundsson: Við áramót Það er ekki vegna þess, að ég telji mig hæfan fulltrúa sjómannastéttarinnar eða hafi nokkurn rétt öðrum fremur til að stýra málum hennar, að ég læt þessar fáu línur frá mér fara. Undirstaða þeirra hugsana, er hér koma fram, er einungis sú, að mér finnst of lítið um hags- muna- og hugsjónamál sjómanna rætt, og þá fyrst og fremst af þeim sjálfum. Ég tel mig mörgum öðrum fremur þekkja hugsanir þeirra og dómgreind á hinum ýmsu málum þjóðfélagsins, þótt það komi óvíðar fram en vera ætti. Ég held að flestum og þá ekki sízt fulltíða mönnum, þyki töluvert til koma um áramót. Margur mun þá líta til baka, hugsa til liðna tímans, og þá ekki síður hvað fram undan muni vera, hvers vænta megi til velferðar og hag- sældar okkar litlu og fátæku þjóð, en það full- yrði ég að sé efsta hugsun langflestra íslenzkra sjómanna. Það verður engan veginn véfengt, að merkasta mál þessarar stéttar, sem og allra landsmanna, er landhelgismálið. Það verður ekki skýrt í stuttri blaðagrein, hver verða öll þau víðtæku áhrif, er sú ráðstöfun mun færa í skaut öldum og ekki síður óbornum. Þau þáttaskipti, sem verða munu út á við og inn á við í íslenzku þjóðlífi við þessar áorðnu breytingar, eru óútreiknanleg okkur núlifandi mönnum. 1 þessu tilfelli, sem og öðrum, er sjálfsagt bezt að segja sem minnst, ekki sízt á meðan það er á viðkvæmasta stigi, en það verður þó að segja hér, að það var ekki ætíð sársaukalaust fyrr á árum sumum mönnum, er við sjóinn unnu, að beita þeirri harðýðgi er gert var til að ná sem beztum afla og f járhagslegri afkomu, og enginn sannur fslendingur mun harma þann þátt liðna tímans, og ekki óska afkomendum sínum að lifa hann upp. Því skal fagnað, að þjóðin hefur vaknað, og á þessu sviði er hún hætt að „éta sjálfa sig“. Það er mikið ritað og rætt um hernám og alla þá ógæfu, sem af þeirri ráðstöfun stafi. Sannarlega skal hér ekki dregið úr þeirri hættu, sem þjóðin er í með að týna sjálfri sér, en svo sannarlega er það sem önnur þjóðarvel- ferð undir hverjum einstaklingi komið. Með öfgafullum gífuryrðum og í oddhvössum slag- orðum verður ekkert þjóðaröryggi fengið, miklu fremur skal einstaklingurinn hvattur til að hugsa um sjálfan sig, heldur en fela umsjá sína öðrum, sem alloftast reynist miður en skyldi. Velflestir íslenzkir sjómenn eru bundnir á pólitískan klafa hinna ýmsu stjórnmálaflokka í landinu, þar sem forustusauðurinn hringir bjöllunni og segir hvert halda skuli. Þetta ætti ekki svo að vera. f okkar framtaks- og stéttarmálum ættum við að vera allir sem einn, án tillits til alls annars. Táknrænt dæmi skeði á síðasta ári, sem oft mun verða vitnað í í framtíðinni, sem sýnir betur en allt annað, hversu máttur samtakanna er mikill. Á ég þar við forsetakjörið. Það er í fyrsta skipti, að minnsta kosti um mörg ár, sem þjóðin sýndi að hún hlýddi ekki kalli neins forustusauðs, hún mat meir sinn eigin vilja en fyrirskipanir pólitískra angurgapa, sem halda sig ávallt eiga að ráða athöfnum fjöldans. Það væri vel, ef alþýða manna sýndi það í fleiri tilfellum en þessu, að hún léti ekki segja sér að gera annað en hennar innri og betri maður segði. Ég hefi oft hugsað til þess, hve íslenzka sjómannastéttinn gæti miklu áorkað í sínum hugsjónamálum, ef hún léti aldrei blekkjast af öðrum óskyldum atriðum. Það er talað um öfgafullar kröfur hinnar upprennandi kynslóðar, og allt muni um koll keyra, ef nokkuð væri eftir því farið. Hefur þetta ekki alltaf verið svo, og á þetta ekki einmitt svo að vera hjá þjóð, sem er á frajnfara- og þroskaskeiði ? Við megum sannar- lega minnast þess, sem eldri erum, hvað sagt var um draumsýnir okkar á yngri árum. Allt var þetta talið skýjaborgir, sem aðeins yrðu til í huga öfgafullra unglinga, en hver varð raun- in? Hún varð sú, sem betur fer, að hin tækni-. lega þróun þjóðarinnar varð miklu meiri en nokkurn óraði fyrir, nema draumsýnustu skáld VÍKIN G U R 49

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.