Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Síða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Síða 11
Þjó5, sem Iei5 undir lok Sumardag einn fyrir um hundrað árum, sá hópur guilgrafara, sem var á leið yfir torfær- asta hluta Kaliforníu, Yanafólkið í fyrsta sinn. Fyrir 46 árum fannst síðasti lifandi maður þessa þjóðflokks; það var reynt að ala hann upp við siðmenningu hvítra manna, en það varð honum að bana. Þar með var þjóðinni útrýmt, „siðmenning“ hvítu mannanna hafði enn á ný unnið eitt „afrekið“ í viðskiptum við frum- stæðar þjóðir. Og það er engin ný bóla, að sigurvegarar, sem leggja undir sig nýtt land útrými íbúunum, sem fyrir eru: Þegar Gyðingar lögðu undir sig Palestínu, drápu þeir landslýðinn, sem þar var fyrir. Þegar Spánverjar komu til Ameríku, út- rýmdu þeir Inkunum í Perú og Aztekunum í Mexíkó, og stöðugt hefur rauðskinnum í Norður- Ameríku, Papíum í Ástralíu og Kanökum á Suðurhafseyjum fækkað meir og meir. Þegar gullgrafararnir sáu Yanafólkið í fyrsta sinn, nefndan sumardag árið 1851, hófst ófriðurinn svo að segja strax. Það fór hér eins og annars staðar, þar sem hvítir menn og rauðir voru nágrannar. Fyrst reyndu þeir að lifa saman í friði, svo urðu eins og af tilviljun einhverjar skærur þeirra í milli og þar með hófst ófriður, sem lauk með því, að rauðskinnunum var út- rýmt. Yanafólkið, sem bjó í norðvesturhluta Kali- forníu, þegar gullgrafararnir hittu það, var þá einungis fáliðað. Þjóðin lifði á sama stein- aldarmenningarstigi og aðrir Indíánar um það leyti, er Kólumbus kom til Ameríku. Þeir kunnu ekkert til jarðyrkju, en veiddu fugla og hirti og fiskuðu laxinn í ánum, bæði með löngum spjót- um og í laxagirðingar. Þeir notuðu uxa til áburðar og kunnu að gera vopn og áhöld úr hornum þeirra og beinum. tJr húðunum gerðu þeir klæði, en fæturnir voru ætíð berir. Enginn Yani hefur nokkru sinni notað skó, og þess vegna var iljahúðin þykk og hörð eins og sútað leður. Ævaforn aðferð við hjartarveiðar var sú, að þeir sveipuðu um sig hjartarskinni, settu úttroðinn hjartarhaus með hornum á höfuð sér, gengu á fjórum fótum og ráku upp baul eins og hjörtur. Þegar þeir hittu gullgrafarana í fyrsta sinn, sýndu þeir engan ótta. Þeir skipt- ust á mat við hvítu mennina, og fannst kostur þeirra gómsætur, og það varð þeim að óláni, því eins og önnur náttúrunnar börn höfðu þeir óljósar hugmyndir um eignarrétt. Og eins og annað frumstætt fólk lifðu þeir í óhófi, þegar vel veiddist, en sveltu svo ef til vill vikum saman, þegar veiðin brást. Nú Jcomu æ fleiri gullleitarmenn til Kali- forníu, síðan komu landnemar, forðabúr voru sett niður, og Yanamennirnir, sem fundu þessi forðabúr, létu greipar sópa. Þeim smakkaðist maturinn vel og það var þeim nóg. En gullgraf- ararnir og landnemarnir voru ekki alveg á sama máli. I fyrstu ákærðu þeir flakkandi Indíánaþjóðflokka og skutu nokkra menn, þeir svöruðu í sömu mynt; síðan var Yanamönnum kennt um öll þessi manndráp, og hvítu menn- irnir ákváðu að gera upp við þá sakirnar. Ágústmorgun einn árið 1865 komu nokkrir tugir vel vopnaðra gullgrafara ríðandi inn í dalinn, þar sem Yanafólkið bjó. Morguninn var lygn og fagur, sólin var nýkomin upp, og einungis nokkrar Yanakonur sátu úti fyrir tjöldunum og skófu húðir. Svo kvað við skot. Karlmennirnir komu út, þeir voru skotnir niður, aðrir komu í þeirra stað, spjót og örvar flugu gegnum loftið, riffil- og skammbyssuskot gullu, bláleitur púðurreykur lá í loftinu, og í síðasta sinn í sögu Ameríku sáust steinaxir og spjót með tinnuoddi í bardaga gegn skotvopnum. Eftir hálftíma var öllu lokið. Allir Yanarnir voru drepnir, að undanskildum fáeinum, sem tekizt hafði að flýja út um hitt dalsmynnið. Gullgrafararnir vissu ekkert um það. Þeir voru sannfærðir um, að þeir hefðu útrýmt öllu Yana- fólkinu, og einungis fréttir frá flakkandi Indí- ánum fræddu þá um, að enn lifðu nokkrir einstakiingar af þessum dauðadæmda þjóðflokki. Enda þótt Yanarnir hefðu nokkur einkenni sameiginleg rauðskinnum Kaliforníu, voru þeir ekki af sama kynstofni. Sennilegt er, að þeir V I K I N □ U R 51

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.