Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Side 12
hafi verið síðustu leifar þjóðflokks, sem upp- runalega byggði Kaliforníu og vesturhluta Ameríku, en hafi verið hrakinn æ lengra og lengra norðvestur á bóginn og fækkað niður í fáein hundruð. Þeir hafa því eitt sinn verið drottnarar iandsins og átt það allt. Nú voru hinir síðustu flúnir inn í Tehama-Conyon, hrjóstrugt fjallaskarð, þar sem kjarr og hrunið stórgrýti úr hlíðunum þakti dalbotninn. Sá, sem legði leið sína fram á hábrún þessa fjallaskarðs og horfði niður í hyldýpið, myndi telja útilokað, að' manneskjur gætu lifað þarna niðri. Engan inngang var að sjá frá skarðsbrúninni og þaðan varð engin lífvera greind. Yanarnir reistu tjöld, eða byggðu kofa inni í þéttasta kjarrinu, og þaðan niður að ánni, sem rann eftir skarðinu, ruddu þeir sér eins konar göng í kjarrið til að fara um, er þeir sóttu vatn eða veiddu lax í ánni. Þar var dálítið um hirti og birni, og stundum nokkur laxveiði í ánni, en líklega hafa Yanarnir oft liðið mikið hungur, og það hefur komið þeim til að laumast út úr þessum felu- stað og ræna forðabúr þeirra hvítu. Kúrekarnir, sem matvælin áttu, vissu hverjir þjófarnir voru, þeir sátu um þá og árið 1866 náðu þeir í dreng, sem þeir álitu 10—11 ára, og kölluðu Iski, af því það var eina orðið, sem þeir gátu greint af tali hans. Þeir héldu honum hjá sér í nokkra daga, en morgun einn var hann á burt. Síðan sáust Yanar afar sjaldan. Þegar þeir voguðu sér út úr skarðinu, gættu þeir þess ætíð, áður en þeir fóru inn aftur, að hlaupa góðan spöl á klettum eða vaða lengi eftir læk, svo þeir létu ekki eftir sig nein spor, sem gætu vísað leiðina inn í gjána. Fyrir kom, að hvítir menn komu óvörum að einstaka Yanamönnum, en þeir stukku klöpp af klöpp, sveifluðu sér milli trjátoppanna og hurfu niður í hyldýpi skarðs- ins. Það var undarlegt að hugsa til, að þarna niðri í jarðsprungunni skyldi lifa steinaldar- fólk, síðustu leifar þjóðflokks, sem eitt sinn drottnaði yfir öllu landinu. Hversu margir voru þeir nú? Enginn vissi það. I nóvember árið 1908 voru nokkrir amerískir verkfræðingar á ferð í leit að vatnsfalli til rafvirkjunar, og í nágrenni Tehamadalsins fundu þeir fótspor, sem þeir töldu vera eftir björn. Einn þeirra áleit þó, að þau væru eftir Indíána, en hinir hlógu að honum. Það voru engir Indíánar á þessum slóðum. Þegar spjót kom allt í einu fljúgandi niður mitt á meðal þeirra, skiptu þeir þó um skoðun. Daginn eftir fundu þeir leið inn í skarðið, og þar sáu þeir kofa úr greinum og berki. Inni í honum lá fjörgömul kona veik. Þeir gáfu henni vatn, reyndu að tala við hana, en skildu hana ekki. Þeir fóru og komu aftur daginn eftir, en þá var kofinn tómur. Síðustu Yanarnir höfðu tekið hana með sér og flúið lengra inn í skarðið, þegar þeir urðu varir hvítra manna. Líldega hafa þeir svo látið lífið af hungri og kulda, því veturinn varð mjög harður. Aftur liðu þrjú ár, svo enginn hafði neinar spurnir af Yanamönnum. Svo einn vetrarmorg- un heyrðu nokkrir menn, sem lágu í tjöldum við Hjartará, nokkra kílómetra frá Tehama, hundana gelta sem óðir væru og þeir sáu mann, næstum nakinn, sitja á steini með spjót í hend- inni. Hann var ákaflega máttfarinn og gat ekkert sagt. Þeir lögðu hann við eldinn, hlúðu að honum með teppum og neru hann, þar til honum hlýnaði. Daginn eftir var hann fluttur til næsta þorps. Þetta var Iski, drengurinn, sem tekinn hafði verið til fanga fyrir 46 árum. Hann var nú 57 ára, hann var gamall maður, og hann var hinn síðasti af sinni þjóð. Hann gat aðeins sagt, að nú væri allt fólk hans dáið, enginn var eftir, hungur og kuldi hafði gert út af við þá síðustu. Þegar hann var farinn að hressast, létu þeir hann fylgja sér inn í skarðið og söfnuðu saman síðustu vopnum, tækjum og teppum, sem Yanarnir höfðu látið eftir sig. Það var allt látið á safn. Sjálfur var Iski fenginn í hendur Watermann prófessor við Kaliforníu- háskóla. Watermann vildi kynna sér mál hans. Iski var afar auðsveipur og blíður, hann gerði allt, sem hann var beðinn. Það leið nokkuð áður en hann vandist mataræðinu, en svo borðaði hann með góðri lyst. Hann var klæddur í amerísk föt, en skó vildi hann ekki nota. Hann gat blátt áfram ekki hreyft sig með skó á fót- unum. Allt, sem hann sá, olli honum undrun, einkum þó, að svona margt fólk skyldi vera til. Hann hafði haldið, að heimurinn væri ekki öllu stærri en það, sem hann hafði séð af honum um dagana. Málið, sem hann talaði, var gjör- ólíkt öllum indíánamállýskum, sem kunnar eru, og á þeim fimm árum, sem Iski lifði, tókst Watermann prófessor að skrifa orðabók yfir það. Ritmál hafa Yanarnir ekkert haft, eða þá að Iski hefur ekki þekkt það. Þegar Iski var 62 ára, dó hann. Hann dó úr þeim sjúkdómi, sem gerir út af við svo margar frumstæðar þjóðir, sem komast í kynni við hvíta menn: berklaveiki. Síðasta orð hans var „saltu“. Það þýddi á hans máli: hvers vegna? Það var hinzta kveðja hans og þjóðar hans til mis- kunnarlauss heims, og hinzta spurning. 52 V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.