Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Qupperneq 13
Atomkafbáturinn „Nautilus“
Eitt hræðilegasta vopn nútímahernaðar mun
brátt líta dagsins ljós, en það er atomkafbátur,
sem verið er að byggja í Bandaríkjunum. Kaf-
bátur þessi mun geta siglt neðansjávar mánuðum
saman án þess að taka eldsneyti eða vistir.
Hann getur siglt heimsálfa á milli, bæði á norð-
urhveli jarðar, undir heimskautsísnum og í
heitum höfum án þess að nokkur verði þess var.
Talið er einnig, að hann geti kafað dýpra en
þekkst hefur áður. Nautilus mun geta skotið úr
kafi tundurskeytum, sem þannig eru útbúin, að
þau leita uppi skrúfuhljóð frá skipum. Einnig
á hánn að vera fær um að skjóta atomskeytum
á staði langt inni í landi, og hverfa síðan hljóð-
laust í bylgjurnar eða undir ísinn, en skjóta svo
upp eins og vofa einhvers staðar langt í burtu
og hefja nýja atomárás.
1 síðasta stríði voru amerískir kafbátar auð-
velt skotmál, og þurftu að fara mjög varlega,
vegna þess hversu þeir gátu verið stuttan tíma
úti. Rafgeymarnir voru litlir, og bátarnir urðu
að liggja lengi á hafsbotninum, svo að óvinirnir
yrðu þeirra ekki varir, og notuðu þeir nætur-
myrkrið til þess að taka loft.
Áhöfnin á Nautilus er laus við þessa ann-
marka. Kafbáturinn hefir nægan ganghraða til
þess að elta uppi hvaða óvinaskip sem er. Hann
getur kafað á það mikið dýpi, að mjög erfitt
verður að finna hann og exmþá erfiðara að ná
til hans með djúpsprengjum. Ekkert vélahljóð
heyrist frá honum, né önnur merki þess að hann
sé nálægur, t. d. loftbólur e. þ. u. 1.
Siglingafræðingar kafbátsins geta gert allar
sínar athuganir í kafi, og ef þörf gerist getur
hann legið svo lengi á sama stað, að ekkert skip
vill eiga það á hættu að verða fyrir skeytum
hans. Atomkafbáturinn getur framkvæmt alls
konar störf í þágu flotans, eins og tundurdufla-
lagnir, flutning á skotfærum, njósnir og vernd-
un skipalesta. Hann getur jafnvel aðstoðað land-
göngusveitir, sem við ofurefli eiga að etja,
annast veðurathuganir og njósnað um allt, sem
fram fer í stórum höfnum óvinanna. Nautilus
Atomkafbáturinn.
getur gert allt það, sem venjulegum kafbát er
ætlað, en aðeins miklu betur og enn fleira,
vegna hinna alhliða eiginleika.
Stefnið á Nautilus verður breitt en ekki
straumlínulagað, eins og á venjulegum skipum
og kafbátum. Kemur það af því, að honum er
ætlað að vera meira neðansjávar en ofan. Er
því haldið fram, að kafbáturinn eigi að geta
gengið hraðar neðansjávar, þar sem mótstaða
vatns og lofts verkar ekki saman. „Atomstöðin“
í Nautilus er varin með þykkum veggjum, og í
þeim eru tæki, sem gefa til kynna hvers konar
rafeindaverkanir.
Vélaaflið byggist á því, að atomsprenging-
VIKINGUR
53