Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Page 16
Símskeyti til Larsens Saga eftir Sigurd Ström Það er síðasti föstudagur fyrir jól. Lítið gult umslag lá á borðinu. Vofan er farin. Vofan í mynd gjaldkerans Lie í firmanu Björn & Gráberg. Það var hann, sem hafði fleygt umslaginu fyrir framan Larsen. Larsen starði á umslagið nokkrar langar mínútur. Hann þorði ekki að opna það. Kauphækkun? Það var venja að hækka kaupið fyrir jólin, allir fengu hækkun, nema Larsen litli. Þetta var tíunda árið, sem Larsen vann í firmanu Björn & Gráberg. Níu föstudaga fyrir jólin hafði hann opnað gula launaumslagið með skjálfandi fingrum. Hann fékk 400 kr. á mánuði. Niu ár voru liðin, það tíunda byrjað. Larsen hafði unnið af trúmennsku og dugnaði við höfuðbækumar sínar. Hann hafði dreymt um kauphækkun, sómasamlega kauphækkun, á hverju ári. Draumar eru tollfrjálsir. f fyrra höfðu legið 410 kr. í launaumslaginu. Mistök af gjaldkerans hálfu. Gamli Björn var réttlátur maður. Hann tók eftir skiss- unni og hringdi á gjaldkerann. ,Viðvíkjandi Larsen“, sagði hann hvasst. „Mistök mega ekki koma fyrir. Afleiðingar, skiljið þér. Verður að halda áfram með 410 kr. En, sem sagt, slíkt má ekki koma fyrir!“ Það var fyrsta kauphækkunin, sem Larsen hafði fengið. Hann langaði óstjórnlega til að hlægja. Hlægja vitfirringslega, en svo skildist honum auðmýkingin í þessu. Tíu krónur! Larsen hefði átt að njóta almennrar vorkunnsemi, en ungt skrifstofufólk lítur öðrum augum á hlutina, og Larsen var yfir fertugt. Þennan umrædda föstudag fyrir jólin sat Larsen og starði tómlega á gula umslagið, sem gjaldkerinn hafði fleygt á borðið hjá honum. Allir fleygðu hlutunum fyrir Larsen litla. En ekki fyrir Bergmann, háa, unga manninn við borðið fyrir aftan Larsen. Þau lögðu hlutina kurteislega fyrir framan hann. „Gerið svo vel, Bergmann", sögðu þau. Því Bergmann var myndarlegur, framtakssamur og — þrítugur. „Og ég“, tautaði Larsen, „er fjörutíu og tveggja". Hann andvarpaði. Bergmann hafði hálfu meira kaup en hann. Hann hafði sjálfsagt fengið kauphækkun, einnig nú. Svona var lífið. Larsen varð til skiptis heitt og kalt af spenningi. Það var ekki laust við, að hann hefði tár í augum, þegar hann sá laumuleg bros hinna. Jæja, svo þau höfðu getið sér þess til? Þau hlógu að honum. Þau hæddust að honum. En það var dálítið annað, sem Bergmann og þau hin hlógu að. Þau hugsuðu um símskeytið. Falska sím- skeytið, sem Larsen brátt myndi fá. Þorskurinn sá! Gerði lítið til þó maður gabbaði hann að gamni sínu. Hann var öruggt bitbein. Einungis ungæðislegt hugs- unarleysi, auðvitað. Þau voru í góði skapi. Drottinn minn dýri, hve þau hlökkuðu yfir þessu símskeyti! Og sjá, þarna kom símasendillinn! Vikapilturinn tók á móti því. Það var áritað til G. Larsen, c. o. Björn & Gráberg, Kóngsgötu. Aumingja Larsen! Hann hafði sent þátttökubréf í hinni miklu happdrættiskeppni frá skrifstofunni. Og hann hafði sagt hinum frá því. Þegar drengurinn kom með skeytið, sat Larsen og skrifaði af kappi í höfuðbókina. Það var móða fyrir augum hans. Hann sveið í þau. Hann hafði undarlega, herpandi tilkenningu í maganum. Hann skrifaði og skrifaði meðan hugsanirnar þyrluðust um í höfði hans. - Hann var búinn að opna umslagið. I því voru nákvæm- lega 410 kr. Óstjórnleg reiði blossaði upp í honum. Við Björn, sem hann hafði stritað fyrir í tíu ár. Hann hataði Bjöm. Gæti hann bara einu sinni mætt Birni í jafnri aðstöðu! Hann kreppti hnefana. En hann þorði ekki, hann þorði ekki. Það varð að hugsa um Línu og drenghnokkann heima. Það var matur og húsaleiga. Bara að hann gæti einu sinni brotist út úr skelinni. Talað eins og honum bjó^í brjósti. Hann andvarpaði. En þá yrðu það ekki einu sinni 410 kr. framar að koma heim með. Björn var ekkert lamb að leika sér við — hann var úlfur án sauðargæru. Þá var allt í einu lagt símskeyti á borðið fyrir framan hann. Hann las nafnið sitt. Hann opnaði það. Gleraugun duttu næstum af honum. „Við óskum til hamingju! Þér hafið unnið fyrstu verðlaun í getraunakeppninni. Storm & Blom h.f.“ Larsen lét símskeytið detta úr hendi sér. Fyrstu verðlaun 800 kr. á mánuði svo lengi sem hann lifði! Já, nú skyldi hann kaupa álitlega lífsábyrgð, svo Lína og snáðinn þyrftu aldrei að líða skort, þó hann félli frá! Það ljómaði úr augum hans. Hann hló. Hann starði á samanvöðlað greiðsluumslagið, sem hann hafði fleygt frá sér á gólfið fyrir skömmu. 410 krónur! Bergmann og hin litu hyert til annars. Þau þekktu efni falska skeytsins. Það var Bergmann, sem hafði samið það og fengið kunningja sinn til að senda það 56 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.