Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Qupperneq 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Qupperneq 18
sjónarmið. Sögur um sveltandi konur og börn eru ekki fyrir mig. En — jú, Larsen, mig hefði aldrei grunað, að þér ættuð þetta til. Eg hef hugsað mér að láta innheimtuforstjórann fá 800 krónur á mánuði. Hérna hef ég samninginn. Langar yður til að skrifa undir hann?“ „Nei, það getið þér bölvað yður upp á!“ sagði Larsen og gekk út. Frammi í skrifstofunni kom Bergmann til hans. „Þú hefur víst ekki fleiprað neitt um það við Bangs- ann?“ spurði hann. „Þetta var grátt gaman með sím- skeytið, ég viðurkenni það. En það var bara gaman- semi. Við — „Símskeytið — gamansemi — ?“ stamaði Larsen. „Já, símskeytið um verðlaunin í samkeppninni. Við tókum öll þátt í þessu. Eg skrifaði það og fékk kunn- ingja minn til að senda það. Það var bara spaug, skilurðu. Þú hefur víst ekki sagt frá því, eða hvað? Segðu, að þú hafir ekki gert það — þá ertu allrabezti náungi, Larsen!“ „Drottinn!“ tautaði Larsen og hné niður á stólinn við borðið sitt, öskugrár í andliti. „Mér þykir þetta leitt“, sagði Bergmann. „Er þá allt í lagi?“ Larsen stóð upp. Hann skalf á beinunum, er hann gekk að dyrum forstjóraskrifstofunnar. Með herkju- brögðum tókst honum að drepa á dyr. Hann lagaði bindið sitt og gekk inn. Bjöm stórkaupmaður hélt áfram að skrifa án þess að líta upp. „Herra forstjóri!“ Björn leit upp. Hann hallaði sér aftur á bak og horfði íbygginn á Larsen, sem sagði: „Ég hef hugleitt þetta með starfið. Eg get hugsað mér að taka við því“. Björn bara starði. „Ég segi, hugsað mér“, sagði Larsen. „Þér nefnduð 800 krónur. Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að láta firmáð njóta starfskrafta minna framvegis. Samn- inginn, gerið svo vel!“ Björn gat ekki annað en hlegið. Larsen skrifaði nafnið sitt með forstjórapennanum. „Þér getið byrjað á mánudaginn“, sagði Bjöm stór- kaupmaður. „Við skulum gleyma þessum bjánalega grikk“, sagði Larsen frammi í skrifstofunni. „Og hérna eru peningar til að kaupa kökur og sælgæti og sígarettur handa ykkur. Bráðum jól, og allt það, ekki satt?“ Hann fékk sendisveininum fimmtíukall og lét hann fara út til að kaupa góðgætið. Sjálfur settist hann við borðið sitt og fægði gleraugun sín. „Ástar þakkir Larsen“, kvað við í kór. „Herra Larsen, gerið svo vel!“ sagði Larsen. „Ég er innheimtuforstjóri hér og hjá mér ganga viðskiptin fyrir öllu. Þið skiljið það. Hér skal verða unnið. Af dugnaði. Jæja — svo var það ekki fleira!" FIMMTUGUR: MAGNÚS JENSSON LOFTSKEYTAMAÐUR Einn af beztu stuðningsmönnum Sjómanna- blaðsins Víkingur, Magnús Jensson loftskeyta- maður, varð fimmtugur í fyrra máuði. Magnús Jensson er fæddur 17. febrúar 1903 á Flateyri við Önundarfjörð. Foreldrar hans voru Jens Guðmundsson, kaupmaður, lengst á Þingeyri, og kona hans Margrét Magnúsdóttir. Magnús ólst upp á Þingeyri fram undir tvítugt, en fluttist þá til Reykjavíkur. Þar gekk hann í Verzlunarskólann og var síðan um hríð við verzlunarstörf. En hafið heillaði Magnús, og brátt kom þar, að hann „hætti að höndla“ og fór í siglingar. Er hann kom heim aftur, gekk hann í loftskeytaskólann og lauk þaðan prófi. Var hann síðan ýmist loftskeytamaður á togur- um eða við verzlunarstörf fram til 1930, en upp frá því var hann að staðaldri á togurum þar til 1941 að hann varð loftskeytamaður á Kötlu hinni eldri. Þegar Katla hin nýja kom til lands- ins, varð hann loftskeytamaður á henni, og hefur verið það síðan. Er hann ú einhver elzti starfandi loftskeytamaður á íslenzka flotanum. Magnús Jensson hefur fengizt töluvert við ritstörf, eins og lesendum Víkings er kunnugt. Hefur hann þýtt og frumritað margar góðar frásagnir, er birzt hafa í blaðinu á undanförnum árum, og verið einn af ötulustu liðsmönnum þess. Vil ég nota tækifærið, um leið og ég óska Magnúsi til hamingju með afmælið, og þakka honum ágæt störf í þágu Víkingsins. Vona ég, að blað sjómannastéttarinnar megi um langa framtíð njóta góðs liðsinnis Magnúsar. Gils Guðmundsson. 5Q VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.