Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Side 27
um Robinson Crusoe. En þessi hetja æskulýðsins, Robin-
son, var í rauninni sjóræningi.
Þetta var þó á engan hátt honum til lýta í augum
landa hans. Sjórán var, eins og áður er getið, talið
öldungis löglegur atvinnuvegur, ríkið stundaði það
sjálft og verndaði það, og það var yfirleitt ekki gott
að draga markalínu milli stríðs og sjóráns. Helztu
og frægustu flotaforingjar, svo sem Walter Raleigh
og Francis Drake stunduðu sjórán bæði fyrir ríkið
og eigin reikning. Og auk þess voru sjóræningjar, og
með réttu, álitnir einir færustu og djörfustu sjómenn.
Við hljótum að dást að áræði þeirra og dugnaði, þegar
við hugleiðum hversu langar og hættulegar ferðir þeir
fóru á tiltölulega litlum og« lélegum skipum. Einn
þeirra varð líka frægur sem sæfari og landkönnuður.
Það var Englendingurinn William Dampier. Hann
byrjaði sem óbreyttur háseti í enska flotanum, barðizt
við Hollendinga og fór svo til Vestur-Indía, þar sem
hann lifði sem flibustier og útbjó ásamt Cook kaptein
dálítinn víkingaflota og stundaði sjórán bæði í Kyrra-
hafi og við Austur-Indíur. Þegar hann kom heim, var
hann í svo miklu áliti sem sjómaður, að stjórnin
gerði hann að kapteini í flotanum og sendi hann í land-
könnunarleiðangur til Ástralíu og nágrennis. Hann
kortlagði allt ástralska eyjahafið fyrir norðan megin-
land Ástralíu, fann sundið milli Nýja-Bretlands og
Nýju-Guineu, kallaði það Dampiersundið og hélt heim
suður um Afríku. Með tveimur lélegum smáskipum
lauk hann einni fyrstu siglingu umhverfis jörðina, og
hann skýrði frá reynslu sinni í förinni í bók um „vinda,
storma, sjávarföll og strauma", sem á sínum tíma
var ágæt eðlislýsing. Á þessum ferðum missti hann
allan sinn auð, er , hann hafði eignast með sjóránum,
og svo hélt hann aftur í víking til Kyrrahafsins. Hann
fann gamlan félaga sinn, Woodes Rogers, og gerðist
stýrimaður hjá honum. Hann var á skipi Rogers,
þegar Alexander Selkirk fannst á Juan Farnandez,
og þar eð hann hafði áður þekkt Selkirk, er hann var
bátsmaður hjá Strandling, og vissi, að hann var góður
sjómaður, fékk hann Rogers til að taka Selkirk um
borð og flytja hann með til Englands. Það var af vörum
Dampiers, að Daníel Dafoe fékk lýsinguna á eynni
Juan Femandez, þá lýsingu, sem hann síðar notaði í
bók sína um Robinson.
Sjóránið lagðist niður í sínu gamla formi um
miðja 18. öld, en við tók „kaperiið", þ.e. löggilt víkinga-
skip, sem í ófriði fengu löggildingu til að herja á
óvinaskip þjóðarinnar.
Flibustierarnir höfðu mikla þýðingu fyrir England.
Þeir voru ákafastir og duglegastir að stofna vísi að
enskum nýlendum út um allan heim, og þeir urðu kjarn-
inn í ensku sjómannastéttinni, sem lagði undir sig
höfin.
Nú refsa ríkin fyrir sjórán eins og morð og rán á
landi. En enn þá lifa margvíslegar endurminningar
um sjóræningjatímana í sögum um fólgna fjársjóði á
fjarlægum eyjum. Og hversu margir hafa ekki leitað
þeirra, og hversu margir reyfarar hafa ekki verið
skrifaðir um þá!
Ó. H.
Innlendar fréttir.
nauðlenti í Eyjafirði, dimmt var
yfir og vont að finna völlinn, en
lendingin gekk slysalaust. — M.s.
Hvassafell fer í marz með salt-
fisk til Brazilíu. Mun förin taka
um þrjá munuði.
•
24/2. V.b. Guðrún frá Vest-
mannaeyjum fórst í gær, og fimm
skipverjar með henni, en fjórir
komust af. Brotsjór reið yfir bát-
inn út af Landeyjarsandi. — Dan-
ir uppvægir yfir því, að Loftleiðir
selja far ódýrara en félagið S.
A.S. Tala þeir um fargjaldabar-
áttu og mótmæla vegna undir-
boðs. — Þjóðminjasafnið er 90
ára í dag. Frumgjöf Helga Sig-
urðssonar, 15 munir, var upphaf
Þjóðminjasafns.
•
25/2. Sandgerðisbátar afla
þriðjungi meira í ár en í fyrra.
Telja það að þakka friðun mið-
anna fyrir togurum.
•
27/2. Félag íslenzkra botn-
vörpuskipaeigenda rannsakar
möguleika á sölu fisks til Eng-
lands. Rætt um óánægju brezkra
húsmæðra yfir fiskskorti og háu
verði. — Hörmulegur atburður
gerist í Reykjavík. Fimm manna
fjölskylda finnst örend á heimili
sínu. — Viðskiptasamningur milli
Islands og Póllands undirritaður.
— Sanddæluskip sementsverk-
smiðjunnar á að geta dælt upp
sandi á 40 m dýpi og komið hon-
um 700 m frá sér við bryggjuna.
Það kemur hingað í vor, og til-
raunir við að dæla upp sandinum,
hefjast í maí.
•
28/2. Barnaskólahúsið í Hnífsdal
fauk af grunni með 35—40 börn-
um. Skólastjóri og fimm börn
meiddust. — I gær var mikið
hvassviðri, svo að skip töfðust í
liöfninni vegna óveðursins.
Eiiendar fréttir.
bundnar siglingar til Peru um
Brazilíu, 3400 km leið eftir Ama-
zon. Siglt er til borgarinnar
Iquitos, sem er 650 km frá Kyrra-
liafi.
18/2. Danskir hermenn gera
uppreisn á Borgunarhólmi til að
mótmæla lengingu herskyldu-
tímans.
•
20/2. Rússar loka víðáttumikl-
um fiskimiðum fyrir Bretum.
Segja upp fiskveiðisamningum
frá 1930.
•
21/2. ísbreiðan samfelld inn í
fjarðarbotna Grænlands. Stöðug-
ar stillur með 30-40 stiga frosti.
— Talið er örðugt að koma á
tollabandalagi Norðurlanda. —
Fundum Norðurlandaráðs að
ljúka. •
22/2. Aftaka veður gerði í
Danmörku í gær og varð tjónið
mest í Álaborg. Er það mesta
ofviðri, sem komið hefur í Dan-
mörku í s. 1. 12 ár.
•
28/2. Frakkar vilja hafa brezk-
an her á meginlandi Evrópu næstu
50 árin. Vilja með því draga úr
áhrifum þýzka hersins. — Fisk-
sala hefur stórminnkað í Bret-
landi. Orsakirnar fyrst og fremst
hækkað fiskverð og þverrandi
gæði.
V I K I N □ U R
67