Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Side 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Side 29
ára, skoraði hann dag einn á tvo unga menn í kapp- hlaup. Annar pilturinn var nógu tillitssamur til að láta gamla manninn fara fram úr sér, en hinn vildi vinna og kom líka fyrstur að marki. En hann hlaut litla ánægju af því, því Drakenberg varð öskureiður, réðist á hann, hnoðaði honum saman eins og druslu og handfjatlaði hann mjög ómjúklega. í annað skipti, þegar hann, þá 126 ára, var á ferða- lagi og gisti hjá gestgjafaekkju einni, var næturró hans raskað af nokkrum skæraslípurum og pröngurum. Hann hastaði á þá, en árangurslaust. Þá fór hann fram úr á náttserknum og handlék óraseggina þannig, að þeir allir — og einnig veitingakonan — lögðu á flótta og skildu gamla manninn eftir einan á vígvellinum. Nú fékk hann að vísu næturró, en það lá nærri, að hún yrði honum dýr, og einungis vegna sinnar háu elli elapp hann með að greiða tiltölulega lágan bartsk^ra- kostnað fyrir þá slösuðu. Að ytra útiliti var Drakenberg meðalmaður á hæð, herðabreiður og þreklega vaxinn. Andlitið var fremur rjótt og blóðríkt að sjá; hann var næstum alsköllóttur og gekk því gjaman með hárkollu. Augun lágu djúpt, og sjónin var tekin að daprast á efstu árum hans, en að öðru leyti voru skilningarvit hans eins og sextugs manns. Langt, silfurhvítt skegg var hans mesta prýði. Það tók frá eyrunum og langt niður á bringu, og hann hirti það og snurfusaði af mikilli alúð, þvoði það og kembdi seint og snemma, og yfirleitt var hann katt- þrifinn með sjálfan sig. Hann v?,r að vísu hreykinn af sínum háa aldri, en þó geðjaðist honum ekki að heyra aðra tala um það, og því síður þoldi hann auðvitað, að nokkur efaðist um að hann væri eins gamall og hann taldi sig vera. Þegar hann var 106 ára, bar það við, að tignir, útlendir gestir hjá Danneskjold greifa létu í ljós efa um, að Draken- berg væri svona aldraður. Af þessu varð hann svo reiður, að hann rauk út úr salnum án þess að segja nokkurt orð og lagði þegar af stað fótgangandi til fæðingarsveitar sinnar, þar sem hann fékk hjá klerk- inum skírnarvottorð samkvæmt kirkjubókinni, þar sem það stóð svart á hvítu, að hann væri fæddur árið 1626. Það er sízt að undrá, þótt marga langaði til að vita, hvernig maður eins og Drakenberg hafi „farið að því“ að verða svona gamall og spurðu um þær heilbrigðis- og mataræðisreglur, sem hann hafi tamið sér í daglegu líferni. En um það er fátt hægt að segja. Hann borð- aði ekki mikið, en var hins vegar allmatvandur („sér- vitur og erfitt að gera til hæfis“, var sagt um hann). Vellingur og eggjapönnukökur voru hans uppáhalds- réttir, hvítlauk át hann mikið af og drakk gjarnan ölkrús eða brennivínsglas með matnum, en aldrei mikið, „þó hefur hann einu sinni eða oftar sézt lítið eitt ölvað- ur, ef hann fékk það fyrir ekkert, því hann var bú- maður góður“, það er að segja: mjög sparsamur og nýtinn. Um tíma drakk hann á hverjum morgni volgt öl með smjöri eða olíu í, en annars te. Sem gamall sjó- maður var hann ákafur reykingamaður. Ef lítið er á þessu að græða fyrir þá, sem vildu taka sér Drakenberg gamla til fyrirmyndar og „reyna“ að verða eins gamlir, þá er það því síður i öðrum lifnaðarháttum hans, og sennilegt, að flestir myndu af- þakka að taka hann sér til fyrirmyndar, þegar þeir SJÓMANNABLAÐIÐ VlKINGUR Útgefandl: Farmanna- og fitkimannasambanA ítlandt. Rltítjórl og ábyrgðarm.: OUt QuBmundtton. Ritnefnd: Júllus Kr. Ólaísson, Henry Hálfdanarson, Magnús Jensson, Halldór Jónsson, Svelnn Þorsteinsson, Blrgir Thoroddsen, Theódór Oislason. — BlaðiS kemur út elnu slnnl 1 mánuSi, og kostar árgangur- inn 60 krónur. Ritstjóm og afgreiðsla er í Plskhöllinnl, Reykjavfk. Utanáskrift: „VMngur", pótthólf 425, — Reykjavlk. Simi 5653. Prentað i ísafoldarprentsmlöju h.f. heyra, hvemig hann fór að því að spara sér læknis- kostnað. Fjórum sinnum á ári lét hann taka sér blóð og ætíð með vaxandi tungli. Honum gramdist mjög, þegar hann vissi einhvern brjóta gegn þessari góðu, gömlu reglu, og sagði, að þegar fólk lifði svo stutt og væri svo veikburða, þá stafaði það af því, að það léti taka sér blóð með minnkandi tungli! Fengi hann tann- pínu, sté hann upp á stól, batt spotta um veiku tönn- ina og krók í loftinu, stökk síðan niður af stólnum og „skildi við tönnina og tannpínuna í spottanum!“ Það undarlegasta við þetta er þó, að 130 ára gamall maður skyldi yfirleitt hafa nokkra tönn eftir í munninum. Veikinda hafði hann aldrei fundið til, „já, var allan tímann (146 ár) ekki í rúminu einn einasta dag, fyrr en dauðann bar að, þegar frá eru skilin örfá skipti, er hann var barinn til óbóta. Fyrsti sjúkleikinn var sá, sem hann kenndi mokkrum dögum áður en hann dó, og það verður víst fremur að telja elliveiklun en sjúk- dóm. Eftir fárra daga legu dó Drakenberg, þann 9. október 1772, nokkrum vikum áður en hann varð 146 ára. Hann var jarðsunginn frá Árósadómkirkju með mikilli viðhöfn og við klukknahringingar frá öllum kirkjum borgarinnar. Lengi síðan var skorpinn og múmíulegur líkami hans til sýnis í grafhvelfingu dóm- kirkjunnar, en svo hefur kistan verið grafin, og nú er ekki annað eftir, fyrir utan nokkrar myndir, en minningin um þennan mann, sem einungis vegna síns furðulega aldurs, varð frægur um alla Evrópu, og enn hlýtur að vera mönnum undrunarefni. — Ó. H. Leiðréttingar. Á bls. 35 í 1__2. tbl. Víkingsins þetta ár eru birtar nokkrar formannavísur um Matthías Ásgeirsson frá Bauluhúsum. Þar hefur brenglazt síðasta erindi 4. vísu, eins og rímið bendir til. 1 blaðinu stendur: hafsins smá boða. Það á að vera: hafs ósmáa boða. í minningargrein um Pétur Bjarnason stýrimann í jólablaðinu (bls. 331) höfðu ruglazt tvö ártöl. í fyrstu línu stóð: 1925, en átti að vera 1952. — Einnig hafði fallið niður ártal, sem átti að vera í sjöttu línu, þar sem getið var um próf Péturs frá Stýrimanna- skólanum. Þar átti að standa: „Hann lauk farmanna- prófi við Stýrimannaskólann 1920“. — Höfundur og lesendur eru beðnir velvirðingar á þessum leiðu mis- tökum. VIKINGUR 69

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.