Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1966, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1966, Blaðsíða 28
Ilér stunda menn veifíi rétt viS Nýfundnalandsströndina með hringnót. við þessar framkvæmdir verður nálægt 3.5 millj. dollarar. „Hinir þrír 89 feta dragnóta- bátar, byggðir 1965 og hinir 9, sem fullbúnir verða í árslok 1968, ásamt hinum litlu „Myre-gerðar“ skutbáta, bætast við hina 12, 82 feta togara, sem nú eru gerðir út frá Quebec. Til veiða á miðum utan St. Lawrence-flóans, mun bygging hinna fimm 155 feta skuttogara gera Quebec fært að sameinast hinum alþjóðlega veiðiflota á mið- unum við Labrador, Nýfundna- land og á bönkunum við Nova Scotia. — Úthafsveiðarnar verða stundaðar af togurum, sem bætast munu Quebee-flotanum í árslok 1968.“ Hvað munu þessar aukn- ingar á skipaflotanum gefa í afla? Og Lessard lítur fram í tímann til ársins 1975. Hann seg- ir: „Á árinu 1965 var heildarafli Quebec ca. 140 millj. lbs., allar tegundir og að löndunarverð- mæti (?.e. upp úr skipi) 6 millj. $. Árið 1975 ætti aflamagnið að vera orðið 317 millj. lbs. að verð- mæti ca. 11 millj. $, þessi áætlun byggist á 5% aflaaukningu án verðhækkana. Aðal aukningin verður á síldar- aflanum, eða aukning frá 40 millj. lbs. árið 1965 í 150 millj. lbs. árið 1975. Þorskaflinn. sem var um 55 millj. lbs. 1965 ætti að aukast í 78 millj. lbs. árið 1975. Heildartala fiskimanna í Que- bec, mun sennilega lækka næsta áratug, úr 3.000 1965 í 2.000 1975, sérstaklega vegna fækkun- ar á smærri skipum. Þá mun tala fiskimanna á stærri skipum sennilega hækka úr 550 árið 1965 upp í 1.000 árið 1975. ★ Vélskólinn lýkur 51. starfsári Kæða Gunnars Bjamasonar, skóla- stjóra Vélskólans við skólaslit 7. 1966. Vélskólinn í Reykjavík hefur lok- ur lokið 51. starfsári sínu. Þessi skólaslit marka tímamót í sögu skólans að því leyti að nú verður breytt um nafn hans, en það verður: Vélskóli íslands. Gerðar verða all- miklar breytingar á allri tilhögun í samræmi við ný samþykkt lög um vélstjóranám. Helztu breytingarnar eru þær, að fjögurra ára iðnnáms verður ekki lengur krafizt fyrir vélstjóranám og hverjum námsvetri lýkur með prófi er veitir ákveðin réttindi. Stig vél- stjóramenntunar verða fjögur: 1. stig að loknu 5 mánaða vélstjóra- námskeiði, 2. stig eftir 8% mánaðar Gunnar Bjarnason, skólastjóri. veru í 1. bekk Vélskólans o.s.frv. Þá verður tekin upp smíðakennsla við skólann og nemendum kennt það, sem álitið er að vélstjórum sé nauð- synlegt á því sviði. Með þessari breytingu má búast við að aðsókn að skólanum aukist og sérstaklega að hún verði árviss- ari en verið hefur. Er þá viðbúið að þröngt verði í skólahúsinu. Vélskól- inn hefur til umráða 9 kennslustof- ur í þessu húsi, notaði í vetur sjálf- ur 5, Loftskeytaskólinn hafði 2 og Tækniskólinn 2. Næsta vetur er við- búið að við þurfum a.m.k. 7 stofur. Hvernig það verður leyst er ekki hægt að sjá fyrir núna. Þó er aðal- vandinn að koma fyrir smíðakennsl- unni. Fyrir hana vantar alveg hús- rými. Framtíðarlausn þessa vanda getur ekki orðið önnur en ný bygg- ing, sennilega viðbótarbygging við vélasalinn. Nýju lögin ganga í gildi 1. júlí næstkomandi og mun skólinn starfa skv. þeim frá næsta hausti, þó þann- VÍKINGUR 174

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.