Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Síða 2
Samábyrgð
r
Islands
á fiskiskipum
Páll Sigurðsson, forstjóri Samábyrgðar íslands á fiskiskipum, er ís-
firðingur að ætt, sonur Sigurðar Kristjánssonar, alþingismanns, sem
um tuga ára skeið var umsvifamikill fulltrúi Vestfjarða í útgerðarmál-
um utan þings og innan.
Hinn 1. apríl sl. hefur Páll Sigurðsson verið forstjóri Samábyrgðarinn-
ar í 20 ár samfleytt.
Hann hefur því ianga starfsreynslu að baki og hefir, án efa, öðlast
djúptæka þekkingu á þeim vandamálum, sem að steðja, sérstaklega
varðandi öryggisútbúnað fiskiskipa, hafnarskilyrði, sjóhæfni og svo
margt annað, sem þessa stofnun varða.
Páll Sigurðsson hefur góðfúsleg orðið við tilmælum Víkings, að skýra
í nokkrum dráttum frá starfsemi þessarar merku stofnunar, og svara
nokkrum spurningum.
Samábyrgð íslands á fiskiskipum
var stofnuð árið 1909 og voru til-
drögin að stofnun félagsins þau, að
þáverandi ríkisstjóm þótti nauðsyn-
legt að stofna innlent vátrygginga-
félag fyrir íslensk fiskiskip, þannig
að þau gætu orðið veðhæf. Áður
voru íslensk skip tryggð í Danmörku,
það er að segja þau sem á annað
borð voru vátryggð.
í upphafi var þetta þó ekki
skyldutrygging, en því var breytt
árið 1937 er komið var á skyldu-
tryggingu á fiskiskipum undir 100
tonnum, en þá voru bátaábyrgðar-
félögin stofnuð víðs vegar um land-
ið. Með lögum, er þá voru sett,
var Samábyrgðin gerð að endur-
tryggjanda fyrir þessi bátaábyrgðar-
félög, en þau bera samt einn tíunda
hluta af borgunarskyldum tjónum.
Samábyrgðin er því ríkisfyrirtæki,
en er um margt sjálfstæð stofnun, er
starfar með líku sniði og önnur vá-
tryggingafélög.
Við spurðum Pál Sigurðsson fyrst
um bátaábyrgðarfélögin og hafði
hann þetta að segja um þau:
-— Bátaábyrgðarfélögin em 9 tals-
ins og starfa sem sjálfstæðir aðilar
innan ramma laganna, og em þau
í helstu útgerðarstöðum landsins.
Félagið er stofnað af ríkinu með
lögum og ríkissjóður lagði félaginu
til áhættufé, sem er reyndar orðið
lítið núna — aðeins tvær milljónir
króna. Fram til ársins 1968, er ný
lög voru sett, var henni stjómað
beint af ríkinu, en síðan hefur sér-
stök stjóm farið með æðsta vald
í stofnuninni. Fram til 1968 skipaði
ráðherra tvo menn í þriggja manna
stjóm Samábyrgðarinnar, en báta-
ábyrgðarfélögin kusu einn mann í
Páll Sigurðsson, forstjóri.
stjórnina. Við lagabreytinguna
1968 kom fimm manna stjórn. Tveir
stjómarmenn eru skipaðir eftir til-
nefningu LÍÚ, tveir eru kosnir af
bátaábyrgðarfélögunum, en sá
fimmti er skipaður af ráðherra án
tilnefningar. Stjórnin skiptir sjálf
með sér verkum, og er Jón Áma-
son alþingismaður nú formaður, en
hann tók við af Matthíasi Bjama-
syni ráðherra, er lét af formennsku
þegar hann varð sjávarútvegsráð-
herra.
— Verkefni Samábyrgðarinnar
er fyrst og fremst það, að annast
skyldutryggingu fyrir bátaábyrgð-
234
VÍKINGUR