Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 5
V.b. Ingvar Einarsson, ÁR 14, eyðilagðist af eldi 11. des. '74. Myndin er tekin þar sem bóturinn hefur verið dreginn upp í fjöru við Dyrhólaós. — Er hugsanlegt að neitað sé að tryggja skip í ókveðnum höfn- um, vegna hættu? — Það hefur vissulega verið rætt um að setja einhver slík mörk, en það er ó hinn bóginn margt, sem kemur þar til greina. Það er atvinna fólksins í viðkomandi byggðum og harkalegar aðgerðir kæmu illa niður ó saklausu fólki. — Nú hefur það komið í Ijós, að varðskipin eru tryggð í Bret- landi. Nú er verið að sigla ó þau, og væntanlega er ekki gert róð fyrir ósiglingum af þessari tegund. Hvernig er litið ó þessi órekstra- tjón í London? — Hingað til hafa þessi tjón verið greidd. Komast öldruð fiskiskip á ellilaun? — Þú hefur sett fram hugmyndir um að gömul fiskiskip gætu komist á nokkurs konar ellilaun. Geturðu skýrt frá þessum hugmyndum í stuttu máli? — Já þetta er viss hugmynd, sem ég vil ekki endilega halda fram að sé mín, en ég hef hugleitt þetta mál, vegna þess að samábyrgðin er með svokallaða bráðafúatryggingu. Ég hef oft hugleitt það, hvort ekki væri ómaksins vert, að hugsa sér þann möguleika, að stofnað sé til eins konar „ellitryggingar11 fyrir skip. Það, sem ég hefi í huga er það, að þegar menn eru búnir að eiga skip og gera það út í 20—25 ár, þá sé viðkomandi bátseigandi búinn að greiða iðgjald í sérstakan sjóð, og hann geti þá gengið að sérstökum bótum til endurbyggingar, eða ný- smíði á fiskiskipi. Það hefur borið á því, að menn, sem hafa gert út lengi, oft með góðum árangri, hafa lent í miklum vandræðum með að endumýja skip sín eftir áratuga útgerð. Sjávarútvegsráðherra hefur gert ráðstafanir, sem kannski má segja að gangi í þessa átt. Nú hafa verið teknar frá 50 milljónir króna úr gengismunasjóði til þess að bæta mönnum skip, sem hafa verið ónýt, en bætur hafa ekki fengist fyrir. Elstu fiskiskipin eru frá fyrsta áratug aldarinnar, eða frá 1905. Meginstofn íslenskra fiskiskipa er byggður á ámnum eftir 1953. Sam- tals eru þetta 910 skip. Ef tekin eru skip á bilinu 50-100 er meðalaldur þeirra 21 ár. Dýr dagur — Nú steðja fjárhagserfiðleikar að útgerðinni. Hvemig kemur þetta niður á Samábyrgðinni? — Þegar útgerðinni gengur illa, þá dragast iðgjalaagreiðslur, og þá dregur úr hraða á greiðlu bóta þeg- ar stór tjön verða. Rekstur félagsins hefur gengið þokkalega, þrátt fyrir skipsskaða, en það er mest því að þakka, að við höfum góðan endurtryggingasamn- ing erlendis. Svokallaða toppa- tryggingu. Þessi trygging hefur gert okkur það kleift að halda uppi eðli- legri starfsemi. — Hvað voru stærstu tjónin á seinasta ári? — Á árinu 1975 urðu 22 alskað- ar. Vátryggingaverð þessara skipa er 331 milljónir króna samtals, en það er rúmlega helmingur af álögð- um iðgjöldum ársins. Stærsti skaðinn var 38,2 milljónir króna, en dýrasti dagurinn hjá okk- ur var 3. nóvember, þegar 3 bátar ónýttust í óveðri á Eyrarbakka. Sá dagur kostaði 60 milljónir, sagði Páll Sigurðsson, forstjóri Sam- ábyrgðar að lokum. VÍKINGUR 237

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.