Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Qupperneq 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Qupperneq 6
Breska fíotanum skal sýnd virðing Árið 1530 gaf enski konungur- inn út eftirfarandi tilskipun: „Þegar aðmíráll brezkrar flota- deildar ætlar að láta akkeri falla, eða hifa það upp á hann að skjóta af fallbyssu, önnur skip í flota- deildinni skulu gera hið sama,“ svo að komist verði hjá árekstrum. John Konungur, gaf árið 1201 út reglugjörð, þar sem aðmírálum brezka flotans var gert að skjóta á þau erlend skip, sem ekki sýndu tilhlýðilega virðingu, með því að draga niður toppseglið, þegar þau voru í sjónmáli við flotann og skyldi skip og farmur viðkomandi gert upptækt. Síðar var þessu breytt þannig, að heilsa bæri með því, að draga fánann upp og niður (kippa flagginu) í virðingarskyni fyrir hvaða brezku skipi, sem var og hvar sem brezkt skip var á ferðinni á hinum sjö heimshöfum, því að bretar voru herrar hafsins. Árið 1554 var spænsk stórflota- deild á leið til Englands, sem heiðursfylgd Philips spánarkon- ungs, sem ætlaði að giftast Mary bretadrottningu. Á leiðinni mættu Spánverjarnir lítilli brezkri flota- deild undir stjórn William Howard aðmíráls. Spánverjarnir heilsuðu ekki á viðeigandi hátt og aðmírállinn gaf hinum 28 skipum sínum skipun um að búast til or- ustu og skaut viðvörunarskoti. Skotið hitti spænska aðmíráls- skipið, eins og því var ætlað. — Þetta dugði og öll spænsku skipin kipptu flagginu. Virðingarleysi við brezka flot- ann gat haft og hafði stundum alvarlegar afleiðingar, — jafnvel stríð. Árið 1652 mættust brezk flotadeild undir stjórn Blake VÍKINGUR 238

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.