Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 10
Fræðimenn telja að Island hafi að mestu byggst af skandinavískum landflótta bændum og sjóræn- ingjum, svo og helgum mönnum írskum. Deilt er um hve stór hlutur hvers þessara hópa hafi verið i landnáminu, en óumdeilanlega hafa þeir allir haft á að skipa djörfum og vel kunnandi sjó- mönnum, hvort sem í upphafi þessara háskalegu æfintýraferða hefur verið heitið á Krist og heil- agan Patrik eða Óðinn og Njörð. En hver, sem staðurinn var, sem sæfararnir lögðu upp frá, þá var sjóferðinni ekki lokið þó komið væri að strönd íslands. Sú sjóferð hefur staðið til þessa dags. I veg- lausu landi, fjöllóttu og sundur- skornu af stórfljótum, var sjóleiðin víðast hvar tiltækust til sam- gangna. Og til þess að hér væri hægt að lifa menningarlífi á hverjum tíma þurfti að sigla yfir úthafið til verslunar og aðdrátta og menningarlegra tengsla við aðrar þjóðir. Stórbændur, höfðingjar og jafn- vel biskupar voru ekki aðeins skipaeigendur og útgerðarmenn, þeir stýrðu gjarnan sjálfir skipum sínum hafna á milli innanlands og jafnvei til annarra landa. En sjó- ferðir íslendinga voru ekki ein- göngu bundnar við ferðalög inn- anlands og utan. Það gefur auga leið að búfjáreign landsmanna hefur verið mjög litil til að byrja með og verið var að koma stofnin- um upp og því engin líkindi til að hann hafi getað fætt fólkið. Þá var það sjórinn, sem sækja varð i þá björg, sem gerði mögulegt að nema þetta land og byggja með þeirri reisn og rausn, sem raun varð á. Sjórinn hefur því allt frá land- námstíð verið stundaður af kappi og ekki leið á löngu þar til að í hann voru sótt þau verðmæti, sem utanríkisverslun landsmanna byggðist mest á. Jafnvel í bestu landbúnaðar- héröðum íslands hefur sjórinn verið stundaður sem ein hin mik- ilverðasta búgrein og skip verið meðal nauðsynlegustu búgagna bóndans. Út af hinni hafnlausu strönd suðurlandsins, var sjórinn sóttur af miklu harðfylgi og það svo almennt að tæpast mun þar hafa fundist bóndi, sem ekki 242 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.