Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 14
Þó störf farmanna og fiski- manna séu í mörgu frábrugðin, þá eru aðalatriðin þau sömu. Fjarvera frá heimili og fjölskyldu, oft lang- tímum saman og litlir möguleikar til þátttöku í reglubundnu félags- starfi „Sætsúpa til sjós en sunnu- dagur i landi“ er stundum sagt um borð. Flestum sjómönnum mun svo farið, að þeim finnst vera sunnu- dagur þegar þeir eru í landi, hvað svo sem stendur á dagatalinu. Þessar stuttu og stopulu stundir, sem gefast meðvinum og fjöl- skyldu, konu og börnum, sem í mörgum tilfellum ekki meira en svo þekkja pabba sinn og gleði þeirra er blandin feimnislegri var- úð, sem ekki gefst tími til að yfir- vinna til fulls. Gjarnan er í ýmsu að snúast þegar i land er komið. Verkefnin hafa safnast fyrir þegar ekki er hægt að sinna þeim eftir Ms. Hvítá Ms. Skaftá Ms. Selá Ms. Langá HAFSKIP HF. Skrifstofa Hafnarhúsinu, Sími 21160 Slmnefni: Hafskip. Telex 2034 hendinni. Margt handtakið verður sjómaðurinn að kaupa, sem sá er i landi vinnur getur gert í tóm- stundum sínum og á það sinn þátt í, að ódrýgja laun sjómannsins. Vert er að staldra við og leiða hugann að hlutskipti sjómanns- konunnar. Ég held að því hafi ekki verið mikill gaumur gefinn hversu frábrugðið það er annarra eigin- kvenna. Sjómannskonan verður að gegna tvíþættu hlutverki. Hún verður ein að gæta bús og barna í fjarveru manns síns. Sjá um upp- eldi barnanna og rekstur heimilis- ins. Það kemur nærri óskipt í hennar hlut að sjá um að tekjurnar hrökkvi, hafa umsjón með fram- kvæmdum t.d. ef um húsbyggingu eða kaup er að ræða og annast út- réttingar og greiðslur þar að lút- andi. í stuttu máli, sjómannskon- an verður iðulega ein að ráða fram úr málum og taka ákvarðanir, sem annars kæmu í hlut beggja. Ekki skal hér saman sett nein mærðar- rolla um andvökur og kvíða sjó- mannskonunnar, þegar vindar og haf eru í sínum versta ham og spurningin vaknar: Hverjir koma heilir í höfn og hverjir — já hverjir verða eftir •<— hljóta sæng í sæ. Ekki held ég að almenningur — og því síður stjórnvöld geri sér grein fyrir hversu nöturlegt hlut- skipti einhleypinga oft er, þegar í höfn er komið og gildir það raunar um alla skipshöfnina þegar ekki er verið í heimahöfn. Hvar eiga sjó- mennirnir að vera og hvað eiga þeir að gera við tímann? Á Faxa- flóasvæðinu eru víðast hvar góðar samgöngur og því hægt að fara til Reykjavíkur, fá sér herbergi á hót- eli og njóta þess að sofa og hvílast í þokkalegu umhverfi eða „skella sér í djammið“ en það er dýrt og vill oft fara öðruvísi en var ætlast og Elzta og stærsta skipaviðgerð- arstöð á Islandi. Tökum á land skip allt að 2500 smálesta þung. Fljót og góð vinna. til lands og sjávar SLIPPFÉLAGIÐ í REYKJAVlK ★ %loMilant Slmi: 10123 (6 llnur) -Slmnefni: Slippen Gsrðastræti 6 Slmar: 15401 16341. EINKASALAR HÉR A LANDI FYRIR HIN HEIMSÞEKKTU „LION" vélþétti. Framleiöendur: JAMES WALKER & Co. Ltd. Woking, England. 4 246 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.