Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Qupperneq 20
Sænskt rannsóknarskip „AfíGOS"
Svíar hafa fengið sitt úthafs rann-
sóknarskip.
í sænskum blöðum birtist fyrir
nokkru fréttir af því, að svíar hafi
loksins lokið smíði á skipi til rann-
sókna á úthöfunum og þótti tími
til kominn.
Hingað til hafa þeir aðeins getað
stundað rannsóknir við sínar eigin
strendur, eða í Eystrasalti, Skage-
rak og Kattegat, en nú hafa þeir
eignast mjög fullkomið skip til
hafrannsókna.
Skipið hlaut nafnið „ARGOS“
og var byggt í skipasmíðastöðinni í
Kalmar.
Það er einna skrúfu skuttogari
61,25 m. að lengd með 30 eins-
manns klefum og einum 2ja
manna.
Áhöfnin er 18 manns og 12
manna rannsóknarlið.
Ýmsar tæknilegar nýjungar eru
í skipinu. Sérstakur útbúnaður til
að koma í veg fyrir iitring frá vél-
búnaði skipsins og myndun loft-
bóla.
Allar vistarverur eru útbúnar
loftræstitækjum og hitastillum.
Tveir borðsalir eru í skipinu
og 2 setustofur og er önnur notuð
sem bókasafn.
Stærri rannsóknarstofan af
tveim er aftarlega á aðalþilfari
næst veiðibúnaðinum og fara þar
fram aðalhafrannsóknirnar, próf-
anir og mælingar.
Sjávarsýni eru tekin af mismun-
andi dýpi og sett á flöskur til frek-
ari greiningar.
Þá eru tæki til að ná í sýnishorn
af botnlögum.
Rafeindabúnaðurinn í
„ARGOS“ er af fullkomnustu gerð
hvað snertir fiskleita- og siglinga-
tæki.
Aðalvélar skipsins eru tvær og
má stjórna þeim frá þrem stöðum
ofan þilja. Vélarrúmið getur,
undir venjulegum kringumstæðum
verið mannlaust 16 klst. af sólar-
hringnum.
Til að ná hægum og sem næst
hljóðlausum gangi, með 2—4
sjóm. hraða er notaður 300 ha raf-
mótor, sem tengdur er við skrúfu-
öxulinn.
Þá eru á skipinu hliðarskrúfur
bæði að aftan og framan, sem auka
mjög hreyfingarhæfni þess.
Það er full ástæða til að óska
svíum góðs árangurs með þetta
fullkomna hafrannsóknarskip, og
má vænta þess að starfsemi þess
verði til þess að auka og fullkomna
þekkingu norðurlanda á norðlæg-
um hafsvæðum.
G.j.
252
VlKINGUR