Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 22
Stýríð lengra í suðvestur... Ég heyrði rödd,.sagði gamii skipstjórinn 1 sænska sjómannablaðinu „Brev- duvan“ var nýlega eftirfarandi grein tekin upp úr endurminning- um aldraðs skipstjóra. Merkilegasti atburður æfi minnar skeði þegar ég var skip- stjóri á seglskipinu „Karen“. Við höfðum lestað pappírskvoðu í Finnlandi og ætluðum til Ame- riku. Við reiknuðum með að ná yfir Atlantshafið fyrir jól og geta verið í höfn um hátíðina. En það fór samt á annan veg en við höfð- um hugsað okkur. Fyrst fengum við ágætt veður en fyrir norðan Skotland brast á slíkt stórviðri, að ég hefi ekki upplifað annað eins, hvorki fyrr né síðar. Dag eftir dag og nótt eftir nótt æddi stormurinn með 28—33 m/sek. „Karen“ var mjög gott skip og ég hafði úrvals skipshöfn, okkur kom því ekki í hug að leita vars, og það líka gott, því nú kemur það merkilega. Á 9 dægri, á morgun vaktinni hrópaði allt í einu sá sem var á „út- kíkk“. „Það er brak á bakborða“. Stýrimaðurinn þreif kíkinn, en það var næstum ómögulegt að glöggva sig á því hvað þarna var á reki vegna óveðursins. Ég hafði lagt mig stutta stund í kortaklef- anum, og þá reyndi ég nokkuð, sem breytti lífi mínu. Ég heyrði rödd, sem talaði til mín: „Stýrið lengra í suðvestur.“ Ég sem reyndur sjómaður, van- ur misjöfnum veðrum, sem bar ábyrgð á skipi og skipshöfn vissi að öruggast var að halda skipinu upp í veðrið, svo stórhættulegt gat ver- ið að breyta um stefnu. Þá heyrði ég aftur röddina: „Stýrið lengra í suðvestur.“ Ég þaut nú fram í stýrisklefann og spurði stýrimann- inn hvort nokkuð hefði komið fyr- ir. Hann sagði mér þá að þeir hefðu séð eitthvert brak, en ekki getað sé það vel fyrir veðurofsan- um þó væri ekki ólíklegt að það hefði verið skipsflak. Sagði ég þá stýrimanninum hvað fyrir mig hafði borið inni í kortaklefanum, hafði ég naumast lokið frásögn minni þegar við báðir heyrðum röddina: „Stýrið í suðvestur“ og það hljómaði þannig fyrir eyrum okkar að þrátt fyrir þessar erfiðu kringumstæður urðum við að hlýða. Strax eftir að stefnunni hafði verið breytt, lægði storminn mikið. Fleiri menn voru settir á „útkíkk“. Eftir 2 tíma var hrópað að brak væri framundan. Við færðumst nær og nær. Stýrimaðurinn greip í hönd mína og sagði: „Þarna eru menn.“ Ég neitaði því, því ég var sann- færður um að enginn maður hefði getað komist lifandi frá skipsskaða í þessu fárviðri. En stýrimaðurinn hafði rétt fyrir sér. Þarna voru bundin á fleka 5 karlmenn 1 kona og 2 börn. Fljót- lega gátum við komið út báti, og komið þessu nauðstadda fólki til hjálpar og bjargað því um borð. Allir voru meðvitundarlausir en með lífsmarki. Voru nú allir hátt- aðir og komið í rúm, og hlúð að þeim eftir föngum. Stefnunni var nú aftur breytt á móti stormi og sjó í samræmi við upphaflega áætlun. Sá fyrsti af þessu skipbrotsfólki, sem opnaði augun var annað barnanna, sem var drengur, hann kallaði til móður sinnar. Innan skamms voru allir komnir til með- vitundar og voru mjög þakklátir þegar það rann upp fyrir þeim að kraftaverk hafði gerst, og þeim hafði verið bjargað á svo dásam- VÍKINGUR t f 254

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.