Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 35
Útlitsmynd af hvirfilvindinum „Bella“ (1967) tekin úr vél bandaríska flughersins yfir Mexicoflóa. Rannsóknarflugvélar
hafa oft flogið gegnum slík augu í rannsóknarskyni og mun það vera óvenjuleg lífsreynsla.
koparnagla yrði komið fyrir á
toppi hæsta siglutrésins og þaðan
koparvír niður í koparplötu í botni
skipsins, sem leiddi eldinguna í
sjóinn.
Harris leysti vissulega vandann.
Hann lét fara fram rannsókn á 220
breskum herskipum, sem orðið
höfðu fyrir eldingu og niðurstaðan
var sú, að 75% höfðu fengið eld-
ingu á efsta hluta skipsins, það er
að segja hæsta siglutoppinn. Af
þessum 220 skipum kom eldur upp
i 50 sem varð 90 mönnurn að bráð.
Þá benti Harris á, að eitt skipanna,
herskipið „Acteon“, sent að hans
ráði, hafði koparnagla á siglunni
og oft hafði orðið fyrir eldingu.
Eldingin hafði einfaldlega farið
beint í sjóinn, að vísu ekki há-
vaðalaust, en án þess að valda
skaða.
Spenna eldingar, getur orðið allt
upp í 20.000 volt, og mörgum hef-
ur dottið í hug, að nota mætti
þennan kraft til hagkvæmra hluta,
en sjálft straummagnið í eldingu er
VÍKINGUR
ekki mikið, eða aðeins til að
kveikja stuttan ljósglampa i glóð-
arþráð peru. En hið litla straum-
magn er engin huggun, þegar lán-
ið er ekki með, sem oft skeði á
sjónum — jafnvel eftir að Sir
Harris hafði fengið flot^mála-
ráðuneytið á sitt band.
í breska herskipaflotanum, varð
tjón af völdum eldinga áberandi
minna, en breski kaupskipaflotinn
og annarra landa kaupskip, not-
uðu sér ekki hugmynd Harris.
Þegar tímar liðu leystist vand-
inn af sjálfu sér, þegar tími tré-
skipanna var að renna út. Járn-
skipin, urðu sjálfkrafa að eldinga-
leiðara og baráttunni við þrumu-
veðrin lokið.
Sumir héldu því fram, að eld-
ingu slæi aldrei tvisvar niður á
sama stað. Þetta var að sjálfsögðu
hjátrú. Þess eru mörg dæmi að
eldingu hefur slegið niður oftar en
einu sinni, eða tvisvar á sama stað.
Hitt er staðreynd, að karlmenn
verða oftar fyrir eldingum en
kvenfólk, en á því er einföld skýr-
ing, nefnilega sú, að karlmenn eru
meira úti við og á sjó, heldur en
hitt kynið.
Þrumuveður er ætíð stórfeng-
legt sjónarspil, bæði á sjó og landi.
Marga hrífur það, efi aðrir, og þeir
eru fleiri, verða hræddir. Sagt er að
Martin Luther, hefði aldrei orðið
það, sem hann varð, ef þrumu-
veður hefði ekki komið til. Hann
sagði að eldingu hefði slegið niður í
námunda við hann, og það taldi
hann hafa verið vísbendingu frá
guði og þessvegna ákvað hann að
gerast predikari.
Þótt þrumuveður skelfi ekki
lengur sjómanninn, eins og storm-
ar og fárviðri gera, enn þann dag í
dag, þá er það enn óhugnanlegt
raunsæum og hugprúðum mönn-
um, sem gera sér ljóst hversu
krafturinn er mikill. Elding getur
verið 5—6 km. löng og framleitt
36.000 stiga hita.
267