Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Qupperneq 42
Stýrímannaskólinn
í Reykjavík
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík var slitið í 85. sinn 29. maí. í
upphafi gaf skólastjóri stutt yfirlit
yfir starfsemi skólans á liðnum
vetri. I skólanum voru 191 nem-
andi í 10 bekkjardeildum. Auk
þess voru 1. stigs deildir á Isafirði, í
Neskaupstað og í Vestmannaeyj-
um í samvinnu við iðnskólana á
þeim stöðum. Prófi 1. stigs luku 85
nefmendur, prófi 2. stigs 54 og
prófi 3. stigs 26. Efstur á prófi 3.
stigs var Jón Sigmar Jóhannsson,
9.48, og hlaut hann verðlaunabik-
ar Eimskipafélags Islands, far-
mannabikarinn. Efstur á prófi 2.
stigs var Pétur Björnsson, 9.74, og
hlaut hann verðlaunabikar Öld-
unnar, Öldubikarinn. Hann var
einnig efstur á prófi 1. stigs sem
haldið var síðast í apríl. Fjórir
nemendur luku bæði prófi 1. og 2.
stigs.
Bókaverðlaun úr Verðlauna- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar
skólastjóra hlutu eftirtaldir nem-
endur sem allir höfðu hlotið
ágætiseinkunn. Á 3. stigi:
Guðmundur Bjarni Traustason,
Guðni Albertsson og Jón Sigmar
Jóhannsson. Á 2. stigi: Aðalsteinn
Björnsson, Jónas Pétur Jónsson,
Páll Hermannsson, Pétur Björns-
son, Stéfán Þröstur Halldórsson og
Tómas Már ísleifsson.
Skólastjóri ávarpaði nemendur
og óskaði þeim til hamingju með
prófið. Benti hann þeim á ábyrgð
þeirra í væntanlegu starfi og
brýndi fyrir þeim árvekni.
Mjög margir eldri nemendur
voru viðstaddir skólaslit, meðal
annarra 5 af þeim sem luku prófi
fyrir 60 árum. Orð fyrir þeim hafði
Egill Jóhannsson. Af hálfu 35 ára
prófsveina talaði Andrés Finn-
bogason, 30 ára Jónas Þorsteins-
son, 20 ára Jónas Guðmundsson og
10 ára Óskar Þór Karlsson. Tíu ára
prófsveinar færðu skólanum fjár-
gjafir í Tækjasjóð skólans og
Styrktarsjóð nemenda. Tuttugu
ára prófsveinar gáfu skólanum
styttu af sjómanni, gerða af Ragn-
ari Kjartanssyni. Jónas
Guðmundsson gaf auk þess heims-
kort. Áður hafði Halldór Almars-
son, skipstjóri og fyrrverandi nem-
andi fært skólanum talstöð.
Að lokum þakkaði skólastjóri
gjafir og gestum komuna. Lét hann
í ljós ánægju sína yfir heimsókn
eldri neinenda. Einnig þakkaði
hann kennurum, prófdómendum
og skólanefnd störf þeirra og góða
samvinna á liðnu skólaári og sagði
skólanum slitið.
Þessir luku 3. stigs prófi:
Björgvin Vilhjálmsson
Eggert Bjarni Bjarnason
Einar Ragnarsson
Guðmundur Ingi Björnsson
Guðmundur Jósefsson
Guðmundur Bjarni Traustason
Guðni Albert Einarsson
Gunnar Ólafur Jónsson
Gunnar Jensen Víkingsson
Hákon Karl Markússon
Hrafn Margeir Heimisson
Ingimundur Elísson
Ingvar Jósep Sigurðsson
Jón Sigmar Jóhannsson
Kjartan Smári Ólafsson
Kristinn Sófus Pálmason
Páll Árnason
Páll Þórir Pálsson
Pétur Ragnar Sighvatsson
Jónas Sigurðsson
Skólastj. Stýrimannask.
Ragnar Kristján Agnarsson
Svanur Guðbjartsson
Sævar Guðjónsson
Viðar Gunnarsson
Vilbergur Prebensson
Vilhjálmur Vilhjálmsson
Þórður Bjarkan Árelíusson
Þessir luku 2. stigs prófi:
Aðalsteinn BJörnsson
Ari Sigurjónsson
Árni Sigurðsson
Ásmundur Ásmundsson
Birgir Sigurðsson
Birgir Stefánsson
Björn Jónasson
Björn Sigurbjörnsson
Brynjólfur Garðarsson
Brynjólfur Oddsson
Davíð Ágúst Guðmundsson
Einar Jóhannsson
Eiríkur Ragnarsson
Finnur Magni Flnnsson
Gísli Þór Garðarsson
Gísli Guðjón Guðjónsson
Guðmundur Kr. Magnússon
Gunnar BJörn Tryggvason
Gunnlaugur Sveinbjörnsson
Hafþór Eide Hansson
Hjörleifur Pétursson
274
VlKINGUR