Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Blaðsíða 17
markað
Sæmundur Guövinsson
tók saman
Asbjorn Jonsson, framkvæmdastjóri Fiskkaupa hf
Ut í hött að skylda alla
til að skipta við markaði 1
„Ég er mjög mótfallinn því að það verði
gert að skyldu að landa öllum fiski á
markaði. Fiskmarkaðir eru frjálst kerfi en
mér finnst út í hött að skylda alla til að
skipta við markaði. Síst af öllu væri þetta
hagkvæmt fyrir stærri fyrirtæki sem eru að
reyna að vinna sinn fisk sjálf sem þeirra bát-
ar veiða. Þó held ég þetta hefði í för með sér
alltof mikið magn á markaði, sem þýddi
lægra verð en er í dag. Kosturinn við að allur
fiskur færi á markaði verði kannski sá, að þá
breyttist þessi fiskmarkaður frá því að vera
fyrst og fremst seljendamarkaður eins og
hann er núna,“ sagði ÁsBJÖRN JóNSSON,
framkvæmdastjóri Fiskkaupa hf.
„Mörg fiskvinnslufyrirtæki hafa þann hátt
á, að þau vinna þær fisktegundir sem þau
hafa sérhæft sig í en láta bjóða annan fisk upp
á markað af því sem kemur að landi á þeirra
bátum. Þannig spilar þetta á vissan hátt
saman og ekkert nema gott um það að segja.
Mér finnst að þannig eigi þetta að vera áfram.
Við höfum gert mikið af því að semja um
viðskipti við báta sem landa hjá okkur og
draga úr kaupum á mörkuðunum. Það er
mjög dýrt að skipta við markaðina, en eflaust
myndi kostnaðurinn lækka hjá þeim ef mag-
nið eykst. Það er mikið um að menn selji
okkur afla í föstum viðskiptum og þá er ég
ekki endilega að tala um kvótaviðskipti. Til
dæmis kaupum við mikið af færabátum í
föstum viðskiptum, sem ekki eru með kvóta.
Það gerum við til að fá betri fisk. Þessi fiskur
sem við fáum beint af trillunum er miklu
betri en sá sem fer í gegnum markaðina. Þar
ræður meðferðin, geymslan, umísun og
fleira. En auðvitað eru fiskmarkaðir komnir
til að vera og ég er ekki að setja út á þá. Fiins
vegar er ég andvígur því að það verði gert að
skyldu að allur fiskur fari á markað,“ sagði
Asbjörn Jónsson. ■
Sjómannablaðið Víkingur
17