Fréttablaðið - 14.07.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 14.07.2009, Síða 4
4 14. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR UTANRÍKISMÁL „Ef tveir aðilar gera samning og eftir að samningur- inn hefur verið gerður ákveður annar að setja einhverja fyrir- vara um samninginn, þá er hann ekki gildur fyrr en hinn aðilinn hefur samþykkt hann,“ segir Jakob Möller hæstaréttarlögmaður. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær ræða þingmenn sín á milli um að setja fyrirvara við frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave. Jakob segir að sé slíkt gert þurfi að taka aftur upp viðræður við Breta og Hollendinga um þá fyrir- vara. Íslendingar geti ekki sett ein- hliða fyrirvara án samþykkis við- semjendanna. Fyrr en Bretar og Hollendingar samþykki fyrirvar- ana - komi þeir fram - öðlist samn- ingurinn um Icesave ekki gildi. Stefán Már Stefánsson laga- prófessor tekur í sama streng. Fyrirvarar yrðu skoðaðir sem höfnun þess samnings sem liggur fyrir eins og hann er og nýtt til- boð. „Fyrirvarar fela í sér höfnun samningsuppdráttarins. Þetta er þó ekki jafnmikil breyting og að segja bara: Við höfnum samningn- um,“ segir Stefán. Hann býst við hörðum viðbrögð- um verði sú niðurstaðan. „Þá upp- hefst djöfuls reiði, það er alveg klárt. En menn þyrftu að skoða hvort ekki sé hægt að minnka þjáningarnar einhvern veginn.“ Fréttablaðið hefur reynt að fá upplýsingar um hvort einhverjar viðræður hafi átt sér stað við Breta og Hollendinga nú þegar vegna mögulegra fyrirvara, en það hefur ekki fengist staðfest. Stefán Már segir að þeim mun vægari sem fyrirvararnir yrðu þeim mun auðveldara yrði að semja um þá við viðsemjendur. Hins vegar gætu viðbrögð orðið hörð og jafnvel þannig að ekki yrði hægt að ræða málin aftur næstu mánuðina. Þegar að viðræðum kæmi væri það undir hælinn lagt hvort við- ræðunefndin sjálf væri rétti vett- vangurinn. Stefán segir hins vegar mikilvægt að erlendir sér- fræðingar séu kallaðir til að stoðar við samningana; bæði gagnvart viðsemjendum, Bretum og Hol- lendingum, og öðrum Evrópu- þjóðum. Sú leið hefur verið nefnd að fresta málinu til haustsins, en Jakob bendir á að í samningnum sé gert ráð fyrir að ríkisábyrgðin sé samþykkt á sumarþinginu. Á það hefur þó verið bent að sumar- þingið kemur aftur til starfa í haust. kolbeinn@frettabladid.is Fyrirvarar binda ekki Breta og Hollendinga Lögfræðingar eru sammála um að allir viðsemjendur verði að samþykkja þá fyrirvara sem Alþingi kann að setja við ríkisábyrgð vegna Icesave. Fyrirvarar jafngildi nýju samningstilboði. Ekki fæst uppgefið hvort rætt hefur verið við þá. STEFÁN MÁR STEFÁNSSON Segir fyrirvara skoðaða sem höfnun. JAKOB MÖLLER Telur fyrirvara þýða að taka þurfi upp við- ræður. ICESAVE Skiptar skoðanir eru um Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar og á Alþingi er nú rætt um að setja fyrirvara við það. Lögfræðingar segja að það jafngildi því að samþykkja samninginn ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Meira í leiðinniWWW.N1.IS Sími 440 1000 N1 verslanir: Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Ólafsvík, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi, Reyðarfirði og Höfn. Föt sem vinna með þér Vinnufötin fást í N1 DÓMSMÁL Tuttugu og þriggja ára karlmaður hefur verið dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára gamalli stúlku. Maðurinn kynntist stúlkunni á samskiptavef á netinu. Þau ákváðu að hittast, maðurinn sótti stúlkuna á bíl og í bílnum fóru atlotin fram. Maðurinn káfaði á brjóstum stúlkunnar og hún fró- aði honum. Bæði vissu af aldri hins og athæfið fór fram með vilja beggja, en maðurinn er engu að síður dæmdur fyrir mök við ólögráða barn. Engu er talið breyta þótt stúlkan hafi verið samþykk atlotunum. - sh Lét 14 ára stúlku fróa sér: Árs skilorð fyrir brot gegn barni BRETLAND, AP Bob Ainsworth, varnarmálaráðherra Bretlands, varði í gær aðgerðir breska hers- ins í Afganistan, sem hafa kostað 15 breska hermenn lífið það sem af er þessum mánuði. „Við getum ekki losnað við áhættuna úr aðgerðum af þessu tagi,“ sagði hann á þingi. Hávær mótmæli hafa verið í Bretlandi síðustu daga vegna þróunarinnar í Afganistan. Nú hafa 184 breskir hermenn fallið þar frá upphafi, og er mannfallið þar með orðið meira en í Írak. Bretar taka þátt í aðgerðum Bandaríkjahers gegn talibönum í sunnanverðu Afganistan. - gb Varnarmálaráðherra Breta: Segir áhættuna óhjákvæmilega MÓTMÆLI Í BRETLANDI Mannfall í Afganistan eykur þrýsting á bresk stjórn- völd. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNSÝSLA Mikið álag er á emb- ætti ríkissaksóknara. Fjöldi ákærumála tvöfaldaðist á árun- um 2005 til 2008. Þau voru 243 árið 2005 en 486 árið 2008. Fjöldi starfsmanna við embættið, fjór- tán, hefur verið nánast óbreyttur síðastliðin tíu ár, þrátt fyrir þetta aukna álag. Valtýr Sigurðsson ríkissaksókn- ari segist hafa áhyggjur af stöðu embættisins. Hefur hann skrif- að forsætisráðherra bréf þar sem hann lýsir áhyggjum af stöðunni. „Þetta gengur þó vel því hér vinn- ur úrvalsfólk,“ segir Valtýr. Nefnir hann, sem dæmi um dugnað ákæruvaldsins, málið um mann sem nauðgaði konu í iðnað- arhverfi í Hafnarfirði. Atvikið átti sér stað 21. maí. Málið barst Ríkis- saksóknara frá lögreglu 18. júní og daginn eftir var gefin út ákæra. Dómur gekk í málinu 10. júlí þar sem sakborningurinn hlaut fjög- urra og hálfs árs fangelsi. „Þessi málsmeðferðartími, rúmar sjö vikur í heild, frá því verknaður er framinn og þar til dómur gengur, er til mikillar fyrir- myndar og ljóst að allir aðilar hafa lagst á eitt til að svona vel tækist til,“ segir Valtýr. Gefa á út ákæru í nauðgunar- málum innan 70 daga, samkvæmt reglum Ríkissaksóknara. Ekki höfðu liðið þrjátíu dagar þar til ákæra var gefin út í þessu máli. - vsp Fjöldi ákærumála tvöfaldast hjá Ríkissaksóknara en starfsmannafjöldi er sá sami: Gengur vel þrátt fyrir álag VALTÝR SIGURÐSSON Hefur áhyggjur af álagi á embætti rík- issaksóknara. VEÐURSPÁ Alicante Bassel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 32° 32° 23° 23° 23° 22° 28° 23° 23° 24° 21° 30° 28° 33° 21° 25° 25° 21° Á MORGUN 3-8 m/s Hvassast SA-til FIMMTUDAGUR Hægur vindur um allt land 11 10 8 8 7 8 7 10 11 12 4 10 11 10 8 6 7 5 3 4 9 8 14 10 9 8 13 16 10 9 10 16 RIGNING Í dag verður frekar vætu- samt norðan- og austanlands en sunnantil verður nokkuð bjart. Held- ur verður svalara hjá okkur þessa vikuna heldur en undanfarið en hlýj- ast verður inn til landsins sunnan- og vestanlands. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþingis taldi að samgönguráðu- neytið hefði ekki leyst úr kæru Félags vélstjóra og málmtækni- manna (FVM) í samræmi við lög. Þetta kemur fram í áliti Umboðs- manns frá 6. júlí. Beindi hann þeim til- mælum til ráðuneytisins að taka úrskurð sinn til endurskoðunar. Mönnunarnefnd skipa hafði heimilað að fækka vélstjórum um borð í tilteknu skipi úr þremur í tvo. FVM kærði þann úrskurð en ráðuneytið taldi að félagið ætti ekki kæruaðild að málinu. Ástæð- an var að úrskurður mönnunar- nefndar hefði ekki varðað umtals- verðan hluta félagsmanna þess. Ekki fengust svör frá sam- gönguráðuneytinu um næstu skref í málinu í gær. - vsp Álit Umboðsmanns Alþingis: Ráðuneytið fór gegn lögum KRISTJÁN MÖLLER LANDBÚNAÐUR Alls seldust 320 tonn af íslensku nautakjöti í síð- asta mánuði. Það er tæpum sex prósentum meira en á sama tíma í fyrra. Síðastliðna tólf mánuði hefur sala á nautakjöti þó minnkað og var 3.640 tonn og dróst því saman um rúm tvö prósent. Þá hefur innflutningur á nauta- kjöti dregist saman undanfarna mánuði. Fyrstu fimm mánuði ársins voru flutt inn 49 tonn af nautakjöti, miðað við 197 tonn á sama tímabili í fyrra. - þeb 320 tonn seldust í júní: Íslenskt nauta- kjöt selst beturEFNAHAGSMÁL Lögfræðingar Seðlabankans gagnrýna Icesave- samninga harðlega í lögfræðiáliti sem þeir hafa kynnt þingnefnd- um. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi. Segja þeir meðal annars að lánið, og þar með öll erlend lán ríkisins, geti gjaldfallið ef fyrirtæki á borð við Landsvirkjun og Byggðastofnun standa ekki í skilum með sín lán. Í áliti Seðlabankans kemur fram að ekki hafi verið leitað álits bankans við samningsgerð- ina. Þá segir að hvergi í samning- unum sé vísað til fordæmislausra aðstæðna Íslendinga. - sh Lögfræðingar Seðlabankans: Gagnrýna Ice- save-samninga GENGIÐ 13.07.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 231,0038 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,63 128,23 205,44 206,44 178,46 179,46 23,966 24,106 19,662 19,778 16,129 16,223 1,3832 1,3912 197,76 198,94 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.