Fréttablaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 8
 14. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR TYRKLAND, AP Fjögur Evrópu- sambandsríki undirrituðu í gær samning við Tyrkland um nýja gasleiðslu frá Kákasuslöndunum til Evrópu. Með þessu opnast sá möguleiki að Evrópuríki verði ekki jafn háð Rússlandi um gas og verið hefur. Nabucco-gasleiðslan, eins og hún hefur verið nefnd, verður 3.300 kílómetra löng og getur flutt allt að 31 milljarð rúmmetra af jarðgasi á ári. Gangi allt áfalla- laust verður hún tekin í notkun árið 2014. „Nabucco mun veita Tyrk- landi, Suðaustur-Evrópu og Mið- Evrópu orkuöryggi,“ sagði Jose Manuel Barroso, framkvæmda- stjóri Evrópu sambandsins, þegar samningurinn var undirritaður við hátíðlega athöfn í Tyrklandi í gær. Fyrst í stað verður samið um flutning á jarðgasi frá Aserbaídsjan, en síðar er von- ast til að jarðgas komi frá öðrum löndum í Mið-Asíu og Austur- löndum nær. Nú er staðan sú að meira en fjórðungur af því jarðgasi, sem notað er í Evrópu, kemur frá Rússlandi, og áttatíu prósent af því eru flutt um gasleiðslur sem liggja yfir Úkraínu. Síðastliðinn vetur urðu deilur milli Rússa og Úkraínumanna til þess að Úkraínumenn skrúf- uðu fyrir gasið frá Rússlandi til Evrópu, með alvarlegum af leiðingum í sumum Mið-Evrópu- ríkjum, þegar húshitun brást á köldustu vetrarvikunum. Ekki er þó ætlunin að útiloka Rússa frá markaðnum, heldur er hugmyndin fyrst og fremst sú að jarðgas til Evrópuríkja komi frá fleiri aðilum. Til greina kemur einnig að hluti af gasinu, sem kemur frá Rússlandi, verði fluttur um Nabucco-leiðsluna. Rússar hafa síðan eigin áform um að leggja nýja leiðslu frá Rúss- landi yfir Svartahaf, sem getur flutt gas til Búlgaríu, Rúmeníu, Ítalíu og fleiri Evrópuríkja. Barroso lagði þó í gær einkum áherslu á að framkvæmdin komi til með að styrkja samband Tyrk- lands við Evrópusambandið. „Ég tel að þegar fyrsta gasið fer að streyma, og sumir sérfræð- ingar hafa sagt að það geti orðið strax árið 2014,“ sagði Barroso, „þá muni þessi samningur opna dyrnar að nýju tímabili í sam- skiptum Evrópusambandsins og Tyrklands.“ gudsteinn@frettabladid.is Evrópuríki semja um gas við Tyrki Ný gasleiðsla kemur í veg fyrir að deilur Úkraínu og Rússa valdi húskulda á vetrarmánuðum í Austur-Evrópu. Jose Manuel Barroso segir samninginn styrkja tengsl Tyrklands og Evrópusambandsins. Samningur undirritaður í gær. UNDIRRITUN AFSTAÐIN Jose Manuel Barroso, framkvæmdastjóri ESB, ásamt forsætisráðherrunum Gordon Bajnai frá Ungverja- landi, Werner Fayman frá Austurríki, Recep Tayyip Erdogan frá Tyrklandi, Sergei Stanishev frá Búlgaríu og Emil Boc frá Rúmeníu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP © GRAPHIC NEWSSource: Nabucco Gas Pipeline Samningur um Nabucco-gasleiðsluna Hugmyndin er að allt upp í 31 milljarður rúmmetra af jarðgasi verði fluttur á ári hverju frá austanverðu Tyrklandi til Evrópu, alls um 3.300 kílómetra leið. AUSTURRÍKI UNGVERJALAND ÚKRAÍNA ÍTALÍA BÚLGARÍA RÚMENÍA Svartahafið Suðurleiðin: Áform Rússa í samkeppni við Nabucco RÚSSLAND ASERBAÍDSJAN TYRKLAND ÍRAN ÍRAK EGYPTALAND Kaspíahaf Nabucco Aðildarríki: Tyrkland, Búlgaría, Rúmenía, Ungverjaland, Austurríki Jarðgasið kemur einkum frá: Aserbaídsjan (15 milljarðar rúmmetra á ári) Jarðgas hugsanlega einnig frá: Túrkmenistan, Egyptalandi, Íran, Írak, Kasakstan. 200 km Gildir til 19. júlí eða á meðan birgðir endast. 1.048kr/kg. GRÍSA HNAKKASNEIÐAR Merkt verð 1.398.- 689kr/kg. LÍNU ÝSA ROÐ- OG BEINLAUS 1.599kr/pk. JENSENS BBQ SVÍNARIF 527kr/pk. RESTAURANT STYLE HAMBORGARAR Merkt verð 659.- ÍÞRÓTTIR Viktor Orri Pétursson, 12 ára, var dreginn út sem fyrsti vinningshafi í leik Draumaliðs Pepsi í gær. Verðlaunin eru knatt- spyrnuskóli hjá Manchester Unit- ed, ásamt flugi, gistingu og fæði. Dregið verður 13 sinnum til við- bótar, eftir hverja umferð í Pepsi- deild karla. Draumalið Pepsi er fótbolta- skiptimyndir af öllum leikmönn- um Pepsi-deildar karla sem og landsliðum kvenna og karla. „Fyrirkomulagið er þannig að fotbolti.net birtir einu sinni í viku lið umferðarinnar í íslensku deild- inni. Ef börn eiga átta af þeim ell- efu sem eru í liðinu geta þau sent myndirnar inn og einn heppinn er svo dreginn út,“ segir Jóhann Jóhannsson hjá Draumaliði Pepsi. Draumaliðið er með býtti- miðstöð í húsakynnum sínum, Ármúla 18, þar sem börn geta komið og býttað. „Þá þurfa þau ekki að kaupa sér marga pakka til að vera með draumaliðið. Í staðinn geta þau komið hingað og býttað þar til þau eru með liðið,“ segir Jóhann. Í lok tímabilsins, í október, verður svo einn heppinn dreginn út sem fær miða á leik í Meistara- deild Evrópu, ásamt foreldrum. - vsp Tólf ára strákur var dreginn út sem fyrsti vinningshafi Draumaliðs Pepsi: Skóli hjá Manchester í verðlaun VIKTOR OG JÓHANN Viktor Orri Péturs- son ásamt Jóhanni Jóhannssyni hjá Draumaliði Pepsi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.