Fréttablaðið - 14.07.2009, Side 11

Fréttablaðið - 14.07.2009, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. júlí 2009 11 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 11 Velta: 4,2 milljónir OMX ÍSLAND 6 749,49 +0,49% MESTA HÆKKUN BAKKAVÖR 10,40% MESTA LÆKKUN ÖSSUR -0,44% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,50 +7,14% ... Atlantic Airways 159,00 0,00% ... Atlantic Petroleum 475,00 +0,00% ... Bakkavör 1,38 +10,40% ... Eik Banki 80,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,50 +0,00% ... Icelandair Group 4,75 +0,00% ... Marel Food Syst- ems 54,20 +0,00% ... Össur 113,50 -0,44% Byggingafélagið og lánveitandinn Nationwide hefur ákveðið að bjóða núverandi viðskiptavinum sínum allt að 125 prósenta lán ef þeir hafa hug á að skipta um íbúð. Lánið er einungis í boði til við- skiptavina þar sem hrein eign er neikvæð, sem gerist þegar lán áhvílandi á íbúð lántakenda er meira virði en markaðsvirði heim- ilis viðkomandi. Lánið bætist við það lán sem fyrir er, en að hámarki 25 prósent af markaðsvirði nýju eignarinnar. Talsmaður fyrirtækisins segir í viðtali við BBC að lánið hafi fyrst verið boðið í síðasta mánuði og eigi að hjálpa afar takmörkuðum hópi viðskiptavina. Hann segir einnig að lánið sé ekki aðgengilegt öllum viðskiptavinum félagsins og þeir þurfi að gangast undir áreiðan- leikapróf. - bþa Bjóða 125 prósenta lán Á fyrri hluta árs 2009 voru 413 þúsund falsaðir evruseðlar tekn- ir úr umferð. Er þetta aukning um sautján prósent frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Evrópu. Í tilkynningunni segir að ekki sé um nýja flokka falsaðra seðla að ræða heldur sé verið að dreifa fyrri útgáfum falsaðra seðla í auknum mæli. Þess ber að geta að um 12.500 milljarðar seðla eru í umferð á evrusvæðinu. Sá seðill sem oftast hefur verið handlagður er 20 evru seðillinn, í 48,5 prósent tilvika. Næstur er 50 evru seðill- inn, í 34 prósent tilvika. Athyglis- vert er að sjaldnast voru 5 evru og 500 evruseðlar teknir úr umferð eða um 0,5 prósent í hvoru tilviki af heildarfjölda handlagðra seðla. - bþa Fleiri falsaðir seðlar í umferð VINSÆLIR MEÐAL FALSARA 20 evru seðillinn oftast gerður upptækur. Pascal Lamy, framkvæmdastjóri alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO varar við of mikilli bjart- sýni og segir að langt sé frá því að kreppunni sé að ljúka. Hann bendir á að merki sé um að mörg þróunarlönd og nýmark- aðsríki séu nú að finna fyrir kreppunni af fullum krafti. Lamy segir jafnframt að stað- an sé ákaflega viðkvæm um þess- ar mundir enda hafi viðskipti milli landa aldrei dregist jafn mikið saman og á síðustu mánuðum. - bþa Varar við mik- illi bjartsýni TELUR VALITOR BRJÓTA SAMKEPPNISLÖG Jóhannes Ingi Kol- beinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, segir að Valitor sé byrjað að stunda sömu viðskiptahætti og það var sektað fyrir af Samkepppniseftirlitinu fyrir um ári síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Kortaþjónustan hefur sent kvört- un til Samkeppniseftirlitsins vegna margvíslegra og ítrekaðra brota Valitors á samkeppnislög- um. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Kortaþjónustunni. Kvörtunin snýr að misnotk- un á markaðsráðandi stöðu, til dæmis með sértækum verð- lækkunum, ólögmætri sam- tvinnun á þjónustuþáttum og ómálefnalegri beitingu hópaðildar fyrirkomulags. „Ekki er nema eitt og hálft ár síðan Valitor, Borgun og Fjölgreiðslu- miðlun náðu sáttum við Sam- keppniseftirlitið um greiðslu á 735 milljóna króna sektum, þar sem fyrir tækin viðurkenndu langvarandi og víðtæk sam- keppnislagabrot,“ segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmda- stjóri Kortaþjónustunnar. „Sem markaðsráðandi aðili má Valitor ekki lækka gjaldskrá með því að lækka verð til einstakra aðila. Við höfum upplýsingar frá við- skiptavinum okkar og verðandi viðskiptavinum um að svo sé,“ segir Jóhannes. Í upphafi mánaðarins var gerð húsleit hjá Valitor eftir að athugasemdir bárust frá öðrum samkeppnisaðila, Borgun. Í fréttatilkynningu frá Valitor segir að þeir telji að kvörtun Kortaþjónustunnar eigi ekki við rök að styðjast enda hafi fyrir- tækið fylgt í hvívetna fyrirmæl- um laga og reglna um hegðun á markaði. - bþa Telja Valitor hafa misnotað markaðsstöðu sína

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.