Fréttablaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 16
14. JÚLÍ 2009 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● notaðir bílar
Í góðærinu keyptu sér margir
nýja bíla í stað þess að halda
þeim gömlu við og samhliða
því tók bílapartasölum að
fækka. Þeim fjölgar nú hins
vegar aftur með tilkomu
kreppunnar.
„Bílapartasölum var farið að fækka
en það eru komnir fleiri núna í at-
vinnuleysinu að reyna að bjarga
sér,“ segir Hjálmar Hlöðversson,
eigandi bílapartasölunnar Bíla-
kringlunnar. Eigendur annarra
bílapartasala taka í sama streng.
„Já, við finnum fyrir aukningu í
greininni. Það eru alla vega þrír
nýir salar búnir að skrá sig inn á
síðuna okkar og svo vitum við af
fleirum,“ segir Elías Pétursson, eig-
andi Aðalpartasölunnar, sem heldur
úti heimasíðunni www.parta solur.
is.
Að þeirra sögn hefur eftirspurn-
in eftir varahlutum í bíla tekið á sig
nýja mynd. „Það er verið að biðja
um hluti í eldri bíla heldur en áður.
Það er eins og bílarnir hafi verið
geymdir lengi og nú sé verið að
draga þá fram,“ segir Elías. „Fólk
er að biðja um varahluti í bíla sem
áður var hent. Nú erum við líka að
nýta betur það sem við rífum úr
bílunum heldur en við höfum gert í
mörg ár,“ segir Hlöðver Hjálmars-
son, eigandi bílapartasölunnar Jap-
anskar vélar.
Þá segja þeir skort á varahlutum,
meðal annars vegna þess að notað-
ir bílar séu ekki fluttir til landsins.
„Það er ekkert orðið til af varahlut-
um lengur, þetta er að verða eins og
á Kúbu,“ segir Elías. „Ekki eru allt-
af til réttu varahlutirnir og er fólk
tilbúnara en áður í að bíða eftir hlut-
unum,“ segir Hjálmar og bætir við
að þótt mikið sé spurt um varahluti
sé eins og fólk haldi að sér höndun-
um vegna fjárskorts.
Hvað framtíðarhorfur varðar
eru menn óvissir en töluverðrar
bjartsýni gætir. „Ljóst er að sam-
félagið er í hægagangi. En á meðan
notaðir bílar eru ekki lengur flutt-
ir inn eykst þörfin á varahlutum, og
því meira að gera hjá okkur,“ segir
Hlöðver.
Þeir benda þó á að í sumum til-
vikum liggi fólki ekki á að láta gera
við bíla sína, þar sem margir hafi
hvort eð er verið með fleiri en einn
bíl í góðærinu og þegar annar bili
sé hinn tekinn í notkun. Þeim liggi
því ekki endilega á að láta gera við
bifreiðar sínar. -hds
Breyttar áherslur í
bílapartasölu hérlendis
Lárus Sveinbjörnsson og Elías Pétursson, starfsmaður og eigandi Aðalpartasölunnar.
Vegna skorts á varahlutum segjast bílapartasalar nýta betur hluti úr bílum. FRÉTTABLAÐIÐSTEFÁN
Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður er áhugamað-
ur um bíla. Uppáhaldsbíllinn er gamall Suzuki Fox
jeppi frá árinu 1988 sem hann kallar Bláa refinn.
„Ég keypti bílinn af Birni Indriðasyni fyrir þremur
árum. Þá var ég búinn að horfa á hann standa núm-
erslausan í heilt ár í Nóatúni. Það var engin leið að
finna hver átti bílinn öðruvísi en að banka bara upp á
en það tók mig tvær vikur að sannfæra manninn um
að selja mér bílinn,“ segir Davíð sem borgaði 100.000
krónur fyrir bílinn sem var í góðu ástandi.
„Bíllinn er 44 hestöfl, léttur og sparneytinn og lit-
urinn á honum heitir Iceland Blue. Svo fékk ég læri-
meistara minn Sigga Rallý til að hjálpa mér með bíl-
inn, sprauta hann og hjálpa mér með viðhaldið,“ segir
Davíð en báðir eru meðlimir í Sambandi Íslenskra
Suzukijeppaeigenda.
Blái refurinn er frábær ferðafélagi að mati Dav-
íðs, sem ferðast um fjöll og firnindi á bílnum og er
þessa dagana staddur á LungA, listahátíð ungs fólks
á Austurlandi, á Seyðisfirði. „Við félagi minn fengum
svo þá hugmynd að opna sendlafyrirtæki, Blái send-
illinn. Fólk getur hringt og pantað þjónustuna ef það
vantar að láta keyra sig eitthvað, senda pakka eða
vantar að komast á rúntinn og spjalla við einhvern.“
- hds
Keyrir um á bláum ref
Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður ásamt Bláa refnum, Suzuki
Fox á þrítugsaldri. MYND/ÚR EINKASAFNI
Áhugi á fornbílum hefur aukist á síðustu árum og hefur þeim fjölgað
sem kaupa sér slíkar bifreiðar. Hins vegar getur stundum verið snúið
að finna í þá hentuga varahluti.
„Við erum með geymslu í Esjumel í Mosfellsbæ þar sem við höfum
opið flesta sunnudaga frá klukkan 13 til 15 þar sem hægt er að koma
og skoða varahlutina sem við eigum. Þetta er allt unnið í sjálfboða-
vinnu,“ segir Þorgeir Kjartansson, formaður varahlutanefndar Forn-
bílaklúbbsins.
Hann bætir við að Fornbílafélagið muni halda sérstakan varahluta-
dag í haust, nánar tiltekið 27. september. „Þá verður opið lengur hjá
okkur og fornbílar verða hafðir til sýnist á svæðinu,“ útskýrir hann.
„Annars er hægt að nálgast lista yfir varahluti á heimasíðu Forn-
bílaklúbbsins. Svo er algengt að menn kaupi hlutina erlendis frá,“
segir Þorgeir.
Nánari upplýsingar á heimasíðunni www.fornbill.is. - hds
Fjársjóðskista fyrir
fornbílaeigendur
Gamall bíll verður fornbíll við 25 ára aldur samkvæmt lögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
bfo.is
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar ehf
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GATA) · 200 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
bfo@bfo.is
BGS VOTTUÐ ÞJÓNU
STA
BG
S VO
TTUÐ ÞJÓNUSTA
Þjónustuverkstæði fyrir
eftirtaldar bifreiðar
reynsla – þekking – góð þjónusta