Fréttablaðið - 14.07.2009, Qupperneq 18
14. JÚLÍ 2009 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● notaðir bílar
Nýleg skýrsla frá trygginga-
fyrirtækinu Warranty Direct
nefnir Mözdu sem endingar-
besta bílinn í Bandaríkjunum en
sænskum ökumönnum þykir Saab
vera einstaklega endingargóður og
öruggur bíll.
Aðrir bílar sem bera af sam-
kvæmt skýrslunni eru Volvo, BMW
og Renault, sem eru í miklu uppá-
haldi hjá kröfuhörðum bílakaup-
endum.
Nýlegasta skýrsla Umferðar-
stofu um endingu bifreiða er frá
árinu 2003 og voru þá samkvæmt
henni Cherokee Jeep, Lada og
Mercedes Benz endingarbestu bif-
reiðarnar. Meðalaldur Cherokee
Jeep-bíla var rúm fimmtán ár en
meðalaldur Hyundai, sem var með
lægsta meðalaldurinn, var aðeins
tæp fimm ár.
- sm
Mazda og Saab
endingargóðir
Mazda-bifreið-
arnar njóta vinsælda í
Bandaríkjunum.
Þeir sem keyra Saab halda tryggð við
tegundina, enda þykir bíllinn sterkur og
öruggur. FRÉETTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sigurður Pálsson, markaðsstjóri Ellingsen, segir sölu á felli-
hýsum, hjólhýsum, tjaldvögnum og húsbílum framar vonum
í sumar, þó salan sé ekki eins mikil og síðustu tvö ár. Um 160
ný tæki og um 30 notuð hafa selst hjá þeim í ár, langflest af
fellihýsum, en þau hafa lengi verið vinsælust meðal landans.
„Ég held að fólk sé að nýta sér ákveðið tækifæri að kaupa
sér núna, sérstaklega þeir sem hafa kannski skotist í eina
helgarferð til útlanda í sumar. Mönnum blöskrar þegar þeir
fá reikninginn,“ segir Sigurður. „Fólk ætlar sér auðsjáanlega
að ferðast meira innanlands næstu árin á meðan þetta geng-
ur yfir.“ - kbs
Sala vonum framar
Margir fjárfesta í fellihýsi, annaðhvort notuðum eða
nýjum, frekar en utanlandsferðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VIHELM
Gott er að athuga loftið í dekkjunum og
munstur þeirra reglulega ásamt því að
bletta bílinn til að stoppa ryð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Fyrirhyggja skiptir miklu máli,“
segir Jóhannes Norðfjörð, eigandi
réttingaverkstæðisins Réttra bíla
þegar hann er beðinn um góð ráð
til að tryggja endingu eldri bíla.
„Gott er að fara með bílinn
reglulega inn á eitthvert verkstæði
og láta yfirfara hann,“ útskýrir Jó-
hannes og bætir við að meðal ann-
ars þurfi að skoða bremsur, demp-
ara og stýrisenda. „Ef bílarnir eru
farnir að ryðga þá þarf að reyna að
stoppa ryðið. Það er gert með því
að bletta bílinn.“
Jóhannes segir að reglulega
þurfi að athuga loftið í dekkjun-
um og munstur þeirra. „Til þess
að passa að ef sandur er á vegin-
um og verið er að hemla fari bíll-
inn ekki bara út af veginum. Svo
er hægt að skipta um rúður í bílum
ef þær eru orðnar mjög mattar og
passa þarf að þurrkublöðin séu í
lagi þegar kemur rigning.“ - mmf
Fara reglulega
á verkstæði