Fréttablaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 2
2 25. júlí 2009 LAUGARDAGUR
FÓLK Taílendingamót verður end-
urvakið í Grindavík í dag en það
hefur verið haldið einu sinni áður,
fyrir fimm
árum. Taílensk-
íslenska félagið
stendur fyrir
mótinu.
„Okkur í Taí-
lensk-íslenska
félaginu lang-
aði til þess
að halda mót
fyrir Taílend-
inga svip-
að ættarmót-
um Íslendinga,“ segir Phetchada
Khongchumchuen, formaður Taí-
lensk-íslenska félagsins.
Á mótinu verður meðal annars
keppt í som dam-salatgerð, sem
er þekkt í taílenskri matargerð
en útlendingum hættir til að finn-
ast heldur sterkt að sögn Phet-
chödu. - mmf / sjá Allt í miðju blaðsins
Taílendingar koma saman:
Ættarmót að
íslenskum sið
PHETCHADA
KHONGCHUM-
CHUEN
EFNAHAGSMÁL Fullyrðing lög-
mannsins Ragnars Hall um að
Ísland þurfi að greiða tvo millj-
arða króna í lögfræðikostnað
vegna Icesave-málsins er röng.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá fjármálaráðuneytinu.
Í tilkynningu frá ráðuneyt-
inu segir að innstæðutrygginga-
sjóðir Breta og Íslendinga hafi
gert með sér samkomulag um
að deila kostnaði við uppgjör við
sparifjáreigendur Landsbank-
ans í Bretlandi. Íslenski sjóð-
urinn fellst á að greiða kostnað
upp að 10 milljónum punda, um 2
milljörðum króna. Hluti af þeim
kostnaði er lögfræðikostnaður en
auk þess er ýmis aðkeypt þjón-
usta og tölvuvinnsla. - bþa
Tilkynning frá ráðuneytinu:
Fullyrðing
Ragnars röng
KANARÍ, AP Einn öflugasti sjón-
auki heims hefur verið tekinn í
notkun á Kanaríeyjum. Jóhann
Karl Spánarkonungur vígði hann.
Sjónaukinn stendur efst á
útkulnuðu eldfjalli og verður not-
aður til að kanna dauft ljós frá
fjarlægum hlutum alheimsins.
Meira en þúsund manns hafa
unnið að uppsetningu sjón-
aukans, sem heitir Gran Teles-
copio Canarias, en skipulagning
hófst árið 1987.
Vísindamenn segja að hann
muni nýtast til að kanna uppruna
stjarna, eðli svarthola og greina
efnasamsetningu allt aftur að
upphafi heimsins í Miklahvelli.
- gb
Nýtt mannvirki á Kanarí:
Einn öflugasti
sjónauki heims
KOMINN Í NOTKUN Sjónaukinn mikli á
Kanaríeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENF, AP Líklegt þykir að yfir
hundrað þúsund manns hafi smit-
ast af svínaflensu í Bretlandi og
hefur smituðum fjölgað um helm-
ing nú í vikunni. Í Bandaríkjun-
um er talið að fjöldi þeirra sem
hafa smitast sé kominn yfir millj-
ón.
Keiji Fukuda, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunarinnar WHO, segir að
faraldurinn sé enn á byrjunar-
reit. Stofnunin hefur áður sagt
líklegt að á næstu tveimur árum
muni allt að tveir milljarðar
manna smitast, eða nærri þriðji
hver jarðarbúi.
„Þótt hundruð þúsunda eða
jafnvel milljónir smitist, þá erum
við samt á byrjunarstigi heims-
faraldursins,“ sagði Fukuda.
Víða um heim eru stjórnvöld að
grípa til ráðstafana til að hægja
á útbreiðslu faraldursins. Í Sádi-
Arabíu var til dæmis ákveðið
að banna börnum, öldruðum og
langveiku fólki að fara í píla-
grímaför til helgu borgarinnar
Mekka í ár.
Af Evrópuríkjum er faraldur-
inn lengst á veg kominn í Bret-
landi. Um þrjátíu manns eru látn-
ir þar í landi. Stjórnvöld þar hafa
nú áhyggjur af því hvort heil-
brigðiskerfið anni þeim verkefn-
um sem flensan kallar á. - gb
Yfir hundrað þúsund hafa smitast af svínaflensu í Bretlandi:
Faraldurinn á byrjunarreit
VIÐBRÖGÐIN SKIPULÖGÐ Gordon
Brown, forsætisráðherra Bretlands, átti
fund með starfsmönnum heilbrigðisyfir-
valda í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ný siglingaaðstaða vígð
Ný aðstaða fyrir siglingafólk verður
vígð í Kópavogi í dag. Húsið er í
Naustavör og er á tveimur hæðum.
Í Naustavör er einnig ný sjósetning-
arrenna ásamt flotbryggju og góð
aðstaða fyrir báta í landi.
KÓPAVOGUR
LÖGREGLUMÁL Alls óvíst er hvort
tekst að endurheimta það fé sem
á dögunum var svikið út úr Íbúða-
lánasjóði og tveimur hlutafélög-
um með stórfelldum blekkingum
og skjalafalsi. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins vinnur efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra
nú að því að rekja slóð fjárins en
hefur ekki haft erindi sem erfiði.
Tveir menn, fæddir 1989 og
1990, voru handteknir vegna
málsins á miðvikudag og sitja
nú í gæsluvarðhaldi. Heimildir
blaðsins herma að fleiri séu taldir
við riðnir málið, en fleiri hafa ekki
verið handteknir að svo stöddu.
Aðferðirnar sem mennirnir ungu
beittu við svikin voru flóknar. Þeir
tóku yfir stjórn tveggja fyrirtækja
með því að falsa tilkynningar til
fyrirtækjaskrár um breytingar á
stjórnum þeirra og nýja prókúru-
hafa. Til þess þurftu þeir meðal
annars að falsa undirskriftir allra
stjórnarmanna. Síðan stungu þeir
undan eigum félaganna.
Þá fölsuðu þeir samninga um
sölu á fasteignum í eigu félag-
anna, tóku lán hjá Íbúðalánasjóði
fyrir kaupunum og stungu fénu
undan. Komist hefur upp um svik
sem nema ríflega 50 milljónum
króna og er talið að sú tala geti
enn hækkað.
Félögin sem svikin voru hafa
kært athæfið, auk þess sem fyr-
irtækjaskrá hefur lagt fram kæru
vegna skjalafalsins.
„Þegar menn senda falsaðar til-
kynningar til okkar þá er það nátt-
úrlega bara grafalvarlegt mál,“
segir Skúli Jónsson, forstöðumað-
ur fyrirtækjaskrár. Hann segir
mennina hafa tekið yfir stjórn
tveggja félaga, og það hafi síðan
verið árvökulir starfsmenn fyr-
irtækjaskrár sem uppgötvuðu að
ekki væri allt með felldu þegar
þeir reyndu að leika sama leik með
þriðja félagið.
Skúli segir svikin hafa verið
ótrúlega úthugsuð. Hann hafi
aldrei séð neitt þessu líkt.
Hvorugur mannanna tengist
félögunum, og þau tengjast ekki
innbyrðis. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins starfaði annar
mannanna sem gjaldkeri í banka
og nýtti þá stöðu sína til verksins.
Þá eru allir heimildarmenn
blaðsins sammála um að nær úti-
lokað sé að tveir menn um og
undir tvítugu hafi átt frumkvæð-
ið að svo flóknum svikum, og hefur
rannsókn lögreglu meðal annars
beinst að því að reyna að komast
að því hverjir fengu þá til verks-
ins. Rannsóknin mun meðal ann-
ars hafa teygt sig út fyrir land-
steinana.
Málið er afar viðkvæmt og lög-
regla verst af því allra fregna.
Þá voru forsvarsmenn félaganna
tveggja, sem mennirnir rændu
völdum í, beðnir að láta málið
ekki fréttast eftir að þeir komust
á snoðir um það til að vernda rann-
sóknarhagsmuni.
Mennirnir voru úrskurðaðir í
varðhald til 28. og 30. júlí. Þeir
kærðu báðir úrskurðina til Hæsta-
réttar, sem mun dæma í málinu
eftir helgi. stigur@frettabladid.is
Óvíst að milljónirnar
sviknu finnist aftur
Svik tveggja ungra manna sem höfðu tugi milljóna af tveimur hlutafélögum og
Íbúðalánasjóði voru ótrúlega úthugsuð, segir forstöðumaður fyrirtækjaskrár.
Útilokað er talið að menn um og undir tvítugu hafi átt að þeim frumkvæði.
VIÐSKIPTI Færeyski bankinn, Eik
banki, tapaði 69,2 milljónum
danskra króna eða 1,7 milljörðum
íslenskra króna á fyrri helmingi
þessa árs. Bankinn tapaði um tíu
milljónum danskra króna á sama
tímabili fyrir ári.
Í tilkynningu frá bankanum
segir að auknar afskriftir og minni
umsvif í kjarnastarfsemi bankans
skýri þessa afkomu. „Að þurfa að
kynna tap á starfsemi bankans er
ekki hægt að sætta sig við,“ segir
Marner Jacobsen, framkvæmda-
stjóri bankans. „Tapið kom hins
vegar ekki á óvart í ljósi þeirra
aðstæðna sem ríkja á alþjóðlegum
mörkuðum.“ - bþa
Eik banki kynnir uppgjör:
Hafa tapað 1,7
milljörðum
LÖGGÆSLA Lögreglan hefur þurft að sleppa því að
sinna fimm útköllum á tveimur sólarhringum vegna
mannfæðar, segir lögreglumaður sem sent hefur fjöl-
miðlum bréf vegna ástandsins hjá lögreglunni.
Í myndum sem fylgja síðasta bréfi lögreglumanns-
ins, sem óskar starfs síns vegna eftir nafnleynd, má
sjá yfirlit úr skrá lögreglu þar sem fram kemur að
lögreglumenn hafi ekki sinnt útköllum, til dæmis inn-
broti við Reynisvatn.
Þá var margítrekaðri kvörtun í fjölbýlishúsi vegna
hávaða sinnt mjög seint. Þegar lögregla kom loks á
staðinn var ölvað fólk að leika sér að opnum eldi við
fjölbýlishúsið og notaði til þess grillvökva, segir lög-
reglumaðurinn.
Í bréfi hans segir enn fremur að Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu skuldi rannsóknarlögreglumönnum
um 200 yfirvinnutíma, og að hjá lögreglu bíði mörg
mál frá því í maí sem ekkert hafi verið rannsökuð.
Lögreglumaðurinn undrast orð dómsmálaráðherra,
sem sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær að ekki komi
til greina að fara fram á aukafjárveitingu fyrir lög-
reglu, en að hún voni að niðurskurður bitni ekki á
þjónustu við almenning.
Lögreglumenn bjuggust við stuðningi frá ráðuneyt-
inu og því var það eins og blaut tuska í andlitið þegar
ráðherra sagði að það væri hægt að halda uppi viðun-
andi löggæslu þrátt fyrir niðurskurð, segir lögreglu-
maðurinn. - vsp
Orð ráðherra um niðurskurð til lögreglu sögð eins og blaut tuska í andlitið:
Lögregla sinnir ekki útköllum
LÖGREGLA Orð dómsmálaráðherra um niðurskurð hjá lögreglu
voru eins og blaut tuska í andlit lögreglumanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FANGAKLEFAR Ungu mennirnir tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi og munu gera þar til á
mánudaginn hið minnsta, þegar Hæstiréttur tekur afstöðu til kæru þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Barnadagur í Viðey
Yngsta kynslóðin verður boðin sér-
staklega velkomin í Viðey á morgun.
Barnamessa verður í kirkjunni og
skemmtun verður haldin fyrir börnin.
Að auki verður opinn smíðavöllur og
hægt að smíða flugdreka. Siglt er í
Viðey á klukkustundarfresti.
ÚTIVIST
Pétur, ætlarðu að bola okkur
burt úr viðræðunum?
„Ekki spurning, enda hef ég bol-
magnið til þess.“
Pétur Reynisson, bolahönnuður BV bola,
hannar pólitíska boli og berst meðal
annars gegn Evrópusambandinu með
bolunum.
SPURNING DAGSINS