Fréttablaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Júlíu Margrétar Alexandersdóttur Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74% Í dag er laugardagurinn 25. júlí 2009, 206. dagur ársins. 4.12 13.34 22.53 3.36 13.19 22.59 Eitt ómeðvitaðasta en jafnframt með hættulegri trúboðum und- anfarinna ára hefur snúist um það að stafa ofan í fólk að elska sjálft sig. Heilli kynslóð hefur verið inn- rætt að henni séu allir vegir færir – bara ef hún trúir á eigið ágæti. DÆGURLÖG, sjálfshjálparbæk- ur, vatnslitamáluð afmæliskort, sem seld eru á næstu sólbaðsstofu, hafa reynst nýju kennisetningunni hollir fylgismenn – „I believe I can fly“. Kunningi minn hélt líka eitt sinn að hann gæti flogið. Því þá var hann á kókaíni. PREDIKUNIN hefur verið nær fríkeypis og alls staðar fáanleg. Ef þú last ekki bókina eða sást ekki myndina – neita ég að trúa því að Magga frænka hafi undið sér upp að þér í síðasta jólaboði (klædd í flippaða sjálfsástarkjól- inn sinn með marglitu afrísku fest- arnar sínar) horft djúpt í augu þér og sagt: „Júlía, maður verður bara að trúa á sjálfan sig.“ VIÐ misstum hins vegar greini- lega af því þegar náunginn heltist úr ástarlestinni. Kannski heyrðum við ekki þegar hann skall í gólf- ið fyrir hávaðanum í möntrunni okkar. Við fórum í það minnsta létt með að láta sem fyrri hlut- inn í boðorðinu, sem Jesús kallaði sjálfur það æðsta: „Þú skalt elska náungann eins og sjálfan þig“ hafi aldrei verið til. Spurning hvort sjálfshjálparbækur undanfarinna ára hefðu ekki fremur átt að leggja áherslu á félaga okkar en okkur sjálf. Vorum við ekki nokkuð sjálf- bjarga með sjálfselskuna? ÁRNI Bergmann flutti frá- bært erindi hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands í vor sem lesa má á Smug unni. Í stuttu máli fjall- ar ræða hans um að það sé ekki aðeins séríslenskt vandamál um þessar mundir að menn geti ekki játað mistök sín. Heilu samfélög- in, jafnvel mannkyn allt, stríði við það að geta einfaldlega ekki sagt: „Fyrirgefið. Ég gerði rangt.“ Að skipta um skoðun og sjá að sér, telji fólk merki veikleika – að það brjóti niður sjálfsmynd þess og stolt. Ofuregóið, með fulla trú á sjálfu sér, þolir ekki að hafa haft rangt fyrir sér. ÉG mæli með lestri á grein Árna. Hver og einn ætti að geta tekið til í sínum garði. Ef þetta er hugar- ástand heimsins er svo ofurauðvelt að leggja eitthvað af mörkum. Ódýr ástaróður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.