Fréttablaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Í dag er laugardagurinn 25. júlí
2009, 206. dagur ársins.
4.12 13.34 22.53
3.36 13.19 22.59
Eitt ómeðvitaðasta en jafnframt með hættulegri trúboðum und-
anfarinna ára hefur snúist um það
að stafa ofan í fólk að elska sjálft
sig. Heilli kynslóð hefur verið inn-
rætt að henni séu allir vegir færir
– bara ef hún trúir á eigið ágæti.
DÆGURLÖG, sjálfshjálparbæk-
ur, vatnslitamáluð afmæliskort,
sem seld eru á næstu sólbaðsstofu,
hafa reynst nýju kennisetningunni
hollir fylgismenn – „I believe I can
fly“. Kunningi minn hélt líka eitt
sinn að hann gæti flogið. Því þá
var hann á kókaíni.
PREDIKUNIN hefur verið nær
fríkeypis og alls staðar fáanleg.
Ef þú last ekki bókina eða sást
ekki myndina – neita ég að trúa
því að Magga frænka hafi undið
sér upp að þér í síðasta jólaboði
(klædd í flippaða sjálfsástarkjól-
inn sinn með marglitu afrísku fest-
arnar sínar) horft djúpt í augu þér
og sagt: „Júlía, maður verður bara
að trúa á sjálfan sig.“
VIÐ misstum hins vegar greini-
lega af því þegar náunginn heltist
úr ástarlestinni. Kannski heyrðum
við ekki þegar hann skall í gólf-
ið fyrir hávaðanum í möntrunni
okkar. Við fórum í það minnsta
létt með að láta sem fyrri hlut-
inn í boðorðinu, sem Jesús kallaði
sjálfur það æðsta: „Þú skalt elska
náungann eins og sjálfan þig“ hafi
aldrei verið til. Spurning hvort
sjálfshjálparbækur undanfarinna
ára hefðu ekki fremur átt að leggja
áherslu á félaga okkar en okkur
sjálf. Vorum við ekki nokkuð sjálf-
bjarga með sjálfselskuna?
ÁRNI Bergmann flutti frá-
bært erindi hjá Siðfræðistofnun
Háskóla Íslands í vor sem lesa má
á Smug unni. Í stuttu máli fjall-
ar ræða hans um að það sé ekki
aðeins séríslenskt vandamál um
þessar mundir að menn geti ekki
játað mistök sín. Heilu samfélög-
in, jafnvel mannkyn allt, stríði við
það að geta einfaldlega ekki sagt:
„Fyrirgefið. Ég gerði rangt.“ Að
skipta um skoðun og sjá að sér,
telji fólk merki veikleika – að það
brjóti niður sjálfsmynd þess og
stolt. Ofuregóið, með fulla trú á
sjálfu sér, þolir ekki að hafa haft
rangt fyrir sér.
ÉG mæli með lestri á grein Árna.
Hver og einn ætti að geta tekið til
í sínum garði. Ef þetta er hugar-
ástand heimsins er svo ofurauðvelt
að leggja eitthvað af mörkum.
Ódýr
ástaróður