Fréttablaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 33
inni&úti ●
ætti Bautans
Ástu
Mótið litlar flat-
mmur. Penslið
lið í 1 til 2 mín-
tt er að bera
hvítlauksolíu á lefsurnar þegar búið
er að grilla þær.
Mangósósa
1 dl mangó-chutney
1 dl sýrður rjómi
2 msk. síróp
Setjið allt í matvinnsluvél eða
blandara og hrærið saman.
Sumardrykkur
Blandið saman sódavatni og app-
elsínusafa eftir smekk. Setjið sítr-
ónu- og limesneiðar út í og grenad-
ín allra síðast til að fá lit.
Grillspjót eru skemmtilegur
framreiðslumáti og gaman
er að skreyta diskinn með
þeim. Hér er þeim raðað í
eins konar indíánatjald og
salatið sett undir.
„Réttirnir sem ég framreiði
hér eru mjög einfaldir og auðvelt
að finna í þá hráefnið. Auk þess
bragðast þeir mjög vel,“ segir Guð-
rún Hrönn en hún útbjó þrenns
konar rétti á spjótum og lefsur.
„Gott er að leggja spjótin í bleyti
áður en maturinn er þræddur upp
á til að koma í veg fyrir að þau
brenni á grillinu.“
Hún mælir einnig með lefs-
unum sem passa með alls konar
mat. „Þetta er æðislegt grillbrauð
og hentar með flestu. Gæta þarf
þess að hræra deigið ekki of mikið
því þá verður það seigt en lefsurn-
ar eru mjög góðar nýbakaðar og
gaman er að leika sér með alls
konar olíur og pestó til að bragð-
bæta.“
Mangósósan er hugsuð með
öllum réttunum og ferskt salat
og svalandi sumardrykkur toppa
síðan herlegheitin. - hs
Guðrún hefur starfað á Bautanum í tæp sjö
ár og kann því vel til verka. Hér hleður hún á
grillvagninn réttum á spjóti og grilllefsum.
Engin málamiðlun í gæðum
Eykur styrk og þol vöðva
Lengri högg, lægri forgjöf !
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni.
Rannsóknir staðfesta árangur, sjá www.celsus.is
Astazan er öflugt
andoxunarefni sem
kemur í veg fyrir og
lagar eymsli, strengi,
vöðva- og sinabólgur.
Fyrir bak, fætur og hné.
Íþróttafólk og sjúkra-
þjálfarar mæla
með AstaZan.
1 hylk
i á dag
.
Virkar
strax
!
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 5